Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Page 97

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Page 97
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XII. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ V 73 Áhrif vatnsextrakts úr fjallagrösum (Cetraria island- ica) á frumuboðaseytun angafrumna in vitro og ónæmis- vakasértæka liðbóigu í rottum Sesselja Ómarsdóttir1, Hulda Klara Ormsdóttir', Jóna Freysdóttir2, Kristín Ingólfsdóttir1, Elín Soffía Ólafsdóttir1 ’Lyfjafræðideild HÍ, 2Lyfjaþróun hf. sesselo@hi.is Inngangur: Fjallagrös, Cetraria islandica (L.) Ach. (Parmeliaceae) er ein fárra fléttutegunda sem notuð er í lækningalegum tilgangi. Vatnsextrakt og hrein efni einangruð úr fjallagrösum hafa sýnt áhugaverða líffræðilega verkun. Markmið þessarar rannsóknar var að magnákvarða fjögur helstu innihaldsefni fjallagrasaext- rakts og kanna áhrif þess í in vitro angafrumulíkani og í in vivo liðbólgulíkani í rottum. Efniviður og aðfcrðir: Vatnsextrakt var framleitt með því að sjóða mulin fjallagrös í fimm mínútur og frostþurrka flotið. RP- HPLC var notað til að magngreina prótólichesterínsýru og fúmar- prótócetrarínsýru og 'H og I3C-NMR til að magngreina isolichenan og lichenan. Vatnsextraktið var prófað í angafrumulíkani þar sem að mónócýtar voru einangraðir úr blóði og látnir þroskast í óþrosk- aðar angafrumur, Óþroskaðar angafrumur voru síðan ræktaðar rneð extraktinu og látnar þroskast áfram í þroskaðar angafrumur. Floti af frumurækt var safnað og seytun frumuboða mæld með ELISA. Vatnsextraktið var einnig prófað t ónæmisvakasértæku liðbólgulíkani í rottum þar sem bólga var framkölluð í vinstra hné rottnanna. Rotturnar voru svo sprautaðar með fjallagrasaextrakti eða saltvatnslausn s.c, þrisvar í viku í sex vikur og umfang liðbólg- unnar mælt. Niðurstöður: Angafrumur sem ræktaðar voru með vatnsextrakti úr fjallagrösum: háum styrk (200 og 100 pg/ml) seyttu auknu rnagni af IL-10 (2,6 og 2,1 ng/ml) og minna magni af IL-12 (14 og 13 ng/ml) miðað við grunngildi. Einnig minnkaði bólga í ónæmisvakasértækri liðbólgu í rottunum sem fengu 2,5 mg/kg af extrakti þrisvar í viku. Ályktanir: Vatnsextrakt úr fjallagrösum hefur áhrif á þroskun anga- frumna þannig að þær seyta bólguhemjandi boðefnum og virðist hafa bólgueyðandi áhrif í liðbólgulíkani í rottum. Tekist hefur að magnákvarða fjögur helstu innihaldsefnin í fjallagrasavatnsextrakti. V 74 Fjölsykrur úr ormagrösum (Thamnolia vermicularis var. subuliformis) og áhrif þeirra á frumufjölgun miltisfrumna og frumuboðaseytun miltisfrumna og kviðarholsmakróvaka úr rottum in vitro Scssclja Ómarsdóttir1, Jóna Freysdóttir2, Berit Smestad Paulsen’, Elín Soffía Ólafsdóttir1 'Lyfjafræðideild HÍ, ’Lyfjaþróun hf„ ’Dept. of Pharmacognosy, Institute of Pharmacy, University of Oslo sesselo@hi.is Inngangur: Fléttur eru hægvaxta samlífsverur sem samanstanda af svepp og þörungi. Margar fjöisykrur úr sveppum og fléttum hafa sýnt áhrif á ýmsa þætti ónæmiskerfisins. Markmið þessarar rannsóknar var að einangra og byggingarákvarða fjölsykur úr ormagrösum og rannsaka in vitro áhrif þeirra á frumufjölgun miltisfrumna og frumuboðaseytun miltisfrumna og kviðarhols- makróvaka úr rottum. Efniviður og aðferðir: Fjölsykrurnar voru úrhlutaðar með heitu vatni og 0,5 M NaOH, einangraðar með etanólfellingum og día- lýsu, hreinsaðar upp með jónskiptaskiljun, gelsíun og preparatíft á GP-HPLC. Byggingarákvörðun á efnunum var gerð með 'H og l3C-NMR, metanólýsu, metýleringsgreiningu á GC-MS og nteð ensímhýdrólýsu. Kviðarholsmakróvakar og miltisfrumur og voru fengnar úr rottum og þær ræktaðar með/án fjölsykranna. Frumufjölgun miltisfrumna var ákvörðuð með því að mæla 3H- thýmidín upptöku frumna í skiptingu með sindurteljara. Frumu- boðaseytun miltisfrumna og kviðarholsmakróvaka var mæld með ELISA. Niðurstöður: Ormagrös framleiða að minnsta kosti þrjú flókin heteróglýkön og eitt þ-glúkan af lentinan gerð, Allar fjölsykrurn- ar, nema Ths-4, í styrknum 100 pg/ml juku frumufjölgun miltis- frumna, Ths-4 og Ths-2 í styrknum 100 pg/ml og Ths-5 í styrkjun- um 100 og 33 pg/ml juku marktækt IL-10 seytun miltisfrumna en engin sykranna hafði áhrif á IL-4 seytun þeirra. Fjölsykran Ths-4 (100 pg/ml) jók marktækt seytun TNF-a hjá kviðarhols- makróvökum. Ályktanir: Orntagrös framleiða fjölsykrur með óvenjulegar bygg- ingar. Niðurstöður virkniprófana gefa til kynna að þessar fjölsykr- ur hafi bæði áhrif á frumur ósérhæfða og sérhæfða ónæmiskerfis- ins. Frekari rannsóknir á þessum fjölsykrum og samanburður á áhrifum þeirra og fleiri byggingargerða fléttufjölsykra á ónæmis- kerfið mun vonandi leiða til aukins skilnings á sambandi á milli bygginga og verkunar. V 75 Lyfjaeiginleikar pólýketíðanna alnumycin og helio- mycín Evu Lind I lelgiidóllir1, Davíð R. Ólafsson2, Sigríður Ólafsdóttir2, Sveinbjörn Gizurarson1,2 'Lyfjaþróun hf„ 2lyfjafræðideild HÍ eth@lyf.is Inngangur: Actinomycetes og Streptomycetes bakteríur fram- leiða margar gerðir af annars stigs afurðum af flokki pólýketíða. Algengt er að pólýketíð hafi lyfjavirkni og til þeirra teljast lyf eins og erythromýcín, tetracýclín, lovastatín og simvastatín. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort nýta megi pólýketíðin alnumycín og heliomycín sem lyf. Alnumycin hindrar vöxt K562 hvítblæðisfrumna en þessi virkni bendir til þess að alnumycin hafi sambærileg áhrif og naphthopyranomycín og því líklegt til að gagnast sem lyf gegn krabbameini. Heliomycín hefur virkni gegn ýmsum sveppum og bakteríum. Stefnt er að þvf að rannsaka lyfja- eiginleika sameindanna í dýrum. El'niviður «g aðferðir: Próaðar voru HPLC greiningaraðferðir fyrir bæði alnumycín og heliomycín. Notuð var vatnsfælniskilja og ACN/maurasýru/vatns blanda í ferðafasa. Greiningaraðferðirnar voru notaðar til að mæla octanol/vatns dreifistuðul (Kow) efnanna en hann gefur hugmynd urn fitusækni lyfjaefna. Niðurstöður: HPLC greiningaraðferðirnar voru línulegar á bil- inu 9,4 til 93,6 ng/mL og greiningarmörkin kringum 11,0 ng/mL, Octanol-/vatns dreifistuðull sýndi að bæði efnin eru mjög fitu- LÆKNABUAPIÐ/FYUaiRrr 50 2004/90 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.