Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
H
ann er frumkvöðull og baráttumaður.
Þannig verður Ólafi Sigurvinssyni best
lýst. Hann lenti í alvarlegu slysi þegar
hann var nítján ára og lét ekki deigan
síga heldur ákvað upp úr því að drífa sig
í tölvunarfræði. Tölvur voru eitthvað fyrir hann. Núna
er hann einn þriggja eigenda hugbúnaðarfyrirtækisins
MerkurPoint, sem sérhæfir sig í verslunar- og afgreiðslu-
kerfum, og er með sextán starfsmenn í vinnu, þar af átta
í Svíþjóð.
Ólafur hefur síðastliðin fimmtán ár unnið á Íslandi, í
Noregi, Danmörku, Bretlandi, Bandaríkjunum, Svíþjóð
og Luxemburg. Hann segist hafa fært sig núna eingöngu
yfir í að þróa verslunarkerfi fyrir smásölu og þjónustu-
fyrirtæki. Áhugi hans á verslunarkerfum kviknaði þegar
hann vann stórt verkefni fyrir Baug Group í Svíþjóð
fyrir nokkrum árum.
Eigendur MerkurPoint
Meðeigendur Ólafs að MerkurPoint eru þeir Magnús
Antonsson og Yngvi Þór Jóhannsson. Fyrirtækið fram-
leiðir verslunarkerfið MerkurPos sem Yngvi bjó til frá
grunni fyrir um sex árum síðan ásamt eiginkonu sinni,
Ingu Dögg Ólafsdóttur.
„Upphaflega kviknaði hugmyndin að kerfinu þegar
faðir Yngva var að leita að verslunarkerfi fyrir verslun
sína en fann enga heildarlausn fyrir reksturinn. Þá
hófst þróunin á kerfinu sem síðan virkaði svo vel að
þau hjónin ákváðu að selja fleirum afnot af því,“ segir
Ólafur.
„Magnús og ég komum inn í þetta fyrirtæki í mars síð-
astliðnum með aukið fjármagn til að geta farið með fyr-
irtækið í útrás, en ég kynntist kerfinu upphaflega þegar
ég starfaði hjá Tæknivali á síðasta ári. Ég sá að Merkur-
Pos virkaði best af þeim kerfum sem í boði voru og setti
mig því í samband við Yngva með samstarf í huga.“
Þegar er fyrirtækið komið með skrifstofu í Stokk-
hólmi, hún mun annast þjónustu við Norðurlönd, og
ætlunin er að opna skrifstofur víðar í Evrópu í náinni
framtíð. Starfsmenn MerkurPoint eru nú sextán, átta í
Skeifunni 7 og aðrir átta í Stokkhólmi.
Ólafur er 42 ára, fæddist í Hafnarfirði árið 1964 og
bjó þar til sex ára aldurs. „Þá skildu foreldrar mínir og
ég flutti til ömmu minnar á Stað í Reykhólasveit. Þar bjó
ég í þrjú ár og flutti þaðan til föður míns á Stokkseyri.“
Að sögn Ólafs þótti hann fremur óstýrilátur og illvið-
ráðanlegur sem barn enda afskaplega „hugmyndaríkur
og uppátækjasamur“ að mati venslamanna hans. Þeir
eiginleikar hafa fylgt honum að vissu marki síðan, en
hann lærði að beisla þá og beina þeim í annan farveg en
áður og þeir nýtast honum án efa í því frumkvöðlastarfi
sem hann hefur unnið að í gegnum tíðina.
Ólafur stofnaði Islandia Internet árið 1995, meðal
annars ásamt Magnúsi Antonssyni, sem er einnig eig-
andi að MerkurPoint, og Pétri Péturssyni sem er fram-
kvæmdastjóri MerkurPoint í Svíþjóð í dag. Þá má einnig
nefna að Ólafur starfaði fyrir hugbúnaðarfyrirtækið OZ
bæði í Boston og Stokkhólmi.
Hugbúnaðurinn MerkurPos
En við hvað er MerkurPoint að fást? „Það býður upp á
heildarlausnir fyrir fyrirtæki í verslun og þjónustu í sam-
starfi við Tæknival sem leggur til vélbúnaðinn. Hugbún-
aðurinn MerkurPos byggir á einu grunnkerfi en hefur
fjöldann allan af viðbótarkerfum sem eru sérsniðin
fyrir mismunandi svið, t.d. veitingastaði, efnalaugar,
Ólafur Sigurvinsson lenti í alvarlegu slysi á sjó þegar hann var nítján ára.
Þá ákvað hann að fara í tölvunarfræði. Núna er hann einn þriggja eig-
enda hugbúnaðarhússins MerkurPoint sem sérhæfir sig í verslunar- og
afgreiðslukerfum.
FER SÍNAR EIGIN LEIÐIR
MYND: GEIR ÓLAFSSON
H U G B Ú N A Ð U R