Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 71
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 71
Ástkona Mellors sagði síðar frá því að hún hefði eingöngu
gert þetta fyrir peningana - en átti reyndar eftir að iðrast þess
biturlega því málið rústaði leikferli hennar og hefur skyggt
á allt líf hennar síðan. Peningarnir urðu því
skammgóður vermir.
Lítill hópur manna, kallaðir „publicists“ á
ensku, sérhæfir sig í að vera umbar þeirra sem
hafa sögu að segja gagnvart fjölmiðlum. Þeir
veita skjólstæðingum sínum ráð um hvernig
þeir eigi að koma fram, hvernig þeir eigi að
hegða sér - og setja upp verð sem þeir taka svo
auðvitað hlut af.
MAX CLIFFORD Sá harðsnúnasti
er Max Clifford, 63 ára og
núorðið jafnfrægur og margir þeirra sem hann
er fulltrúi fyrir. Þeir sem hafa góða sögu að
segja snúa sér fyrst til hans. Það gerði til dæmis
Tracey Temple, ritari Prescotts.
Þegar Clifford var spurður í útvarpsviðtali hvort það væri
rétt að Temple hefði fengið 100 þúsund pund, um 13,5 millj-
ónir íslenskra króna fyrir sögu sína, hnussaði fyrirlitlega í Clif-
ford, talan væri fjarri lagi. „Nei, ekki svo mikið?“ spurði frétta-
maðurinn og honum virtist létt. „Jú, býsna miklu meira,“ var
svarið. Sambýlismaður Temple, sem kom sögunni í fjölmiðla,
virðist hins vegar ekki hafa haft vit á að sækja sér svona þjón-
ustu enda ekkert frést um greiðslur til hans.
Það var áhugavert að sjá að Clifford tók
þarna þátt í að koma höggi á stjórn Verka-
mannaflokksins því hann var stuðningsmaður
þess flokks á síðasta áratug. Clifford lýsti yfir
persónulegu stríði gegn Íhaldsflokknum og
Major því Clifford átti fatlað barn og áleit að
flokkurinn vanrækti slík börn.
Núna getur þó Verkamannaflokkurinn
farið að kvíða því að Clifford lýsti því nýlega
yfir að hann ætlaði að hafa augun á stjórn-
málamönnum, án tillits til flokka, og koma
upp um þá sem ekki hegða sér í samræmi
við opinberar siðareglur. Eins gott fyrir stjórnmálamenn að
passa sig því hjá Clifford starfar hópur fólks sem vinnur við
að rannsaka mál og ábendingar sem þeim berast.
Við nánari athugun er ljóst að það er til eitt nærri óbrigðult
ráð fyrir stjórnmálaflokka til að sleppa við soraleg mál: Í ljósi
þess að stjórnmálakonur lenda næstum undantekningarlaust
aldrei í svona er bara að láta konur fylla öll sæti, jafnt á þingi
sem í ríkisstjórninni! Ekki satt?
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
Frétt Morgunblaðsins frá 2. maí um vanda Tony Blair vegna hneykslismála.
John Prescott,
varaforsætisráð-
herra Bretlands,
missti allt nema
titilinn og kaupið
vegna framhjá-
halds.