Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
TÆKNIVAL:
Tæknival flutti höfuðstöðvar sínar 24. apríl sl. í glæsilegt húsnæði í Síðumúla 24-26. Húsnæðið er talsvert stærra en fyrra húsnæði í Skeifunni, hentar betur undir frekari vöxt fyrirtækisins og gefur
aukið rými og möguleika til að þjóna viðskiptavinum okkar enn betur,“
segir Halla F. Kristjánsdóttir, markaðsstjóri Tæknivals. Flutningurinn
kemur í kjölfar breytts eignarhalds, en Eignarhaldsfélagið Byr ehf.
keypti Tæknival í mars sl. Framvegis verður lögð áhersla á þjónustu við
fyrirtæki og stofnanir. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að þessar áherslu-
breytingar í rekstrinum eigi eftir að efla Tæknival í framtíðinni.
Verslunin hefur verið seld, hún er nú í eigu Haga og verður áfram í
Skeifunni 17. Þjónusta og verkstæðismóttaka verður áfram á einum stað
í Síðumúla 24-26.
Við eigendaskiptin tók Magnús V. Snædal við sem forstjóri fyrir-
tækisins. Hann er rekstrarfræðingur, sem áður gegndi starfi gæða- og
starfsmannastjóra Þekkingar hf. Að Byr ehf., sem keypti Tæknival,
standa m.a. sömu aðilar og eiga meirihluta í upplýsingatæknifélaginu
Þekkingu.
Söludeild með fullkominn sýningarsal Nýja húsnæði Tæknivals
hf. er í Síðumúla 24-26. Á annarri hæð er verkstæðismóttaka og lager
og á þriðju hæð sölu- og þjónustusvið ásamt fjármálasviði. Þar verður
einnig stórglæsilegur sýningarsalur þar sem hægt verður að skoða vörur
og lausnir sem Tæknival hefur upp á að bjóða og þar geta
viðskiptavinir skoðað vörurnar uppsettar. Á fjórðu hæð er
mötuneyti og aðstaða fyrir starfsfólk ásamt möguleikum til
að halda kynningar og námskeið.
„Meðal vörumerkja sem Tæknival og Tæknival - verslun
bjóða eru Fujitsu Siemens, EMC, Xerox, Toshiba, Microsoft,
Epson og Logitech, allt viðurkennd gæðamerki í upplýsinga-
tækni og með þeim stærstu í heimi, hvert á sínu sviði. Fujitsu
Siemens er eina vörumerkið á íslenskum markaði sem fram-
leiðir tölvur sem hlotið hafa umhverfismerkið Svaninn en að
auki má nefna að Fujitsu Siemens fartölvur eru með einna lægsta
bilanatíði sem um getur samkvæmt PC Magazine,“ segir Halla.
„Við munum nú sem fyrr leggja áherslu á að bjóða upp á persónulega
og góða þjónustu við núverandi og framtíðarviðskiptavini. Tæknival
státar af um 50 manna starfsliði, góðu og reyndu starfsfólki sem sumt
hefur starfað hjá fyrirtækinu í yfir 10 ár. Byggt verður á því trausti sem
fyrirtækið nýtur á markaðnum og haldið áfram að efla þjónustu við
fyrirtæki og stofnanir. Stefnan og markmiðið númer eitt er að efla og
styrkja fyrirtækið.
Ný ásýnd Tæknival mun líka á næstu vikum fá nýja ásýnd þar sem
við ætlum að færa okkur aftur yfir í bláa litinn sem svo margir þekkja
okkur af, og höfum við einungis fært hann í nútímalegra horf. Tæknival
- verslun í Skeifunni mun halda appelsínugula litnum áfram á lofti og
höfða til neytenda, en „business-hlutinn“ í Síðumúlanum verður blár,“
segir Halla og brosir sínu blíðasta.
Tæknival flytur
Halla S. Kristjánsdóttir
er markaðsstjóri hjá
Tæknivali.
Tæknival – verslun mun áfram vera í Skeifunni 17.
Tæknival mun leggja
áherslu á að þjóna fyrir-
tækjum og stofnunum
með heildarlausnum á
tölvubúnaði ásamt við-
gerðar- og netþjónustu.