Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 67
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 67
teknar hefðu verið upp í Bandaríkjunum og hefðu ekki eins
sveiflukennd áhrif á verðbólguna. Halldór taldi óráðlegt
að taka húsnæðiskostnaðinn algjörlega út úr neysluvísitöl-
unni.
,,Það þurfa allir húsaskjól og ekki væri hægt að færa
fyrir því rök að taka þennan mikilvæga lið út frekar en aðra
þótt hækkun á húsnæðisverði síðustu tvö árin hafi verið ein
af orsökum þess að verðbólgan fór af stað. Það væri hins
vegar betra ef sömu mælistikur væru notaðar í sem flestum
löndum.“
Eins og fyrr kom fram börðust ráðstefnugestir ekki
beinlínis um hljóðnemann. Pacek reyndi tvívegis að hvetja
þá til þess að bera upp spurningar þegar nær dró lokum
umræðnanna. ,,Enn eru nokkrar mínútur eftir,“ sagði hann,
en viðbrögðin voru lítil.
Í seinna skipti gerði erlendur blaðamaður sig líklegan til
þess að spyrja, en þegar í ljós kom að hann var frá pressunni
var beiðni hans hafnað og settist hann hvumsa aftur í stól-
inn sinn. Reglunar voru á hreinu: Blaðamenn voru einungis
áheyrnargestir.
Að lokinni þessari fyrstu alþjóðlegu fjármálaráðstefnu
og hringborðsumræðum Economist Conference á Íslandi
fannst íslensku blaðamönnunum á fundinum sem þeir sætu
uppi með gömul tíðindi og gamlar fréttir - sem iðulega væru
engar fréttir. Vonandi urðu erlendu fréttamennirnir þó ein-
hverju nær eftir ráðstefnuna, jafnvel þótt einn hafi sagt und-
irritaðri að hann hefði alveg verið að því kominn að dotta á
fundinum.
Ef eitthvað má lesa út úr lítilli málgleði ráðstefnugesta og
fáum handauppréttingum þá er ekki að sjá að alvöruóveður
geisi í íslensku efnahagslífi. Og þau eru ekki mörg vindstigin
ef þetta er stormur í vatnsglasi.
Ætli besta veður- og vettvangslýsingin á fundinum á
Hótel Nordica sé ekki einfaldlega: ,,Það lék vindhviða um
vatnsglasið.“ Nema auðvitað að þetta sé lognið á undan
storminum.
R Á Ð S T E F N A T H E E C O N O M I S T
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, Nenad Pacek, forstöðumaður
greiningardeildar tímaritsins The Economist og ráðstefnu-
stjóri, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra við háborðið.
Gagnrýni á ráðstefnuna
Margir furðuðu sig á ýmsu í fyrir-
komulagi ráðstefnu The Economist.
Í fyrsta lagi var hún vel auglýst í
fjölmiðlum líkt og um opna ráðstefnu
væri að ræða en reyndist þó raunar
lokuð almenningi. Í öðru lagi var
þátttökugjaldið með því hæsta sem
heyrst hefur hérlendis. Í þriðja lagi
var aðgangur fjölmiðla að ráðstefn-
unni takmarkaður. Fannst mörgum
sem tilgangur og markmið ráðstefn-
unnar væru óljós.
Jón Hákon Magnússon, fram-
kvæmdastjóri KOM, sem aðstoðaði
ráðstefnudeild The Economist við
framkvæmdina hérlendis, segir að
þetta sé það fyrirkomulag sem
deildin hefur og gildir hvar sem þeir
halda ráðstefnur í heiminum.
Hvers vegna var svona dýrt á ráðstefnuna? ,,Þetta er ekki dýrt.
Ráðstefnan var ætluð stjórnendum stórfyrirtækja og sniðin að þeim.
Það var mikið í boði og kostendur gátu einnig boðið nokkrum
gestum. Þetta verð kann að vera óvanalegt á Íslandi en þetta er
gangverð á sambærilegum ráðstefnum út í heimi. Það er einnig þak
á fjölda þátttakenda sem eykur gæði ráðstefnunnar en fjöldinn fer
ekki yfir 150 hvort sem það er í Reykjavík eða New York.“
Hvað voru margir á ráðstefnunni í Reykjavík? ,,Um 120 manns.“
Hversu stórt hlutfall af þeim voru erlendis frá? ,,Ætli það hafi ekki
verið nær helmingur.“
Hvers vegna var ráðstefnan meira og minna lokuð blaðamönnum?
,,Það eru reglur ráðstefnudeildar The Economist og við fórum eftir
þeim. Þeir telja að menn séu tregari til að tjá sig um innri mál fyr-
irtækja sinna og greina ef allir fundirnir eru opnir. Blaðamenn gátu
hins vegar fengið einkaviðtöl við fyrirlesara í samráði við KOM og
heyrt í ráðstefnugestum í kaffi- og hádegishléi. Forstöðumenn ráð-
stefnudeildarinnar voru mjög ánægður með ráðstefnuna og lýstu yfir
áhuga sínum á að koma hingað aftur. Þeir komu hingað að eigin
frumkvæði og það sýnir að Ísland er farið að skipta máli á alþjóða-
vettvangi.“
Á þessu ári einu hefur ráðstefnudeild The Economist haldið nær
30 ráðstefnur víðs vegar um heiminn með svipuðu sniði og var hér
um viðfangsefni jafnt viðskipta sem stjórnmála. Sem dæmi um
ráðstefnur á þeirra vegum á næstunni má nefna Global Leadership
Series: Driving business innovation sem haldin verður í London 7.
júní nk. Third Business Roundtable with Bosnia and Herzegovina.
Unlocking Bosnia´s business potential í Sarajevo 21. júní og For-
esight 2020: Understanding the long-term business landscape í
Hong Kong þann 23. júní.
Jón Hákon Magnússon,
framkvæmdastjóri KOM,
aðstoðaði ráðstefnudeild
The Economist við fram-
kvæmdina hérlendis.