Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 127
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 127
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, er sælkeri mánaðarins.
Sælkeri mánaðarins
MANGO-KJÚKLINGUR
Margrét Guðmundsdóttir, for-
stjóri Icepharma, er í sauma-
klúbbi og í eitt skiptið var boðið
upp á góðan kjúklingarétt. Hún
fékk uppskriftina sem er eftirfar-
andi:
Mango-kjúklingur, fyrir 4
3-4 kjúklingabringur
nýmalaður pipar
salt
8 msk. mango chutney
3 msk. olía
3 mango-aldin (vel þroskuð)
Hitið ofninn í 200° C. Kryddið
kjúklingabringurnar með salti og
nýmöluðum pipar. Hrærið saman
mango chutney og olíu, smyrjið
báðar hliðar á bringunum með
blöndunni og setjið þær í eld-
fast fat. Það sem eftir er af
blöndunni er hellt yfir bringurnar
eftir að þær eru komnar í fatið.
Breiðið álpappír yfir og steikið í
ofni í 15 mínútur.
Flysjið mango-ávextina og
skerið í teninga.
Takið fatið út og álpappírinn
af. Dreifið mango-ávaxtaten-
ingunum á fatið milli bringubit-
anna og í kring og hrærið í til
að þekja bitana með sósunni.
Setjið aftur í ofn og bakið í
10-15 mínútur eða þangað til
kjúklingurinn er rétt steiktur í
gegn.
Berið fram með grænmet-
issalati og jafnvel soðnum
hrísgrjónum og ekki skemmir
fyrir að borða nýbakað hvítlauks-
brauð og drekka vel kælt hvítvín
með réttinum.
Svo mörg voru þau orð:
„Það er alveg ljóst að verð á mörgum fasteignum mun lækka umtals-
vert, en raunvirði íbúðanna mun líklega lækka um meira en 20%.“
Snjólfur Ólafsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Viðskiptablað Morgunblaðsins, 27. apríl.
„...sá mikli fjöldi sem vill helst starfa við eigin atvinnurekstur er mjög
sterk vísbending um þann ríka og góða frumkvöðlaanda sem fleiri
kannanir hafa jú mælt meðal þjóðarinnar.“
Gústaf Adolf Gústafsson, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs
Samtaka atvinnulífsins. Markaðurinn, 26. apríl.
„Það eru fáir sem hafa viljað taka stöðu með krónunni eins og staðan
er núna, vegna þess að fólk óttast að hún veikist enn frekar. En á
sama tíma veikist hún af því að enginn vill taka stöðu með henni.“
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB.
Viðskiptablað Morgunblaðsins, 20. apríl.
Lítill drengur situr í barnavagni,
horfir til himins og bendir á flug-
vél. Nokkrum árum síðar voru
plastmódel í flugvélalíki aðalá-
hugamál hans og síðar fjarstýrð
módel. Hann fór að fljúga svifflug-
vélum 14 ára gamall og 17 ára
var hann farinn að fljúga litlum
flugvélum. Hann fékk einkaflug-
mannsprófið 19 ára.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri „eigin
viðskipta KB-banka“, er í dag
í viðbótarnámi í fluginu. Hann
stefnir síðar á að fá réttindi sem
þotuflugmaður þótt hann ætli sér
ekki að starfa við flug.
„Flugáhuginn er illvígur vírus;
hann getur legið í dvala en
blossar síðan endurtekið upp.
Hann er ráðandi í augnablikinu.
Annaðhvort er maður með ólækn-
andi flugdellu eða ekki.“
Þorvaldur Lúðvík var í loftinu í
120 klukkustundir í fyrra.
„Í mínum huga er flugvélin
þarfasti þjónninn,“ segir Þor-
valdur sem á í þremur flugvélum.
Hann hefur m.a. farið í fimm
daga hringferð um landið á einni
vélinni með tjald, svefnpoka og
vistir.
„Það fylgir því gríðarlegt frelsi
og afslöppun að fljúga. Besta
tilfinningin er þegar maður getur
sest upp í flugvélina í góðum
félagsskap, frjáls eins og fuglinn,
og símasambandslaus.“
Flug:
FRELSI OG AFSLÖPPUN
„Annaðhvort
er maður
með ólækn-
andi flugdellu
eða ekki.“