Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
KYNNISFERÐIR:
Þ órsmörk hefur löngum verið sá staður á landinu sem flesta hefur dreymt um að heimsækja. Náttúrufegurð er þar einstök og veð-urblíða mikil. Nú hefur enn einn demantur bæst í þetta djásn,
Þórslaug í Húsadal. Kynnisferðir eru með gisti- og frístundaaðstöðu í
Húsadal í Þórsmörk og eftir að þar fannst heitt vatn var hægt að bæta
við heitri laug sem dregur ferðalanginn til sín allan ársins hring.
Kynnisferðir byggja á sterkum stoðum. Fyrsta má nefna hátt í tvo
tugi dagsferða sem boðið er upp á og farnar eru frá Reykjavík, flestar
þeirra alla daga ársins. Gullni hringurinn er ein þessara ferða, sígild ferð
sem alltaf vekur jafnmikla athygli og ánægju erlendra ferðamanna sem á
einum degi fá tækifæri til að kynnast Þingvöllum, Gullfossi og Geysi.
Flugrútan er sterk stoð undir rekstri Kynnisferða. Hún fer milli
Reykjavíkur og Keflavíkur í tengslum við allt áætlunar- og leiguflug.
Farið er frá Umferðarmiðstöðinni samkvæmt áætlun sem miðast við
millilandaflug. Viðkoma er í Garðabæ og Hafnarfirði sé þess óskað.
Ekki má gleyma rekstri Umferðarmiðstöðvarinnar þar sem allar ferðir
Kynnisferða hefjast og enda, en auk þess eru ferðamenn sóttir á hin
ýmsu hótel og gistihús í borginni áður en lagt er upp í ferðir um borg-
ina og út á land.
Þórslaug er frábær viðbót Fjórða og svo sannarlega ekki þýðing-
arminnsta stoðin er rekstur gisti- og frístundaaðstöðu í Húsadal í Þórs-
mörk þar sem stöðugt er verið að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn. Nýjasta
viðbótin er Þórslaug sem nefnd var hér í byrjun. Hún gleður þreyttan
göngumann sem farið hefur í gönguferðir í nágrenninu eða er kominn
lengra að, sem og þá sem láta sér nægja að njóta dvalarinnar í Húsadal.
Þar eru átta smáhýsi sem rúma allt að fimm manns hvert, tveir gistiskálar
fyrir samtals um 60 manns í svefnpokaplássi auk skála með 13 tveggja
manna herbergjum. Í smáhýsum og gistiskálum er eldunaraðstaða með
nauðsynlegustu áhöldum og borðbúnaði. Hægt er að leigja smáhýsin og
herbergin sem svefnpokapláss eða með uppbúnum rúmum.
Í Húsadal er veitingahús sem rúmar 120 manns í sæti. Í boði eru
léttar veitingar ásamt léttvíni og bjór. Við hlið veitingahússins er þjón-
ustuhús. Þar getur fólk eldað sjálft auk þess sem í húsinu eru gufubað,
sturtur og salerni. Þá er grill á staðnum til afnota fyrir dvalargesti.
„Bláa lónið er viðkomustaður, ómissandi á dagskrá hvers ferðamanns.
Margir fara þangað beint með rútunni úr Leifsstöð á meðan aðrir enda
Íslandsferðina í lóninu,“ segir Birna Lind Björnsdóttir, sölu- og markaðs-
stjóri Kynnisferða. „Ferðamenn kunna líka vel að meta Hop on - Hop
off ferðirnar með rauða tveggja hæða strætisvagninum sem ekur daglega
um götur borgarinnar yfir sumarmánuðina.“
Starfsemi Kynnisferða,
sem upphaflega voru
stofnaðar 1968, skiptist
í átta svið: Rútuleigu, sér-
leyfisferðir og sérleiðir
um Suður- og Suðaust-
urland, Flugrútuna, dags-
ferðir frá höfuðborginni,
reksturinn í Þórsmörk,
Umferðarmiðstöðina,
Gallery Kynnisferðir og
Hop On- Hop Off skoð-
unarferðir um Reykjavík.
rsm rk 1520.139 23.5.2006 16:39 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
5
2
0
.1
3
9
Sími 580-5400 Fax 564-4776 main@re.is www.thorsmork.is
STÓRKOSTLEG FJÖLL, JÖKLAR OG STÓRFLJÓT,
EINSTAKUR GRÓÐUR OG VEÐURSÆLD
ÁÆTLUNARFERÐIR DAGLEGA 1/6-15/9
HÓPFERÐIR EFTIR PÖNTUNUM
ÞAÐ ER ÚTBREIDDUR MISSKILNINGUR AÐ ÞÖRF SÉ Á JEPPA, TJALDI OG NESTI TIL AÐ KOMAST Í ÞESSA
NÁTTÚRUPARADÍS. JAFNVEL HÖRÐUSTU JEPPAMENN SKILJA BÍLANA SÍNA EFTIR OG TAKA RÚTUNA, ÞAÐ MÁ
NÁ HENNI NÆSTUM HVAR SEM ER, VELJIÐ EINFALDLEGA BROTTFARARSTAÐ OG STUND EFTIR LEIÐAKORTI OKKAR.
MARGVÍSLEG ÞJÓNUSTA ER Í BOÐI, ÁÆTLUNARFERÐIR, HÓPFERÐIR, LEIÐSÖGN, GISTING, VEITINGAR OG VEISLUR.
SUMARFERÐIR
FYRIR ÍSLENDINGA
Á EINN FALLEGASTA
STAÐ LANDSINS
FERÐA-OG GISTITILBOÐ Í HÚSADAL Í ÞÓRSMÖRK
Gildir sunnudaga til föstudaga frá 1. júní til 15. september.
Einnig er hægt að hefja ferðina í Reykjavík, bætast þá við 2.500 kr. fyrir fullorðna og 1.300 kr.
fyrir börn. Nánari upplýsingar: Sími í Reykjavík 580 5400 main@re.is www.thorsmork.is
Svefnpokagisting í eina nótt ásamt rútuferð
frá Hvolsvelli og til baka.
Verð: Fullorðinn: 3.750 kr. Barn (5-13 ára): 2.250 kr.
Svefnpokagisting í tvær nætur ásamt rútuferð
frá Hvolsvelli og til baka.
Verð: Fullorðinn: 4.950 kr. Barn (5-13 ára): 2.850 kr.
ÞÓRSMÖRK
Svefnpokagisting í þrjár nætur ásamt rútuferð
frá Hvolsvelli og til baka.
Verð: Fullorðinn: 5.850 kr. Barn (5-13 ára): 3.450 kr.
Svefnpokagisting í fjórar nætur ásamt rútuferð
frá Hvolsvelli og til baka.
Verð: Fullorðinn: 7.250 kr. Barn (5-13 ára): 4.000 kr.
Þórslaug – nýjasta viðbótin í Þórsmörk
Birna Lind Björnsdóttir markaðsstjóri Kynnisferða.
Í Þórslaug í Þórsmörk er hægt að baða sig í heitu vatni.