Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 49

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 49
AGRIP ERINDA / XII. VISINDARAÐSTEFNA Hl frystinguna, á meðan CD4+ T-frumur dóu frekar. Dauffrumum (neutrophils) fækkaði marktækt við frystingu, en smáætum (monocytes) fjölgaði hlutfallslega. Einnig kom í ljós að PHA ræsing frumna kemur í veg fyrir neikvæð áhrif frystingarinnar á frumufjölgun. Alyktanir: Lifun einkjarna frumna er mjög há og tjáning CD yfir- borðssameinda breytist lítið eftir frystingu með aðferðum sem notaðar eru á RG. Þetta tryggir áreiðanlegar niðurstöður fram- tíðarrannsókna á frystum efniviði. E 73 Einföld skimun fyrir vannæringu meðal aldraðra á Landspítala Inga Þórsdóttir1, Pálmi V. Jónsson2-3, Anna E. Ásgeirsdóttir1, Ingibjörg Hjaltadóttir2, Sigurbjörn Björnsson23, Alfons Ramel' 'Rannsóknastofa í næringarfræö og Háskóli íslands,2öldrunarsvið Landspít- ala, -’læknadeild HÍ ingathor@landspitali.is Inngangur: Markmið rannsóknarinnar var að meta næringarástand aldraðra á öldrunarsviði Landspítala og notagildi tveggja aðferða til að skima fyrir vannæringu meðal aldraðra og einnig að hanna einfaldara tæki með því að sameina mikilvægustu spurningar frá þessum aðferðum, „Mini Nutrition Assessment (MNA)“ og skim- unartæki fyrir vannæringu sem þróað hefur verið á LSH (SVL). Efniviður og aðferðir: Samtals voru 60 sjúklingar rannsakaðir með tilliti til MNA og SVL (>65 ára). Næmi og sértæki MNA og SVL var reiknað út frá niðurstöðu viðmiðunaraðferðar, það er nákvæmu mati á næringarástandi (NMN) með sjö breytum sem sameiginlega gefa til kynna næringarástand. Til að þróa einfalt skimunartæki voru spurningar frá bæði MNA og SVL sem gáfu marktækan mun milli vel- og vannærðra, samkvæmt NMN, próf- aðar í margþáttagreiningu og línulegri aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: 58% sjúklinganna voru vannærðir samkvæmt NMN og ekki greindist munur milli kynja. Líkamsþyngdarstuðull, ósjálfrátt þyngdartap, nýleg skurðaðgerð og lystarleysi höfðu for- spárgildi samkvæmt aðhvarfslíkani (R2=60,l%). Næmi og sértæki einfaldaðs líkans var 89 og 88%, sem var hærra en fyrir MNA (77 og 36%) og SVL (89 og 60%). Alyktanir: Samkvæmt fullu mati á næringarástandi er vannæring algeng meðal sjúklinga á öldrunarlækningadeildum. Fjórar spurningar nægja til skima fyrir vannæringu meðal aldraðra. E 74 Samanburður á aldursbundnum breytingum á beinum karla og kvenna 67-93 ára mælt með tölvusneiðmynda- tækni Gunnar Sigurðsson12, Thor Aspelund1, Birna Jónsdóttir1, Sigurður Sigurðs- son1, Guðný Eiríksdóttir1, Aðalsteinn Guðmundsson1, Tamara B. Harris3, Vilmundur Guðnason1, Thomas F. Lang4 'Hjartavemd, 2Landspftali, 3National Institute on Aging, Bethesda, Maryland, JUniversity of California, San Francisco, USA gmnars@lsh.is Inngangur: Magnákvarðandi tölvusneiðmyndatækni (quanti- tative computed tomography QCT) gerir mögulegt að aðgreina frauðbein og skelbein og gerir kleift að mæla beint flatarmál þverskurðar beina. Pessi aðferð hefur lítið verið notuð í stórum faraldsfræðilegum hóprannsóknum til þessa. í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES) hefur þessari tækni verið beitt til að kanna kynjamun á aldurstengdu beintapi og breytingum á þver- sniðsstærð beina. Efniviður og aðferðir: Öldrunarrannsóknarhópur Hjartaverndar (upphaflega slembiúrtak), fyrstu 2300 þátttakendur á aldrinum 67-93 ára. Þessi rannsókn nær þó einungis til þeirra sem ekki tóku lyf sem hafa áhrif á kalk- eða beinabúskap, alls 638 karlar og 568 konur. QCT var beitt á fyrsta og annan lendaliðbol og nærenda lærleggs (frá acetabulum og niður fyrir trochanter) með eins millimetra sneiðum. Línulegri aðhvarfsgreiningu var beitt við útreikninga og leiðrétt fyrir hæð og þyngd. Niðurstöður: Flatarmál þverskurðar hryggjarliðbola jókst um 4- 5%/10 ár, hélst óbreytt í lærleggshálsi en jókst um 2% á trochant- er-svæði, jafnt í báðum kynjum. Beinþéttnin minnkaði um það bil tvöfalt meira meðal kvenna en karla bæði í hrygg og mjöðm svo og útreiknaður beinstyrkleiki. Alyktanir: Kynjamunur á breytingu á styrk beina á efri árum skapast fyrst og fremst vegna meira beintaps kvenna en ekki vegna meiri ummálsaukningar beina meðal karla. E 75 Tengsl beinstyrktarstuðuls (anabolic index) við bein- þéttni meðal 70 ára íslenskra kvenna Olafur S. Indriðason', Leifur Franzson2, Guðrún A. Kristjánsdóttir1, Díana Óskarsdóttir', Gunnar Sigurðsson1 'Lyflækningadeild og 2Rannsóknarstofnun Landspítala osi@tv.is Inngangur: Bæði beinmyndunar- og beinniðurbrotsvísar sýna nei- kvæða fylgni við beinþéttni (BMD). Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl BMD við hlutfall beinmyndunar- og bein- niðurbrotsvísa. Efniviður og aðferðir: Þetta var þversniðsrannsókn á 70 ára konum af höfuðborgarsvæðinu. Við mældum BMD í mjóhrygg og mjöðm (DEXA), beinmyndunarvísana osteókalsín (OC) og alkalískan fosfatasa (ALP) í sermi og beinniðurbrotsvís- inn krosstengd telópeptíð af gerð 1 kollageni í þvagi (UNTX). Beinstyrktarstuðull (BSS) var reiknaður annars vegar sem OC/ UNTX (BSSO) og hins vegar sem ALP/UNTX (BSSA). Fyrir þessa rannsókn voru þær konur útilokaðar er tóku lyf eða höfðu sjúkdóma með áhrif á beinabúskap. Fylgnistuðull Spearmans og línuleg aðhvarfsgreining voru notuð til að kanna tengsl breyta. Niðurstöður: Af 418 konum sem boðið var, tóku 308 þátt. Eftir útilokun voru 248 eftir í rannsókninni. Fylgni milli OC og UNTX var sterk (r=0,61) en fylgni ALP við OC og UNTX var mun minni, (r=0,16 og 0,19). OC hafði marktækt neikvæða fylgni við BMD í mjóhrygg (r=-0,22; p<0,001) og mjöðm (r=-0,28; p<0,001) sem og UNTX (r=-0,25; p<0,001; r=-0,32; p<0,001, í sömu röð) en fylgni ALP við BMD var ekki marktæk. Hins vegar kom í Ijós jákvæð fylgni BMD við bæði BSSO (r=0,18; p=0,009, mjóhryggur; r=0,23; p=0,001, mjöðm) og BSSA (r=0,26; p<0,001, mjóhryggur; r=0,30; p<0,001, mjöðm). Pó leiðrétt væri fyrir fitu- og fitulausum massa og PTH var áfram neikvæð fylgni BMD við OC og UNTX Læknablaðið/fylgirit 50 2004/90 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.