Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 31
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 31
D A G B Ó K I N
Fréttatilkynningin sem gefin
var út samhliða þessu vakti tals-
verða athygli, ekki síst vegna
þess hve stutt hún var. Þar
sagði Björgólfur Thor Björgólfs-
son, stjórnarformaður félagsins,
að vegna „umróts á íslenskum
fjármálamarkaði á undanförnum
vikum og óheppilegrar opinberrar
umræðu um málefni stjórnar
félagsins“ hefði stjórn bankans
ákveðið að Magnús yrði aftur
varaformaður.
28. apríl
Hrein eign
Íslendinga
10 milljónir á mann
Það brá mörgum venjulegum
fjölskyldumanninum í brún þegar
Greiningardeild KB banka gaf
það út að hrein eign heimila í
landinu umfram skuldir næmi
tæplega þrjú þúsund milljörðum
króna og sem hlutfall af lands-
framleiðslu hefði það aldrei verið
hærra. Bankinn bætti því við
að þetta þýddi að hrein eign á
hvern Íslending næmi um tíu
milljónum króna að meðaltali og
var haft orð á því í fréttum að
það kæmi mörgum þriggja til fjög-
urra manna ungum fjölskyldum á
óvart. Greiningardeildin tók inn í
útreikninga sína um hreina eign
Íslendinga allan lífeyrissparnað,
hlutabréfaeign, bíla og húsnæði.
Lífeyrissparnaðurinn einn, nemur
röskum þriðjungi eignanna.
Hrein eign Íslendinga er
10 milljónir á mann.
29. apríl
Jón Þórisson til VBS
Jón Þórisson, sem lét mjög
óvænt af störfum sem aðstoðar-
forstjóri Íslandsbanka fyrir einu
og hálfu ári, hefur hafið störf
hjá VBS fjárfestingarbanka sem
áður hét Verðbréfastofan. Jón hóf
störf hjá Samson sl. haust. Hann
kemur núna til starfa hjá VBS
samhliða því að fjárfestingafélag
undir hans forystu hefur keypt
5,5% eignarhlut í VBS fjárfest-
ingabankanum. Jón mun leiða fyr-
irtækja- og viðskiptaþróunarsvið.
30. apríl
Bakkavör kaupir
stórframleiðanda
í eftirréttum
Bakkavör Group hefur keypt einn
stærsta framleiðanda kældra eft-
irrétta í Bretlandi, Laurens Patis-
series Limited. Bakkavör greiddi
17,6 milljarða króna fyrir félagið.
Það var Barclays sem fjármagn-
Magnús Kristinsson varaformaður Straums-Burðaráss.
Sérfræðingum Danske
Bank er tíðrætt um timbur-
menn og gleðskap þegar
þeir ræða um sveiflur í
efnahagslífinu. Allir vita
um áhyggjur þeirra af
íslenska hagkerfinu en
núna hafa þeir gefið út
skýrslu þar sem þeir segja
hættu á að danska hag-
kerfið sé að ofhitna eftir
mjög kröftugt hagvaxt-
arskeið í Danmörku. Sér-
fræðingar bankans segja
að hækkandi olíuverð og
vextir geti bjargað danska
hagkerfinu frá efnahags-
legum timburmönnum, þ.e.
kælt hagkerfið niður. Og
lækki hagvöxtur á alþjóða-
vettvangi og í Danmörku
lítillega muni hættan á
ofhitnun hverfa af sjálfu
sér.
2. maí
MEÐ TIMBURMENN Á HEILANUM
Lars Cristiansen,
hagfræðingur hjá
Danske Bank.
Hann virðist vera
með timburmenn
á heilanum.