Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 9
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 9
svarendur könnunarinnar sérstaklega um aðhaldið sem fylgir því
að öll notkun kortanna sést strax á færslusíðu MasterCard. Einnig
var kostnaðarvitund korthafa meiri að þeirra mati.
Stöðug þróun og nýjungar hjá MasterCard
Fyrirtækjalausnir MasterCard eru stöðugt að þróa lausnir, þjón-
ustur og kort fyrir fyrirtæki og á teikniborðinu eru mörg spennandi
verkefni sem munu brátt líta dagsins ljós.
Meðal nýjunga í þjónustuúrvali okkar er að nú er hægt að velja um
að gera kortareikningana upp í USD, EUR eða GBP sem minnkar
gengisáhættu hjá fyrirtækjum með tekjur eða uppgjör í erlendri
mynt. Einnig bjóðum við viðskiptavinum upp á að annast inn-
heimtu á virðisaukaskatti af ferða- og ráðstefnukostnaði erlendis í
svokallaðri VAT-þjónustu.
Hvaða lausn hentar þér?
Mismunandi er hvaða lausn hentar hverju fyrirtæki, en sérfræð-
ingar Kreditkorts hf. aðstoða þig við að finna bestu lausnina. Hægt
er að fá kynningu, ráðgjöf eða kennslu á færslusíðuna með því að
hafa samband í síma 550-1556 eða senda okkur tölvupóst á net-
fangið fyrirtaeki@kreditkort.is.
UMMÆLI NOTENDA
HAGRÆÐING: „Aðalhagræðingin er í fyrirfram lyklun sem
skilar sér í fljótvirkari bókun, sparar heilmiklar merkingar
og skráningar. Erum með matarinnkaup, flugmiða, vörur
sem keyptar eru af netinu t.d. námskeið og bækur, og
svo orkureikningana.“
Ólafía G. Kristmundsdóttir, forsætisráðuneytið.
DREIFÐARI INNKAUP: „Til að hafa full not af kortunum
verð ég að láta allar deildir, sem þurfa að kaupa fyrir verk-
lega kennslu, hafa kort. Ein manneskja getur alls ekki
haft yfirsýn yfir hvað þarf til hinna mismunandi greina. Nú
sér hver um sitt og ég veit alltaf hver er að kaupa hvað
þar sem það kemur skráð frá Kreditkortum.“
Magnea K. Sigurðardóttir, fjármálastjóri FB.
BOÐGREIÐSLUR: „Boðgreiðslur eru dásamlegar. Raf-
magnsreikningarnir alltaf á eindaga en ég lenti oft í stríði
við OR því að þeir sendu reikninga með svo stuttum
greiðslufresti en kerfið þeirra bauð ekki upp á rýmri
greiðslufrest. Er líka með símann, RÚV og fleiri aðila. Vil
gjarnan bæta við boðgreiðslum.“
Svava Loftsdóttir, Menntaskólinn við Sund.
Hvaða lausn hentar þínu fyrirtæki?
Ármúla 28-30 - 108 Reykjavík
Sími: 550 1500 - Fax: 550 1515
Netfang: kreditkort@kreditkort.is
Netsíða: www.kreditkort.is
Innkaupakort er rekstrarkort sem er hluti af heildstæðu
innkaupakerfi MasterCard. Kortið einfaldar ferla við innkaup
og sparar bæði tíma og vinnu um leið og það stórbætir yfirsýn
yfir rekstur og innkaup.
Gyða Gunnarsdóttir, sérfræðingur í fyrirtækjalausnum.