Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
„Fyrsta markmiðið er að hætta að reka
RÚV með tapi og þegar því er náð munu
eigendurnir, almenningur, fá arðinn
greiddan út í formi bættrar dagskrár.“
14. Hvaða kostnaður er það helst hjá
RÚV sem skorinn yrði í burtu með hlutafé-
lagsvæðingunni?
„Það er erfitt að taka einstaka þætti út úr
heildarmyndinni. Reksturinn allur verður
skilvirkari.“
15. En gengur fjárhagsdæmið upp hjá
hlutafélaginu RÚV ?
„Það er beinlínis gert ráð fyrir að RÚV
verði ekki betur sett fjárhagslega með
nýjum lögum en þeim gömlu - en heldur
ekki verr sett. Sömuleiðis liggur fyrir sú
yfirlýsing stjórnvalda að eiginfjárhlutfall
hins nýja félags verði 10 prósent. Þetta er
ákvörðun stjórnvalda og henni verður að
una þótt ég hefði auðvitað kosið sterkari
upphafsstöðu.“
16. Finnst þér ekki
skiljanlegt að helsta
keppinaut RÚV, 365
miðlum, þyki súrt í
broti að keppa við
ríkisfyrirtæki eins og
RÚV sem getur sótt fé
í greipar ríkisins þegar
reksturinn stendur
ekki undir sér?
„RÚV hefur verið rekið
með nánast krónísku
tapi undangengin
allmörg ár. Þetta er þó ekki þannig að
ríkið hafi komið og borgað þetta tap rétt
sisona heldur hefur verið gengið á eigið fé
RÚV sem nú er orðið neikvætt. Auk þess
hefur safnast upp skuld við ríkissjóð sem
RÚV verður að greiða með einhverjum
hætti. Keppinautarnir þurfa sem sé ekki
að kvarta yfir því að tapið hafi verið
„ókeypis“.“
17. Hvaða erlenda rík-
issjónvarpsstöð tekur
þú þér til fyrirmyndar
og hvers vegna?
„BBC. Bestir í heim-
inum, enda með stjarn-
fræðilega fjármuni til
ráðstöfunar.“
18. Hyggur þú á
miklar mannabreyt-
ingar innan RÚV eftir að það verður að
hlutafélagi?
„Of snemmt að ræða það.“
Y F I R H E I R S L A – P Á L L M A G N Ú S S O N
„Ég treysti mér vel til
að reka fjölmiðlafyrir-
tæki í samkeppni á
jafnréttisgrundvelli við
365 og hafa betur. Ríkis-
útvarpinu er hins vegar
ekki ætlað það hlutverk.
Þar er eðlismunur á.“
-Hvert er álit þitt á því að gera RÚV að
hlutafélagi?
„Það er alveg sama hvaða form er
notað ef skerða á réttindi starfsmanna
eins og Sigurður Kári Kristjánsson,
formaður menntamálanefndar, Sjálfstæð-
isflokkurinn og Framsóknarflokkurinn
stefna að. Ríkisstarfsmenn virðast vera
vandræðafólk í augum sjálfstæðis- og
framsóknarmanna. Þeir vilja ekki gera
neinar breytingar á frumvarpinu til að
mæta óskum starfsmanna. Við sendum
inn umsögn um frumvarpið og mættum
á fund nefndarinnar en stjórnarflokkarnir
vilja ekki gera neitt. Aðeins Samfylk-
ingin og Vinstri grænir styðja óskir
okkar.“
-Hefur þetta einhverjar breytingar í för
með sér?
„Já, það verða breytingar á réttindum
okkar sem við höfum áunnið okkur í
gegnum tíðina og við verðum á lægri
launum í kjölfarið. Við höfum enga trygg-
ingu fyrir því að við höldum til dæmis
stéttarfélagi okkar, aðild að Lífeyrissjóði
ríkisstarfsmanna og BSRB (þar sem
við erum með sumarhús og önnur rétt-
indi).“
Formaður Starfsmannafélags RÚV:
Réttindi starfsmanna skerðast
Gunnar Magnússon, formaður
starfsmannafélags Ríkisútvarpsins.