Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 76
76 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
SUMARIÐ
R Í K U S T U M E N N N O R E G S
John Fredriksen er ekki ríkasti
maður Noregs. Hann skipti um
ríkisfang í vor en hann er samt
ríkasti Norðmaðurinn samkvæmt
lista norska viðskiptaritsins Kapítal. Eignir
hans eru metnar á jafnvirði um 400 millj-
arða íslenskra króna. Það þýðir að hann er
tvöfalt ríkari en til dæmis Björgólfur Thor
Björgólfsson. Fredriksen er í 10. sæti á
listanum yfir auðugustu menn búsetta í
Englandi. Hús hans í Lundúnum er metið á
jafnvirði fimm milljarða íslenskra króna.
Fredriksen er ómenntaður vinnuþjarkur
og að sögn kunnugra með ótrúlegt fjármála-
vit. Þegar Fredriksen kaupir hlutabréf stíga
bréfin ört í verði vegna þess að margir minni
spámenn ætla að verða ríkir á að gera
alveg eins og hann. Þetta eru svokallaðir
bjöllusauðir og þeir hafa leitt til þess að
gengi bréfa í fyrirtækjum Fredriksens hefur
náð ótrúlegum hæðum í vetur. Fallið hefur
líka verið mikið í vor eftir að bjöllusauðirnir
tóku að óttast hrun í kauphöllinni í Ósló.
Fredriksen veitir aldrei viðtöl og er hálf-
gerður huldumaður - kafbátur. Hann á konu
og tvær dætur en þær mæðgur sjást aldrei
opinberlega. Hann er fæddur árið 1944,
sonur logsuðumanns og alinn upp í Austur-
bænum í Ósló, fjarri hverfum hinna ríku og
fínu í Vesturbænum.
Fredriksen byrjaði fyrir 1980 að nurla
saman fé í útgerð sem hann kallaði
Ettestad Line. Fyrir Norðmenn er nafnið
hlægilegt því við Etterstad í Ósló eru bara
sóðalegustu bílabúðir og partasölur lands-
ins. Nafnið undirstrikar að Fredriksen er
lágstéttarmaður.
Síðar kallaði hann félag sitt Frontline
og það er nú stærsta útgerð olíuskipa í
heiminum með um 70 tankskip. Frontline
var í framlínunni í stríði Íraka og Írana allan
níunda áratug síðustu aldar. Fredriksen tók
þá mikla áhættu og flutti olíu fyrir klerka-
stjórnina í Teheran. Hann fékk viðurnefnið,,-
líftaug klerkanna“ og varð mjög ríkur. Af
siðferðinu fór færri sögum.
Eftir þetta hefur ríkidæmi hans aukist
jafnt og þétt. Auk skipanna á hann miklar
eignir í olíuborpöllum og í laxeldi. Undir lok
síðasta árs var norsku laxeldi að blæða
út. Áður en nokkurn varði hafði Fredriksen
tryggt sér yfirráðin í tveimur stærstu laxeld-
isfyrirtækjunum, Pan Fish og Fjord Seafood,
og með þeim yfirráð yfir fjórðungi af heims-
markaði fyrir eldislax.
Skömmu eftir að Fredriksen keypti rétti
laxeldið út kútnum og nú græðir Fredriksen
á laxinum eins og öllu öðru. Hann langar í
þriðja stóra eldisfyrirtækið, Chermac, en fær
ekki. Ríkið á það og sala ríkisfyrirtækja er
ekki á dagskrá í Noregi.
Olav Thon er nú ríkasti maður
Noregs eftir að John Fredrik-
sen varð Kýpurbúi. Hann
er fæddur árið 1923, yngsti
sonur búenda á bæ nokkrum í Hallingdal
á Upplöndum Noregs. Hann hefur tvö refa-
skinn í skjaldarmerki sínu. Það eru skinnin
sem hann seldi í kreppunni miklu fyrir 600
krónur hvort og myndaði arðurinn startkapít-
alið í því sem nú heitir Olav Thon Gruppen.
Bóndasonurinn Olav Thon á nú jafnvirði
um 170 milljarða íslenskra króna að mati
norska viðskiptaritsins Kapítal.
Thon er enn bóndasonurinn. Hann lifir
spart og er alþýðlegur í framkomu. Á stjórn-
arfundum í fyrirtækinu mega menn þakka
fyrir að fá vínarbrauð. Meiru er ekki hægt
að eyða í óþarfa. En hann er enginn huldu-
maður, öðru nær. Olav Thon brosir við öllum
og heilsar öllum, háum sem lágum, kump-
ánlega.
Eignir Thons eru allar í húsnæði. Hann á
keðju hótela, sem hann kennir við sjálfan
sig, og fjölda verslanamiðstöðva í Noregi og
Svíþjóð. Hann á líka skemmtistaði og skrif-
stofuhúsnæði. Að sögn Kapítal er erfitt að
meta eigur hans því engin veit raunverulegt
söluverðmæti fasteignanna.
Stein Erik Hagen er upphaflega
kaupmaður en hefur selt búðir
sínar og er nú fjárfestir með
mörg járn í eldinum. Hann er
talinn eiga jafnvirði 150 milljarða íslenskra
króna. Mest verðmæti er í stórum eignar-
hlut í fjárfestingarfyrirtækinu Orkla, sem oft
er í fréttum. Orkla á meðal annars Orkla
Media sem er til sölu og rætt hefur verið
um að Dagsbrún á Íslandi gæti keypt. Orkla
á líka meirihluta í Elkem sem á Járnblendi-
verksmiðjuna á Grundartanga.
Stein Erik er harðsnúinn fjáraflamaður.
Viðskiptaritið Kapital segir að hann neyti
jafnan aflsmunar fái hann færi á því. Hann
á fyrir vikið marga óvini, líka meðal meðeig-
enda sinna í Orkla. En hann á líka vini og
þar á meðal Harald Noregskonung.
Odd Reitan er kaupmaður og
bara kaupmaður. Hann erfði
upphaflega litla matvöruverslun
í Þrándheimi og á nú yfir þúsund
búðir, flestar undir nafninu Rema 1000.
Hann er talinn eiga jafnvirði 120 milljarða
íslenskra króna. Ólíkt Stein Erik Hagen er
Odd Reitan vinsæll maður. Hann iðkar alþýð-
legar listir eins og gömlu dansana og hefur
gaman af lúðrasveitartónlist. Honum þykir
vænt um þessa ímynd sína en hins vegar
hefur veldi hans lítið vaxið síðustu ár.
Kjell Inge Rökke kemur á eftir
þessum mönnum í röð auð-
manna. Hann er nú talinn eiga
minnst jafnvirði 100 milljarða
íslenskra króna. Verðmæti eignanna er þó
breytilegt vegna óstöðugleika á gengi hluta-
bréfa í fyrirtækjum hans. Fall hlutabréfa í
kauphöllinni í Ósló í vor hefur komið illa við
Rökke. Hann var mun ríkari í vetur.
Fyrr á öldinni leit út fyrir að Rökke yrði
gjaldþrota en hann hefur náð sér á strik
eftir mikla hagræðingu í rekstri. Núna eru
umsvif Rökkes mest í skipasmíðum. Hann
á skipasmiðjur í Finnlandi, Þýskalandi, Nor-
egi og Bandaríkjunum og hann er stærsti
togaraeigandi í Noregi með 16 skip á sjó að
jafnaði í norskri landhelgi en mörg frystihús
í landi.
Ríkustu menn Noregs