Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA ICELANDAIR:
F yrirtækjaþjónusta Icelandair hefur hlotið frábærar viðtökur og hátt á fjórða hund-rað fyrirtæki nýta sér hana í tengslum
við pantanir og breytingar á flugmiðum, hót-
elpantanir og bókanir í framhaldsflug erlendis,
að sögn Hans Indriðasonar, deildarstjóra fyr-
irtækjaþjónustunnar, og Örnu Ormarsdóttur,
sölufulltrúa. Auk þeirra tveggja sinnir á annan
tug þrautreyndra þjónustufulltrúa fyrirtækj-
unum og hvert fyrirtæki hefur sinn eigin þjón-
ustufulltrúa.
„Fyrir þremur árum var tekin ákvörðun hjá
Icelandair um að auka þjónustu við íslensk
fyrirtæki. Nú eru útbúnir sérstakir samningar
fyrir hvert fyrirtæki sem þiggur þessa þjónustu
og þegar samningur hefur verið undirritaður
fær fyrirtækið eigin þjónustufulltrúa,“ segir
Hans.
Fyrirtæki sem þiggja þjónustu fyrirtækja-
þjónustunnar þurfa ekki að uppfylla nein
ákveðin skilyrði, t.d. varðandi umfang við-
skiptanna, en fá hins vegar ákveðinn afslátt af
fargjöldum og er afslátturinn greiddur inn á
reikning fyrirtækisins á þriggja mánaða festi.
Hvert fyrirtæki fær auk eigin þjónustufulltrúa
símanúmer og tölvunetfang svo hafa megi
beint samband við þjónustufulltrúann sem
sér um að panta flugfar fyrir þann sem þarf að
ferðast til útlanda, tryggir að viðskiptavinirnir
fái vildarpunkta sína og þekkir auk þess þarfir
og óskir hvers og eins, m.a. vilji menn ávallt
sitja á sama stað í vélinni.
Kunna að meta þjónustufulltrúana
Þau Arna og Hans segja að mönnum
finnist mjög notalegt að þurfa ekki að
hafa neinar áhyggjur, þjónustufulltrúinn
sjái um allt sem gera þarf. Í sérstöku
neyðarnúmeri, sem eingöngu er ætlast
til að hringt sé í í neyðartilfellum, er
hægt að ná sambandi við hann allan sól-
arhringinn ef eitthvað kemur upp á eða
senda tölvupóst og biðja um breytingar
á flugi, t.d. ef fundi seinkar. Þjónustufull-
trúinn kannar hvort ekki sé laust far á
öðrum tíma, bókar það og lætur viðskiptavin-
inn vita. Reynsla og þekking þjónustufulltrú-
anna nýtist mjög vel. Þeir eru vanir að panta og
breyta miðum og vita hvernig best er að koma
mönnum milli staða
á sem fljótastan og
þægilegastan hátt.
„Viðskiptavin-
irnir kunna best
að meta þessa per-
sónulegu þjónustu
og rétt er að taka
fram að vilji
fyrirtæki vera í við-
skiptum hjá ferðaskrif-
stofu þá er það sjálf-
sagt mál. Við gerum
samning við fyrir-
tækið og komum á
tengslum milli þess og
ferðaskrifstofunnar,“
segir Hans og bætir
við að með haustinu
verði kerfi fyrirtækja-
þjónustunnar aukið
og bætt. Hvert fyrirtæki fær ákveðinn kóða
svo að hægt sé að farið inn á netið og fá upp-
lýsingar um ferðafjölda, ferðakostnað, áfanga-
staði, afrit af reikningum og hvað eina sem
snertir ferðir starfsmanna fyrirtækisins. Auk
þess munu menn geta
séð endurgreiðslu-
kerfið og hvað
þeir fá end-
urgreitt frá
Icelandair á
þriggja mán-
aða fresti.
Persónuleg þjónusta nýtur vinsælda
Fyrirtækjaþjónustan
hefur fengið góðar
viðtökur. Hægt er
að hafa samband
við Hans Indriðason
deildarstjóra og Örnu
Ormarsdóttur sölu-
fulltrúa á fyrirtaeki
@icelandair.is.
Hans Indriðason og
Arna Ormarsdóttir hjá
fyrirtækjaþjónustu
Icelandair.
Þjónustu-
fulltrúar að
störfum.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn.
Afsláttur sem býðst á fargjöldum til áfangastaða Icelandair
og sérkjör á tengifargjöldum.
Sveigjanlegri fargjaldaskilmálar.
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
+ Sendu línu á fyrirtaeki@icelandair.is og fáðu nánari upplýsingar.