Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 86

Frjáls verslun - 01.07.2013, Page 86
86 FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 Það fer vel á því að ræða við Þór um þessi mál og það í fundarplássi í miðju sjávarklasans sem er til húsa í Húsi sjávarklasans við Reykjavíkurhöfn úti á Grandagarði. Starfsemin hefur vaxið með undraskömmun hætti um leið og menn hafa lært að nálgast þennan grunnatvinnuveg okkar Íslendinga með nýjum aðferðum. Frekari stækkun er framundan en nú á haust mánuðum verður húsnæðið þrefaldað. Og allt plássið þegar upppantað. Það er greinilega enginn skortur á frumkvöðla­ hugsun í sjávarútveginum. Þór bendir á að mikið frumkvöðlastarf hafi verið unnið í sjávarútveginum í gegnum tíðina, mönnum hafi bara ekki verið tamt að líta hann sem uppsprettu slíks starfs. Það sé hugsanlega að breytast með nýjum hugsunarhætti, sem meðal annars má rekja til Íslenska sjávarklasans. Þór segir það staðreynd að þróunarstarf­ inu sé haldið uppi af nokkrum öflugustu fyrirtækjunum á þessu sviði. Hann segir þó ljóst að miklu meira sé hægt að gera. „Við viljum gera það á þeirri forsendu að við séum með heimsklassasjávarútveg þar sem menn kunna sitt fag. Það sem slíkur sjávarútvegur þarf að ná að gera er að ná forskoti á heimsvísu í frekari vinnslu sjávarafurðanna.“ Þór segist þar ekki vera að tala um það sem við í daglegu tali teljum til vinnslu, svo sem flökun, frystingu eða mjölun, sem menn kunni í dag. Þess í stað þurfi Íslend­ ingar að læra að komast upp virðiskeðjuna, sem er í grunninn falin í fiskveiðunum sjálf­ um, vinnslunni, þurrkun og mjölun. Þegar þar er komið fara hlutirnir að taka á sig aðra mynd og verða áhugaverðari með tilliti til launa, aðstæðna fólks og tækifæra fyrir ungt fólk. Þá segist hann vera að tala um heilsufæði, snyrtivörur og lyf. Allar þessar afurðir byggjast á betri nýtingu á því hráefni sem fellur til í dag. Verðmætin séu fyrir hendi, það þurfi bara hugmyndir, þekkingu og aðferðir til að nýta þau. „Ég spái því að ákveðnir útgerðarmenn verði orðnir lyfsalar eftir einn eða tvo áratugi. Þá verður framleiðsla þeirra orðin miklu líkari því sem tíðkast hjá stóru heilsu­ verksmiðjunum í dag.“ Þór bendir á starfsemi Lýsis máli sínu til stuðnings. Það sama geti orðið raunin hjá fleiri félögum sem geti orðið stór félög á heimsvísu eins og Lýsi er í dag. Þar er hann að vísa til félaga sem vinni með ensím með ensímtækni, meðal annars úr þorskgörnum, kollagen sem fæst úr roðinu eða prótein­ framleiðslu á sviði heilsufæðis. „Þetta gætu orðið fyrirtæki af sömu stærðargráðu og Lýsi eða félög enn ofar í virðiskeðjunni eins og lyfjafyrirtæki. Við erum sannfærð um að við séum að fara í þessa átt. Það eru fáar sjávarútvegsþjóðir sem geta afhent rekjanlega, náttúrulega afurð og algera sjálfbæra. Þetta mun stuðla að meiri sölu á afurðum okkar í framtíðinni og það jafnvel meiri en við áttum okkur á.“ Framþróun sjávarútvegsins þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans: felst í fullvinnslu Sjávarútvegurinn er ekkert öðruvísi en aðrar atvinnugreinar en við þurfum að fara að læra að nýta þau tækifæri sem þar bjóðast. Þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans, hallar sér fram í stólnum til áhersluauka þegar hann bendir á þessi sannindi sem verða augljós í hans málflutningi. TexTi: svava jónsdóTTi / Mynd: Geir ólafsson Þór Sigfússon, stofnandi Íslenska sjávarklasans. Íslendingar verða að læra að komast upp úr hinni hefðbundnu virðiskeðju í sjávarútvegi og sjá tæki­ færin í heilsufæði, snyrti­ vörum og lyfjum unnum úr fiskafurðum. SJÁVaRkLaSiNN Svona er lífið á Ásbrú Verður þín hugmynd að veruleika á Ásbrú? frumkvöðla- Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.asbru.is Frumkvöðlasetrið á Ásbrú býður frum kvöðlum og nýsköpunar­ verkefnum frábæra aðstöðu, auk stuðnings, fræðslu og ráðgjafar við að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Þar gefast fjölmörg tækifæri til að efla tengslanet og finna mögulega samstarfsaðila. Ásbrú í Reykjanesbæ er suðupottur tækifæra. Þar hefur á skömmum tíma byggst upp litríkt samfélag, þar sem saman fer öflug mennta stofnun, fjöldi spennandi fyrirtækja og blómstrandi mannlíf. Nánari upplýsingar á www.asbru.is. PI PA R\ TB W A -S ÍA - 1 3 1 2 6 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.