Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
þeim fyrir í krukkunni. Þegar
krukkan var orðin full og ekki
hægt að koma fleiri steinum í
hana spurði hann: „Er krukkan
full?“ Nemendurnir svöruðu:
„Já.“
„Jæja?“ sagði hann. Hann
teygði sig undir borðið og tók
upp fötu með möl. Síðan sturt-
aði hann dálitlu af möl í krukk-
una og hristi hana um leið, sem
orsakaði það að mölin komst
niður í holrýmin á milli stóru
steinanna. Svo spurði hann
hópinn aftur: „Er krukkan full?“
Í þetta sinn grunaði nemendur
hvað hann var að fara. „Senni-
lega ekki,“ sagði einn þeirra.
„Gott,“ svaraði sérfræðing-
urinn. Hann teygði sig aftur
undur borðið og tók upp fötu
af sandi. Hann hellti úr henni í
krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin
sem eftir voru milli malarinnar og stóru
steinanna. Enn spurði hann: „Er krukkan
full?“ „NEI!“ sögðu nemendurnir. Aftur
svaraði hann: „Gott!“ Því næst tók hann
könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til
hún var alveg full.
Svo leit hann á bekkinn og spurði: „Hver
er tilgangur þessarar sýnikennslu?“ Einn
uppveðraður nemandi rétti upp hönd og
sagði: „Þú ert að reyna að sýna fram á að
það er sama hversu full dagskráin hjá þér
er, það er alltaf hægt að bæta fleiri verk-
efnum við ef þú virkilega reynir!“
„Nei,“ sagði sérfræðingurinn. „Það er
ekki það sem þetta snýst um. Ég er að
reyna að sýna fram á það að ef þú setur
ekki stóru steinana í krukkuna fyrst, þá
kemur þú þeim aldrei fyrir.“
Síðan segir Ingrid: „Hverjir eru „stóru
steinarnir“ í lífi þínu? Börnin? Ástvinir
þínir? Námið? Áhugamálin? Verðugt mál-
efni? Að gera það sem þér þykir skemmt-
ilegt? Tími fyrir sjálfan þig? Heilsan? Mak-
inn? Ef þú setur þessa STÓRU STEINA
ekki í krukkuna fyrst þá muntu aldrei
koma þeim fyrir. Ef þú veltir þér upp úr
litlu hlutunum fyllirðu líf þitt með atriðum
sem skipta í raun ekki máli.
Um Parkinsons-lögmálið í tímastjórnun
segir Ingrid: „Flestir eru á því að það sé
erfiðara að stjórna tímanum þegar lítið
er að gera.“ Síðan segir hún frá lögmáli
Parkisons sem gengur út á „að við eyðum í
verkefni þeim tíma sem við höfum, en ekki
þeim tíma sem verkefnið tekur. Verkefni
fylla upp í tímann. Ef það er bara eitt verk-
efni sem á að ljúka við í dag þá erum við
allan daginn að því.“
Næsti kafli í bókinni er um markmiðs-
setningu og áætlanagerð og er ég mjög
hrifinn af þessum kafla. Hann er sérlega
gagnlegur. Ég ætla samt ekki að fara mikið
frekar út í hann hérna, heldur leyfa ykkur
að eiga hann algerlega inni þegar þið lesið
bókina.
Þó kemst ég ekki hjá að vísa í nokkrar
línur í þessum kafla um fólk sem setur sér
ekki markmið, en það eru jú flestir, og segj-
ast „bíða eftir morgundeginum“. Þessi saga
snýr auðvitað líka að því hvort við séum
hamingjusöm.
„Í einni rannsókn spurði sálfræðingur
þrjú þúsund einstaklinga hvað þeir lifðu
fyrir. Flestir sögðust bara njóta dagsins
í dag og bíða eftir einhverju - því að fara
á eftirlaun, verða rík, vinna í lottóinu, að
börnin færu að heiman. Flestir voru að
bíða eftir morgundeginum, en gleymdu
því að allt sem við höfum er dagurinn í dag
því að gærdagurinn er farinn og morgun-
dagurinn kemur kannski aldrei.“
Það er fróðleg lesning og mikilvæg þegar
Ingrid sýnir okkur með dæmum hvernig við
eigum að setja okkur markmið. Hún setur
þetta í nokkur þrep og er langt síðan ég hef
séð þetta gert eins vel og skilmerkilega - og
í jafn stuttu máli.
Í kaflanum Að takast á við ytri tíma-
þjófa er af mörgum gagnlegum ráðum að
taka. Hún fjallar nokkuð um símavenjur
og hvað við getum gert þegar hringt er í
okkur og eins hvað við getum gert þegar
við hringjum - sem og hvernig við eigum að
bregðast við þegar við fáum óvæntan gest
til okkar.
SÍMAVENJUR SEM
GETA SÓAÐ TÍMA OKKAR:
• Of mikið spjall um daginn og veginn.
• Undirbúningnum er ábótavant.
• Óskýr samskipti.
• Að svara símtölum þegar verið er að
einbeita sér að mikilvægu verkefni.
• Að beita ekki virkri hlustun.
Þá er Ingrid með stórskemmtilegar
pælingar um opið vinnurými sem núna er
mjög í tísku. Hún ræðir þar á mjög skipu-
lagðan hátt um galla opins vinnurýmis og
hvað sé til ráða til að draga úr truflunum
vegna opins rýmis á vinnustöðum.
Lokakaflinn í bókinni leynir mjög á sér
en þar leggur Ingrid æfingu fyrir lesendur
og kallast hún „Óskastundin“. Fróðleg
æfing og eins konar próf sem knýr lesand-
ann til að byrja að nýta sér bókina.
Ég hvet alla - hvort sem þeir eru í við-
skiptalífinu eða ekki - til að lesa bókina.
Við fólk, sem er um tvítugt, vil ég segja
þetta: Hvað sjáið þið ykkur vera að gera
um fertugt? Við fólk um fertugt spyr ég:
Hvar sjáið þið ykkur stödd í lífinu um
sextugt? Og ef þið hefðuð hæfileika til að
gegna öllum störfum í heimi - hvaða starf
mynduð þið velja ykkur?
Einfaldar spurningar en svörin eru
flóknari en margur heldur. Lesið bók-
ina.
Bókin Tímastjórnun í starfi og einkalífi er í bókaflokknum
Starfskraftur sem Edda gefur út og er ætlað að stuðla að
aukinni þekkingu og færni starfsfólks.
T Í M A S T J Ó R N U N