Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 61
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 61
fyrir okkur er að nýta óhefðbundna miðla
eða nýta miðlana á óhefðbundinn hátt.“
Halldór segir ferska vinda blása um
Icelandair Group, þar séu nýir stjórnendur
og gríðarlegar breytingar hafi orðið á fyrir-
tækinu. Herferðinni í Morgunblaðinu hafi
meðal annars verið ætlað að kynna fyr-
irtækið aftur fyrir Íslendingum; fyrirtæki
sem allir telja sig þekkja og taka sem sjálf-
sögðum hlut í viðskiptum á Íslandi.
„Gegnum tíðina hefur þjóðin elskað að
hata Icelandair,“ segir Halldór og hlær
við. „Fólk hefur litið á það sem stórt og
traust fyrirtæki - en kannski ekki sér-
lega skemmtilegt. Þessi hugsunarháttur er
arfur frá tíma einokunarstimpilsins þótt
gífurleg samkeppni sé á þessum markaði
í dag. Icelandair er lítið fyrirtæki sem býr
við mjög breytt viðskiptaumhverfi og við
viljum koma raunverulegri mynd af fyrir-
tækinu til fólksins.“
Halldór telur að þessi aðferð, að kaupa
upp auglýsingarými heils fjölmiðils, hafi
sannað sig. Fyrst var að velja miðilinn og
síðan að laga efnið að honum. Kynningar-
efnið hefði verið létt og einfalt og átt greiða
leið að lesandanum og segir Halldór að
ekki hafi veitt af því rými sem í boði var.
Blaðið hefði þess vegna mátt vera stærra.
Félagið keypti ekki upp rými í smáaug-
lýsingum. Þó auglýsti félagið þar - á vegum
þess var auglýsing í einkamáladálkinum
þar sem minnt var á rómantískar ferðir til
Parísar.
Í kjölfar herferðarinnar lét fyrirtækið
kanna viðbrögð fólks við henni og þar var
ekki um að villast að hún hafði skilað mjög
góðum árangri. Yfir helmingur allra, sem
spurðir voru, hafði orðið var við þessa her-
ferð og gerði sér grein fyrir aðferðinni.
Að sögn Halldórs eru neytendur venju-
lega ekki mjög jákvæðir í garð auglýsinga
sem þeir verða varir við, en 50% af þeim
sem sáu hana fannst þetta hafa heppnast
vel eða mjög vel. Fólk hefði almennt með-
tekið boðskap efnisins eins og það var lagt
upp.
Uppkaup auglýsingarýmis Moggans
markar nýja byrjun í markaðsmálum
Icelandair Group og e.t.v. fleiri fyrirtækja á
Íslandi. Halldór telur ekki ólíklegt að þjóðin
eigi eftir að sjá eitthvað svipað af þeirra
hálfu aftur. Að minnsta kosti væri stefna
fyrirtækisins að innleiða nýja notkun á fjöl-
miðlum til auglýsinga í framtíðinni.
Íslenska auglýsingastofan
Íslenska auglýsingastofan hafði umsjón
með efninu og að sögn Sigurðar Hjaltalín
markaðsráðgjafa voru uppkaupin á aug-
lýsingarými Morgunblaðsins hugsuð sem
hluti af stærri áætlun. Hann segir að farið
hafi verið með lesandann í ferðalag um
Icelandair Group til að kynna starfsemina
og auglýsingunum hafi verið valinn staður
eftir efni blaðsins, t.d. var Icelandair Cargo
inni í Verinu og efni sem ætlað var yngra
fólki var aftast í blaðinu.
Morgunblaðið alltaf til
í að skoða nýjar hugmyndir
„Bæði lesendur og auglýsendur tóku þess-
ari nýjung vel,“ segir Margrét Kr. Sigurð-
ardóttir, forstöðumaður sölu- og markaðs-
sviðs Morgunblaðsins. „Okkur leist strax
vel á það þegar Icelandair Group leitaði til
okkar með þá hugmynd að kaupa upp allt
auglýsingapláss í blaðinu. Við erum alltaf
til í að skoða nýjar hugmyndir og í þessu
tilfelli var þetta vel framkvæmanlegt og
þess vegna slógum við til. Það var ágætur
aðdragandi að þessari herferð og við fórum
strax að vinna í málinu. Þeir auglýsendur
sem áttu pantað rými þennan dag tóku
þessu vel og voru reiðubúnir að færa sig
til svo það urðu engir árekstrar við aðra
viðskiptavini.“
Margrét segir að þetta hafi verið allt
mjög úthugsað og vel unnið hjá fyrirtæk-
inu. Auglýsingarnar hafi verið hannaðar
með tilliti til þess hvar í blaðinu þær ættu
að vera. „Þær féllu vel að umhverfinu og
þetta var allt til mikils sóma. Við fengum
góð viðbrögð við blaðinu og urðum vör við
áhuga hjá fleirum í kjölfarið. Þessi tilraun
tókst í alla staði vel og það er aldrei að vita
nema það verði framhald seinna.“
A U G L Ý S I N G A M Á L - H E R F E R Ð I C E L A N D A I R G R O U P
Sigurður Hjaltalín og Einar Geir Ingvarsson
á Íslensku auglýsingastofunni.
Halldór Harðarson, forstöðumaður markaðs-
sviðs Icelandair Group.