Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Side 46

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Side 46
ÁGRIP ERINDA / XII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ Helstu niAurstöAur: Ekki reyndist marktækur munur á þátt- takendum og þeim sem ekki tóku þátt hvað varðar kyn, aldur og búsetu foreldra, kyn og aldur barns og tíma frá því barnið greindist með krabbamein (p£.()5). Meðalstig heilsutengdu þátt- anna lækkaði hjá báðum kynjum frá því fyrir meðferð og þar til meðferð lauk. Tölfræðilega marktækur bati mældist á: a) depurð mæðra frá T2 til T3 (p<.03), b) kvíða feðra frá T1 til T3 (pc.Ol), og c) streitu feðra frá T2 til T3 (p<.02). Foreldrar upplifðu gagn- kvæman stuðning af þátttöku og fannst hjálplegt að lesa skilaboð annarra og skrifa eigin. Bæði kynin notuðu hópinn til að lesa skila- boð frá öðrum en það voru fyrst og fremst mæður sem skrifuðu skilaboð til hópsins. Alyktanir: Niðurstöður benda til kynjamunar á heilsutengdum þáttum, upplifun á gagnkvæmum stuðningi og notkun á tölvu- tengdum stuðningshópi. Tölvutengdur stuðningshópur getur nýst báðum kynjum og verið kostur fyrir þá sem búa utan höfuðborg- arsvæðisins. Styrkja mætti meðferðina með því að hafa umræður stýrðari í kynjaskiptum hópum. E 64 Byrgjum brunninn ... Um heimilisofbeldi gegn börnum á íslandi Geir Gunnlaugsson', Jónína Einarsdóttir2 'Miðstöð heilsuverndar barna, 2ntannfræðiskor félagsvísindadeildar HÍ Geir.Gunnlaugsson@hr.is Inngangur: Foreldrum er ætlað að veita börnum sínum gott upp- eldi og beita þau aga af varúð. Hvað teljast hæfilegar refsingar við uppeldi barna er þó menningarlega bundið og í sumum nágranna- ríkjum okkar talið sjálfsagt að beita líkamlegum refsingum í upp- eldisskyni. Börn yngri en fjögurra ára eru talin vera í mestri hættu fyrir því að vera beitt líkamlegu ofbeldi af hálfu forsvarsmanna. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hugmyndir íslendinga til uppeldis barna í því skyni að styrkja forvarnarstarf hvað varðar líkamlegt og andlegt ofbeldi gegn börnum. Efniviður og aðfcrðir: Söfnun gagna fólst í að kanna íslenskar sögulegar heimildir og rannsóknir sagnfræðinga og fagfólks um uppeldi, refsingar og heimilisofbeldi gegn börnum. Helstu niöurstööur: Hugmyndir um börn og hvað sé heppilegt uppeldi hefur breyst í tímans rás. Fyrsta uppeldislöggjöfin frá 1746 skyldaði foreldra og aðra uppalendur til að refsa börnum með líkamlegu ofbeldi. Aðferðir sem byggjast á því að höggva, hýða, hirta, hæða, hóta, hafna, hrista og hræða eru nú til dags ekki aðeins taldar vera óheppilegar, heldur geta þær verið refsiverðar samkvæmt núgildandi lögum. Skortur er á upplýsingum um eðli og umfang heimilisofbeldis gegn börnum á Islandi. Ályktanir: Þörf er á heildstæðri áætlun hér á landi til að efla fyrsta, annars og þriðja stigs þverfaglegt forvarnastarf um heimil- isofbeldi gegn börnum. Löggjöf þarf að vera markviss. Huga þarf að félags- og efnahagslegum aðstæðum foreldra og barna, auka faglega þekkingu þeirra sem vinna með börnum og fjölskyldum og efla fræðslu til barna og foreldra. Einnig þarf að styrkja starf þeirra sem vinna með börnum er hafa orðið fyrir ofbeldi og skapa aðstæður sem gefa þeim og aðstandendum þeirra bestu mögulega meðferð þegar í óefni er komið. E 65 Félags- og lýðfræðilegir þættir tengdir álagi í foreldra- hlutverki. Niðurstöður landskönnunar meðal íslenskra for- eldra Rúnar Vilhjálmsson. Guðrún Kristjánsdóttir Hjúkrunarfræðideild HI runarv@hi.is Inngangur: Foreldrar geta átt við ýmiss konar vanlíðan að stríða vegna álags (life strain) í foreldrahlutverki. Tilgangur rannsókn- arinnar var að athuga breytileika í foreldraálagi með tilliti til félags- og lýðfræðilegra þátta sem vísbendingar eru um að geti komið við sögu í þessu sambandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á undirúrtaki 872 íslenskra foreldra barna undir 18 ára, er tóku þátt í heilbrigðis- könnun meðal fullorðinna Islendinga (N=1924) sem valdir voru með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Heimtur í könnuninni voru 69%. Niðurstöður: Foreldrar undir 55 ára aldri, foreldrar á stærri heim- ilum, útivinnandi foreldrar og mæður, einkum einstæðar og tekju- lágar, urðu frekar en aðrir foreldrar fyrir einstökum álagsþáttum í foreldrahlutverki og foreldraálagi í heild. Ályktanir: Þótt foreldraálag geti talist algengt er því misskipt meðal foreldra. Þekking á umfangi og ástæðum foreldraálags stuðlar að auknum skilningi á lýðgeðheilsu fullorðinna. E 66 Klínískt notagildi streitukvarða fyrir fólk með sykur- sýki Arún K. Sigurðardóttir1. Rafn Benediktsson1-2-3 'Læknadeild HÍ, 2innkirtladeild Landspítala, 3Hjartavernd arun@unak.is Inngangur: Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til að um 15% allra sem hafa sykursýki stríði við klínískt þunglyndi og hátt í 30% við geðræna truflun af ýmsum toga. Streitukvarði í sykur- sýki „Problem Areas in Diabetes (PAID)“ var þýddur og stað- færður með leyfi höfunda. Kvarðar sem mæla þekkingu og mat á sjálfshæfi voru einnig notaðir í rannsókninni en tilgangur hennar var að athuga áreiðanleika og réttmæti kvarða sem og að greina streitu fólks með sykursýki. Efniviður og aðferðir: Að fengnu leyli Vísindasiðanefndar fékk 101 einstaklingur með sykursýki tegund 1 afhenta spurningalista. Nothæfir listar voru 84 (83,2% svarhlulfall). HbAlc gildi einstak- linganna var mælt sama dag og þeir svöruðu spurningalistum. Niðurstöður: Islensk þýðing PAID var áreiðanleg og réttmæt og streita meðal íslenskra einstaklinga með sykursýki var svipuð og erlendis. Meðaltalið var 22,14 (sf 14,44) þar sem 80 var versta gildið. Spurningar með hæsta svörun og þá um leið mestri streitu tengdust meðal annars eftirfarandi atriðum; ótta við lágan blóðsykur, hræðslu við framtíð vegna aukaverkana sykursýki og það að hafa ekki skýr markmið með sykursýkismeðferðinni. Bakgrunnsbreytur sem höfðu mest tengsl við streitu voru lítil menntun og það að búa einn. Fleiri streitustig tengdust hærra HbAlc gildi. Ályktanir: Klínískt gildi streitukvarða er mikið, hann er einungis 20 spurningar og hver þeirra fjallar um mjög afmarkaða þætti lífs 46 Læknaiílaðið/fylgirit 50 2004/90
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.