Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Blaðsíða 28
A G R I P
ERINDA /XII.
VÍSINDARÁÐSTEFNA
H I
Inngangur: Tíðni ofþyngdar og offitu barna fer ört vaxandi hér
á landi eins og í öllum nágrannalöndum okkar. Einn af orsaka-
völdum þessarar auknu líkamsþyngdar barna er lítil hreyfing.
Markmið rannsóknarinnar er að meta hreyfingu barna og kanna
tengsl hennar við holdafar þeirra.
Efniviður og aðferðir: Veturinn 2003-4 voru mælingar gerðar á 9
og 15 ára börnum í 18 grunnskólum sem valdir voru á landsvísu.
í úrtakinu voru 1323 börn og var þátttökuhlutfallið um 71%.
Holdafar barnanna var kannað með því að mæla þykkt húðfell-
inga og hreyfing var mæld með hröðunarmælum sem börnin báru
við hægri mjöðm í fjóra virka daga og tvo helgardaga. Daglegt
heildarmagn hreyfingar var skoðað (hreyfibreyta A) en auk þess
daglegur heildartími þegar ákefð hreyfingar var yfir ákveðnum
mörkum: B) >3 MET (metabolic equivalent); C) >6 MET og D)
>9 MET.
Niðurstöður: Fylgni (Pearson r) á milli einstakra hreyfingar-
breyta var 0,51-0,88 (a=0,05). Fylgni á milli hreyfingar barnanna
um helgar og á virkum dögum var 0,53-0,79 eftir því hvaða hreyf-
ingarbreytur voru skoðaðar. I öllu úrtakinu er fylgni á milli þykkt-
ar húðfellinga og mismunandi hreyfingarbreyta ávallt marktæk
(r~0,30) en þó áberandi lægst í D (r=0,17). Hreyfing 15 ára stúlka
er minnst en níu ára drengja mest; samt sem áður er ekki mark-
tæk fylgni á milli hreyfingar og húðfellinga hjá þessum tveimur
hópum. Hins vegar er ágæt fylgni (r=0,18-0,24) á milli hreyfingar-
breyta A-C og húðfellinga hjá níu ára stúlkum og 15 ára drengj-
um en engin fylgni er á milli húðfellinga og D.
Ályktanir: Heildarmagn fremur en ákefð hreyfingar hefur áhrif
á fitusöfnun barna. Hreyfing 15 ára stúlkna virðist ekki vera næg
til að hafa áhrif á fitusöfnun þeirra öfugt við karlkyns jafnaldra
þeirra. Á hinn bóginn virðist hreyfing níu ára stúlkna hafa áhrif á
fitusöfnun þeirra.
E 12 Tengsl líkamsstærðar skólabarna í 9. og 10. bekk við
sjálfsmynd, depurð og líkamlega heilsu þeirra. Niðurstöður
landskönnunar
Guðrún Kristjánsdóttir1-2, Björk Haraldsdóttir1, Hulda Halldórsdóttir1,
Sigríður Þórdís Bergsdóttir'
'Hjúkrunarfræðideild HÍ, 2Landspítali
gkrist@hi.is
Inngangur: Fjölmargar rannsóknir benda til að ofþyngd hafi var-
anleg áhrif á heilsufar fólks til lengri tíma. Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna tengsl líkamsstærðar barna og fjögurra
heilsufarslegra útkomuþátta, sjálfsmyndar, depurðar, líkamlegrar
heilsu og heilbrigðisupplifunar.
Efniviður og aðferðir: Tilviljunarlandsúrtak 3913 íslenskra skóla-
barna í 9. og 10. bekk grunnskóla sem þátt tóku í landskönnun
á heilsufari var notað. Þyngd þeirra var flokkuð í mikla undir-
þyngd, undirþyngd, kjörþyngd, ofþyngd og ofurþyngd. Við mat
á sjálfsmynd barna var stuðst við sjálfsálitskvarða Rosenbergs,
við mat á depurð barna var stuðst við þunglyndiskvarða Pearlins
og við mat á líkamlegri heilsu var stuðst við SCL-90 kvarða
Derogatis, auk sjálfsmats þeirra á heilsu sinni.
Helstu niðnrstöðiir: Börn sem voru of þung reyndusl hafa mark-
tækt lakari sjálfsmynd, voru daprari og höfðu neikvæðari heil-
brigðisupplifun en önnur börn. Hins vegar upplifðu of þung börn
ekki marktækt lakari sjálfmetna líkamlega heilsu en önnur börn.
Helstu ályktanir: Niðurstöður sýna að líkamsstærð barna hefur
áhrif á heilbrigðisupplifun þeirra og að þyngd þeirra tengist frek-
ar andlegum þáttum heilsunnar, svo sem sjálfsmynd og geðslagi,
en líkamlegum þáttum heilsufars þeirra á þessum aldri, hvað svo
sem síðar verður. Ástæða er til að taka offitu hjá skólabörnum
alvarlega enda virðist hún neikvætt tengjast sjálfsmynd þeirra og
geðslagi sem getur verið andlega mótandi til framtíðar.
E 13 Hið félagslega samhengi ölvunardrykkju meðal ung-
linga
Jórlaug Heimisdóttir1, Rúnar Vilhjálmsson2, Guðrún Kristjánsdóttir2
'Lýðheilsustöð. :Hjúkrunarfræðideild HI
runarv@hi.is
Inngangur: Áfengismisnotkun unglinga getur haft alvarlegar
afleiðingar í för með sér. Hún stefnir heilsufari í hættu til skamms
eða langs tíma og eykur líkur á áfengisvandamálum og fíkniefna-
notkun í framtíðinni. Tilgangur rannsóknarinnar var að grafast
fyrir um algengi ölvunardrykkju meðal íslenskra unglinga og
tengsl hennar við félags- og lýðfræðilega þætti.
Efniviður og aðferðir: Á árinu 1997 var gerð þversniðskönnun
meðal helmings allra íslenskra skólanemenda á aldrinum 15 og
16 ára. Svarendur fylltu spurningalista út í skólastofum og var
svarhlutfallið 91% (n=3872). Rannsóknin byggir á upplýsingum
frá svarendum um ölvunardrykkju, lýðfræðilegan bakgrunn,
stuðning frá foreldrum og vinum, eftirlit af hálfu foreldra, and-
stöðu foreldra og vina við ölvun og ölvunardrykkju foreldra og
vina. Tengsl ölvunardrykkju við skýringarbreytur voru metin með
aðhvarfsgreiningu (logistic regression).
Niðurstöður: Um 30% unglinga greindu frá ölvunardrykku síð-
astliðna 30 daga. Tengsl voru milli ölvunar unglinganna og ölvun-
ar vina, andstöðu við ölvun meðal vina og foreldra, og stuðnings
vina og foreldra.
Ályktanir: Ölvun er algeng meðal íslenskra unglinga. Ölvunin
tengist andstöðu, stuðningi og ölvunardrykkju meðal vina og
foreldra. Full ástæða er til að leita leiða til að draga úr ölvunar-
drykkju unglinga. I því sambandi þarf að beina athygli að viðhorf-
um til áfengis, áfengishegðun og félagslegum stuðningi af hálfu
foreldra og vina unglingsins.
E 14 Ofbeldi á meðal íslenskra unglinga
Gerður Rún Guðlaugsdóttir'. Rúnar Vilhjálmsson2,Guðrún Kristjánsdóttir2
'Barnaspítali Hringsins, 2hjúkrunarfræðideild HÍ
gerdurgu@simnet. is
Inngangur: í skýrslu alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar árið 2002
var ofbeldi kynnt sem alþjóðlegt lýðheilsuvandamál. Ofbeldi
getur haft margvíslegar líkamlegar og sálrænar afleiðingar fyrir
hlutaðeigandi. Forvarnarstarf byggist á að þekkja og vinna með
þá þætti sem leitt geta til ofbeldishegðunar. Markmið þessarar
rannsóknar var að kanna algengi og áhættuþætti ofbeldis meðal
15-16 ára skólabarna á Islandi.
28 Læknablaðið/fylgirit 50 2004/90