Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 65

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 65
ÁGRIP ERINDA / XII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ E 119 Framför í fyrirbyggjandi beinvernd hjá einstaklingum á langtímasykursterameðferð Sólveig Pétursdóttir', Unnsteinn I. Júlíusson2, Friðrik Vagn Guðjónsson3, Björn Guðbjörnsson' J 'Læknadeild HÍ, 2HeiIbrigðisstofnun Þingeyinga, -’Heilsugæsla Akureyrar, 4rannsóknarstofa í gigtsjúkdómum Landspítala bjomgu@landspitali.is Bakgrunnur: Beineyðandi áhrif langtímasykursteranotkunar er viðurkennd staðreynd í dag. Klínískar leiðbeiningar þar sem skilgreint er hvernig haga skuli fyrirbyggjandi meðferð gegn steraorsakaðri beinþynningu hafa verið birtar af landlækni. Þrátt fyrir mikla umfjöllun og góða greiningar- og meðferðarmöguleika sýna rannsóknir hérlendis og erlendis að beinvernd er ekki full- nægjandi hjá sjúklingum á langtímasykursterameðferð. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig staðið er að beinvernd hjá þessum sjúklingahópi hér á landi. Ennfremur að athuga hvort orðið hefur breyting frá 1995-96 þegar svipuð rannsókn var fram- kvæmd á sama landsvæði og þessi rannsókn nær til. Efniviður og aðferðir: Einstaklingar sem fengið höfðu lyfið predn- isólón afgreitt í apótekum í Eyjafjarðar- og Pingeyjarsýslunum á tímabilinu 01.01.2002-31.12.2003 fengu sent kynningarbréf og spurningakver sem þeir voru beðnir um að svara. Áður höfðu þeir einstaklingar sem ekki áttu lögheimili í sýslunum verið úti- lokaðir frá þátttöku. Eingöngu þeir sem voru að minnsta kosti í þrjá mánuði á samfelldri prednisólónmeðferð eða höfðu fengið endurtekna meðferðarkúra sem námu þremur mánuðum á ári á umræddu rannsóknartímabili voru teknir með í rannsóknina. Niðurstöður: Alls svöruðu 183 einstaklingar (66%) spurninga- kverinu og þar af uppfýlltu 118 einstaklingar þátttökuskilyrðin samanber hér að ofan. Meðalaldur þeirra var 64 ár (19-90ára). Algengustu ábendingar fyrir meðferð voru gigtarsjúkdómar (50%) og lungnasjúkdómar (19%). 51 einstaklingur (43%) hafði sögu um beinbrot og 21 hafði brotnað eftir að sykursterameðferðin hófst (18%). Alls höfðu 62 þátttakenda (53%) farið í beinþéttnimælingu með DEXA-mæli og höfðu 14 þeirra greinst með beinþynningu og voru þeir allir á beinverndandi lyfjum. Níu af 14 (64%) sem voru með beingisnun samkvæmt DEXA-mælingu voru á beinverndandi lyfjameðferð. Fjörutíu og einn einstaklingur (meðalaldur 63 ár) tók S;7,5 mg af prednisólóni á dag og af þeim voru 18 á beinverndandi lyfjum (44%), þar af voru 15 á bisfosfónötum. Einungis fjórir þátt- takendur af þessum 41 tóku beinvemdandi lyf sem fyrsta stigs for- vöm, á meðan aðrir hófu meðferðina sem annars eða þriðja stigs forvörn. Ályktanir: Niðurstöður okkar benda til þess að mikil vakning hafi orðið á meðal heilbrigðisstarfsmanna með tilliti til beinverndar hjá sjúklingum er þurfa langtímasykursterameðferð. Pað má hins vegar gera enn betur í því að tryggja öllum fyrsta stigs bein- verndandi forvörn strax í upphafi sykursterameðferðar og eru heilbrigðisstéttir eindregið hvattar til dáða hvað þetta varðar. E 120 Aldursstöðluð beinbrotatíðni í Eyjafirði Jón Torfi Halldórsson11, Þorvaldur Ingvarsson', Björn Guðbjörnsson24 'Slysadeild og 2beinþéttnimóttaka FSA, ’Heilsugæslustöðin á Akureyri, ■•rannsóknarstofa í gigtsjúkdómum Landspítala bjorngu@landspitali. is Inngangur: Beinbrot er algeng komuástæða á bráðamótttöku. Eðli og tíðni beinbrota eru mismunandi eftir aldri og kyni. Með- ferð þeirra er oft kostnaðarsöm og þau skerða lífsgæði. Hækkandi meðalaldur þjóðarinnar vekur spurningar um framtíðarskipulag heilbrigðisþjónustunar. Það er því mikilvægt að hafa áreiðanlegar upplýsingar um aldursstaðlaða beinbrotatíðni, en þær liggja ekki fyrir hérlendis. Efniviður og aðferðir: Á 12 mánaðar tímabili (01.09.01-31.08.02) var upplýsingum safnað saman um öll beinbrot sem skráð voru hjá slysadeild FSA. Ennfremur var leitað í útskriftargreiningum allra legudeilda. íbúar í Eyjafirði 01.12.02 voru 21.627. Upplýsingar um aldursdreifingu voru fengnar hjá Hagstofu íslands. Niðurstöður: Alls greindust 668 beinbrot, þar af 449 hjá Eyfirð- ingum (67%), sem samsvarar að nýgengi beinbrota við Eyjafjörð sé 208/10.000/ár. Beinbrot voru algengari meðal karla (59%) en kvenna (41%). Nýgengi brota var hæst meðal einstaklinga 80 ára og eldri (542/10.000/ár) og meðal barna á aldrinum 10-19 ára (392/10.000/ár). Lægst var nýgengið hjá konum á aldrin- um 30-39 ára (38/10.000/ár), en hæst meðal elstu kvennanna (845/10.000/ár). Karlar höfðu hins vegar hæslu brotalíðnina meðal 10-19 ára drengja (533/10.000/ár) og lægstu hjá 50-59 ára körlum (117/10.000/ár). Beinþynningarbrot gætu verið meira en helmingur allra brota eftir fimmtugt og yfir 80% allra brota hjá 80 ára og eldri. Ályktun: Rannsóknin staðfestir aldursbreytilegt nýgengi bein- brota og að ungir karlar hafi háa beinbrotatíðni, sem líklega skýrist af atvinnutengdri áhættu eða háskalegri hegðun. Frekari rannsóknir, þar sem beinþéttni þeirra sem brotna er metin, eru nauðsynlegar til að unnt sé að draga ályktanir um sambandið á milli beinbrota og beinþynningar hér á landi. E 121 Áhættuþættir meiðsla í knattspyrnu Árni Árnason'2J, Stefán B. Sigurðsson2, Ái'ni Guðmundsson, Ingar Holme', Lars Engebretsen'. Roald Bahr' 'Oslo Sports Trauma Research Center, Norwegian University of Sport and Physical Education, Osló, 2Lífeðlisfræðistofnun læknadeildar HÍ, -'sjúkra- þjálfunarskor læknadeildar HÍ arnarna@hi.is Inngangur: Meiðsli í knattspyrnu eru algeng en lítið er vitað um orsakir meiðslanna. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort flokka mætti ákveðna þjálffræðilega þætti sem áhættuþætti meiðsla í knattspyrnu. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur í rannsókninni voru leik- menn frá 17 af 20 knattspyrnuliðum í tveimur efstu deildum karla á íslandi, samtals 306 leikmenn. Áður en keppnistímabilið 1999 hófst svöruðu leikmenn spurningalista um fyrri meiðsli. Eftirfarandi þættir voru einnig prófaðir: hæð, þyngd, fitupró- senta, hámarkssúrefnisupptaka, hreyfanleiki með tilliti til vöðva- Læknabladid/fylgirit 50 2004/90 65
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.