Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 98

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Síða 98
AGRIP VEGGSPJALDA / XII. VISINDARAÐSTEFNA Hl sækin og varla uppleysanleg í vatni. Út frá byggingu þeirra og niðurstöðum octanol/vatns hlutfalls tilraunanna má ætla að efnin muni dreifast hratt og auðveldlega um vefi líkamans. Pau munu væntanlega setjast að í fituríkum vefjum og líffærum eins og lifur, lungum og heila. Alyktanir: Próuð hefur verið aðferð lil að greina lyfjaefnin alnumycín og heliomycín í lyfjaformum og verið er að fullgera greiningaraðferðir fyrir þessi efni úr blóði. Niðurstöður benda til að fituleysar verði notaðir í til að búa til fljótandi lyfjaform. V 76 Bakteríuhemjandi efni úr krækilyngi Ragnheiður Gunnarsdóttir', Ingibjörg Hilmarsdóttir2, Helga Erlendsdóttir2, Rannveig Thoroddsen’, Kristín Ingólfsdóttir1 ‘Lyfjafræðideild HÍ, 2sýklafræðideild Rannsóknastofnunar Landspítala Bar- ónsstíg, ’Líffræðistofnun HI kríng@hi,is Inngangur: Krækilyng (Empetrum nigrum) er ein af fáum nytja- plöntum sem vex villt á íslandi. Innihaldsefni plöntunnar, önnur en vítamín, hafa ekki verið skilgreind. Markmið verkefnisins var að rannsaka annars stigs efni (secondary metabolites) laufa og berja krækilyngs og skima fyrir bakteríu- og sveppahemjandi virkni in vitro. Efniviður og aðferðir: Krækilyng flokkast í tvær deilitegundir, ssp. hermaphroditum og ssp. nigrum, og var sú fyrrnefnda efni- viður rannsóknarinnar. Útdrættir voru gerðir úr frostþurrkuðum berjum og laufum og fornæmispróf síðan gerð á útdráttum til að meta bakteríu- og sveppahemjandi virkni gegn fimrn sjúkdóms- valdandi örverutegundum með þynningarprófum í fljótandi æti. Lífvirknileidd einangrun (bioguided fractionation) var notuð til að staðsetja bakteríuhemjandi efni í útdráttum og til að stýra ein- angrun þeirra. Niðurstöður: Tvö virk efni af flokki tríterpena voru einangruð, annað úr laufi, hitt úr berjum. Efnin voru prófuð fyrir virkni gegn átta örverutegundum (fjórum Gram jákvæðum-, þremur Gram neikvæðum- bakteríum, einum gersvepp) og sýndu mesta virkni gegn Gram jákvæðum bakteríum, þar á meðal methicillín-ónæm- um Staphylococcus aureus (MÓSA). MIC (minimal inhibitory concentration) gildi voru á bilinu 8-32 pg/ml. Blanda 5 náskyldra litarefna af flokki anthocyanína var jafnframt einangruð úr kræki- berjum, sem og þriðja efnið af tríterpen flokki sem ekki sýndi virkni. Alyktanir: Frumrannsóknir á innihaldsefnum íslensks krækilyngs hafa sýnt fram á tilvist bakteríuhemjandi efna. Þessi efni hafa ekki verið greind í erlendu krækilyngi, og væri áhugavert að rannsaka deilitegundina ssp. nigrum sem einnig vex á Islandi. Niðurstöður gefa jafnframt tilefni til frekari rannsókna á sambandi milli efna- byggingar og örveruhemjandi virkni tríterpena. V 77 Lyfjavirk efni úr sjávardýrum Sandra Steingrímsdóttir1, Jörundur Svavarsson2, Helga M. Ögmundsdóttir’, Gordon M. Cragg4, Kristín Ingólfsdóttir1 'Lyfjafræöideild HÍ, 2Líffræðistofnun HÍ, ’læknadeild HÍ, ’Natural Products Branch, Division of Cancer Treatment and Diagnosis, National Cancer Institute, Bethesda, Maryland, USA kring@hi.is Inngangur: Prátt fyrir árangur við leit að lyfjavirkum efnum úr sjávarlífverum frá suðlægum hafsvæðum, hafa lífverur frá norð- lægum slóðum lítið verið skoðaðar. Innan íslenskrar efnahagslög- sögu lifa að líkindum 6000-8000 tegundir sjávardýra. Verkefnið felst í leit að lyfjavirkum efnum í íslenskum sjávardýrum, svo sem svömpum, holdýrum, lindýrum, liðormum, krabbadýrum, mosa- dýrum, skrápdýrum og fiskum. Markmið er jafnframt að afla upp- lýsinga um efnafræðieiginleika innihaldsefna sjávardýranna. Efniviður og aðferðir: Prjátíu og fimm tegundum sjávardýra var safnað í fjöru, við köfun og við veiðar á dragnótabátum við strendur Islands. Skeljar voru fjarlægðar af lindýrunum og útdrættir (extracts) unnir úr hökkuðum vef þeirra og vaxtarhindr- andi virkni þeirra á eftirfarandi illkynja frumulínur mæld hjá bandarísku krabbameinsstofnuninni (National Cancer Institute); lungnakrabbameinsfrumur (NCI-H460), miðtaugakerfiskrabba- meinsfrumur (SF-268) og brjóstakrabbameinsfrumur (MCF-7). SPE (solid phase extraction) súluskiljun var notuð við einangrun virkra efna. Við lífvirknileidda einangrun (bioguided fractiona- tion) var notuð lungnakrabbameinslínan NCI-N917. Niðurstöður: Niðurstöður sýndu marktæka og mjög áhugaverða virkni hjá fjórum tegundum sjávardýra, þar á meðal sniglinum klettadoppu (Littorina saxatilis), en útdráttur úr sniglinum sýndi öfluga virkni gegn lungnakrabbameinsfrumulínunni. Tekist hefur að staðsetja virka efnið með því að skilja virka útdráttinn í þrjá þætti, en einn þeirra sýnir vaxtarhindrandi virkni gegn lungna- krabbameinsfrumum í rækt. Alyktanir: Fullhreinsun á virku efni fer nú fram, og eru næstu skref að staðfesta hreinleika, sameindabyggingu og virkni. Niðurstöður gefa tilefni til frekari rannsókna á lyfjavirkum efnum í íslenskum sjávarlífverum. V 78 Einangrun (+)- og (-)-úsnínsýru úr íslenskum fléttum og virkniprófanir gegn ýmsum örverum W. Peter Holbrook'. Þórey V. Þorgeirsdóttir2, Kristín Ingólfsdóttir2 'Tannlæknadeild HÍ, ’lyfjafræðideild HÍ kring@hi.is Inngangur: Úsnínsýra er algengt fléttuefni og finnst í sumum tegundum sem (+)-handhverfan (enantiomer), en í öðrum sem (-)-handhverfan. Úsnínsýra hefur sýnt áhugaverða lífvirkni og í sumum tilfellum hefur verið munur á virkni handhverfanna. Tilgangur rannsóknarinnar var þríþættur; i) skima hemjandi virkni handhverfanna in vitro gegn örverum, sérstaklega örverum úr munnholi, ii) kanna hvort munur sé á virkni handhverfanna, iii) kanna hvort munur sé á virkni þegar næmispróf eru gerð í fljótandi örverurækt annars vegar og örveruþekjurækt hins vegar. Örverur í munni til dæmis vaxa yfirleitt á formi örveruþekju. 98 Læknablaðið/fylgirit 50 2004/90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.