Frjáls verslun - 01.07.2013, Side 69
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 69
Fab Lab, eða fabrication laboratory, er eins konar framleiðslutilraunastofa þar sem fólk
getur komið hugmyndum sín um
í áþreifanlegt form með tölvu
stýrðum búnaði. Geta hlutirnir
verið allt frá handverki til sérfor
ritaðra tölvukubba. Smiðjan var
sett á laggirnar í Vestmanna
eyjum árið 2008 og þar er fólki
kennt að nýta sér þá tækni sem
þar er að finna. Um leið getur
það einnig notið aðstoðar frá
Nýsköpunarmiðstöð við gerð
markaðs og viðskiptaáætlana.
Frosti segir smiðjuna hafa verið
vel sótta bæði af heimafólki og
gestum. Slík smiðja hefur einnig
verið rekin á Sauðárkróki frá
árinu 2010 og Ísafirði árið 2012
og stendur nú til að setja eina
slíka á laggirnar í Breiðholti í
Reykja vík.
„Það var þáverandi samstarfs
félagi minn hjá Vestmannaeyja
bæ, Smári Mc Carthy, sem
fyrst heyrði um slíkar smiðjur
í fyrir lestri á netinu og hélt til
Noregs til að kynna sér málið
nánar. Hugmyndin átti vel upp á
pallborðið hjá Vestmannaeyja
bæ en á þessum tíma var
niðurskurður í þorskkvóta og
því þörf á ákveðnu mótvægi
stjórnvalda. Við fengum Þorstein
Inga Sigfússon, forstjóra Ný
sköpunarmiðstöðvar, í lið með
okkur og sá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands um uppsetningu og utan
umhald,“ segir Frosti Gíslason,
verkefnastjóri Fab Lab hjá Ný
sköpunarmiðstöð Íslands.
Aukið sjálfstraust og
færni
Auk þess að veita frumkvöðlum
brautargengi skapast einnig
dýrmætt tengslanet með Fab
Labsamstarfinu en nú eru starf
ræktar um 230 Fab Labsmiðjur
um allan heim. Fab Labsmiðjan í
Vestmannaeyjum er t.a.m. einnig
menntastöð í tengslum við MIT
háskólann í Boston.
„Fólk sækir til okkar sex mán
aða námskeið sem kennt er af
Neil Gershenfeld, prófessor við
MITháskólann í Boston, einu
sinni í viku í svokölluðu Fab
Academy. Þar er kennd nýjasta
tækni innan Fab Lab og nýjustu
rannsóknir hverju sinni kynntar.
Með þessu er fólki sem hér býr
gert kleift að stunda staðbundið
nám á hærra stigi en annars væri
mögulegt sem er mikilvægt fyrir
staði eins og Vestmannaeyjar
sem ekki hafa háskóla. Einnig
erum við í nánu samstarfi við
grunn og framhaldsskólana
hér um að miðla þekkingu Fab
Academy til yngri nemenda.
Með því örvum við sköpunargáfu
þeirra og ímyndunarafl og gerum
þeim kleift að framleiða sjálf nýjar
vörur. Nemendur öðlast einnig
aukið sjálfstraust, tæknilæsi og
tæknifærni. Það skiptir máli að
vekja snemma áhuga nemenda
á tækninámi og hafa margir þeirra
sótt slíkt í kjölfarið á náminu hjá
okkur. Það leiðir síðan til fleiri starfa
og nýrra tækninýjunga sem geta
gert okkur lífið betra,“ segir Frosti
og bætir við að mikilvægt sé að
leggja áherslu á aukna þekkingu
og nýsköpun á sviði tækni og
vísinda til að styrkja samkeppnis
hæfni landsins.
Telur þú sprotaumhverfið
hagkvæmt í dag?
„Frumkvöðlar kvarta helst yfir því
að erfitt sé að nálgast fjármagn
en í dag er mikill áhugi fyrir
tækni nýjungum á markaðnum
og auðvelt aðgengi að heims
markaði. Um leið er hópfjár
mögnun (crowdfunding) að
kom ast á skrið hérlendis og horf
urnar áhugaverðar. Ýmsar góðar
vörur sem eiga uppruna sinn í
Fab Labsmiðjum eru nú t.d. að
komast í framleiðslu, m.a. fyrir
tilstuðlan Kickstarter, og vonumst
við til að sjá slíkt í auknum mæli í
framtíðinni,“ segir Frosti.
stofnár: 2008.
stofnendur: nýsköpunarmiðstöð íslands.
markmið verkefnis: að auka þekkingu á persónumiðaðri fram
leiðslu, stafrænum framleiðsluaðferðum í iðnaði og efla nýsköpun
á íslandi. einnig auka tæknilæsi almennings og almenna tæknivit
und og færni svo og að skapa vettvang fyrir nýsköpun og efla
samkeppnishæfni iðnaðarfyrirtækja, menntastofnana og nemenda.
„Hugmyndin átti vel
upp á pallborðið hjá
vestmannaeyja bæ en
á þessum tíma var
niðurskurður í þorsk
kvóta og því þörf á
ákveðnu mótvægi
stjórnvalda.“
Frosti gíslason, verkefnastjóri Fab Lab í Vestmannaeyjum.