Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUEFNI
daga en Sverrir er líka fljótur að sjá spaugilegu hliðina á sjálfum
sér og þolir vel þegar grínið er á hans kostnað.“
Hnýtir flugur
Í dag segist Sverrir hafa gaman af veiði, sérstaklega stangveiði
sem hann stundar þegar tími gefst til. „Ég prófaði mig aðeins
áfram í skotveiði en hún heillaði mig ekki því mér er almennt
illa við byssur. Mér þótti félagsskapurinn skemmtilegur og
veiðin sem slík en kunni aldrei vel við mig innan um byssurnar
þannig að ég sneri mér að stangveiði í staðinn.“
Sverrir hnýtir sínar flugur sjálfur og segir það mjög róandi iðju.
„Ég hreinlega gleymi stað og stund. Heimurinn minnkar og öll
einbeitingin beinist að flugunni sem ég ert að hnýta hverju sinni.
Þetta er hálfgert jóga.“
Aðspurður um önnur áhugamál segist Sverrir lesa töluvert.
„Lesturinn hjá mér er þrískiptur, í fyrsta lagi hef ég gaman af að
lesa mér til um alls kyns fánýtan fróðleik og skrýtna hluti. Í öðru
lagi les ég fagbækur um viðskipti og síðast en ekki síst hef ég mjög
gaman af góðum spennusögum.“
Sverrir segist hafa mikinn áhuga á viðskiptum og vera ástríðu-
maður á því sviði. „Ég helli mér út í það sem ég tek mér fyrir
hendur og hætti ekki fyrr en ég búinn að klára það. Ég myndi
örugglega vera flokkaður sem „workaholic“ ef út í það er farið.“
Vinir Sverris tala um að hann hafi áhuga og talsvert vit á góðum
vínum, en sé alls ekki drykkjumaður. Þess má geta að foreldrar
Ragnhildar bjuggu í Frakklandi og framleiddu léttvín og segist
Sverrir hafa lært mikið um vín af þeim.
Stofnaði snemma fjölskyldu
Sverrir er mikill fjölskyldumaður. Hann kynntist eiginkonu sinni,
Ragnhildi Önnu Jónsdóttur bókmenntafræðingi, í Þórsmörk um
verslunarmannahelgina 1987. Dóttir þeirra fæddist tveimur árum
seinna og þau stofnuðum snemma heimili. Þau giftu sig í sept-
ember 1995. Sverrir segist hafa unnið mikið á námsárunum og
komið víða við á þeim tíma, hann starfaði m.a. sem fangavörður
í Síðumúlafangelsinu og við Skólavörðustíg. Foreldrar Sverris
störfuðu mikið erlendis og bjuggu ungu hjónin á heimili þeirra á
meðan þau voru í burtu. Ragnhildur hefur frá upphafi starfað við
hlið Sverris að viðskiptum og hún sér um daglegan rekstur Noa
Noa og NEXT.
Ragnhildur segist hafa gaman af því að versla og segir Sverri
ótrúlega þolinmóðan að versla með henni. „Það er hreint stór-
kostlegt hvað hann er yndislegur með það og hvað hann sýnir
því mikinn áhuga. Eftir að Sverrir fór sjálfur út í verslunarrekstur
er hann óþreytandi að spá og spekúlera og eyðir stundum mun
meira tíma í að skoða hlutina en ég og þá líður mér eins og karl-
manninum í sambandinu og sest niður og bíð eftir honum. Hann
er kannski að spá í lýsinguna í versluninni eða eitthvert smáatriði
sem ég sé ekki.“
Að sögn Ragnhildar blossar yfirleitt upp í Sverri áhugi á að
eignast hatt þegar þau fara í frí til sólarlanda og það er alls ekki
sama hvernig hatturinn er. „Hann leggur mikið á sig til að finna
rétta hattinn sem vanalega er einhverskonar stráhattur í Ernest
Hemingway stíl. Eftir það getur hann svo setið tímunum saman í
skugganum með hattinn á höfðinu og lesið.“
Þegar Ragnhildur er spurð hvort Sverrir hafi einhvern kæk
svarar hún hlæjandi: „Hann er með eins konar fótriðu og er oft að
hrista á sér fótinn. Ég held að fótriðan sé tengd því að hugur hans
er sívirkur og að hristingurinn fylgi honum.“
Páll Viggósson segir að þrátt fyrir að þeir hafi umgengist mikið
hafi Sverrir verið mjög dulur með allt sem sneri að tilhugalífinu
með Ragnhildi. „Ég er ekki að segja að hann hafi verið að fela
kærustuna en hann gufaði eiginlega upp á þeim tíma og hellti sér
út í ástarlífið af fullum krafti.“
Skarphéðin Berg, bróðir Sverris, tekur í sama streng, segir
bróður sinn mjög rómantískan og rausnarlegan. „Hann bauð til
dæmis konunni í helgarferð til Akureyrar þegar þau höfðu verið
saman í ár, þrátt fyrir að eiga ekki bót fyrir boruna á sér á þeim
tíma, og leigði litla flugvél til fararinnar.“
Árdegi yfirtekur Dag Group
Sverrir segir helsta verkefni sitt næstu mánuðina vera að sameina
allar verslanirnar undir Árdegi. Í dag eru verslanir Noa Noa og
Next reknar undir merki Árdegis en Sverrir segist stefna að því
að Árdegi yfirtaki Dag Group. Þegar því er lokið mun Árdegi vera
með sautján verslanir á sínum snærum hér á landi auk þess að
eiga fjórðungshlut í Merlin.
„Með því að setja allar verslanirnar undir einn hatt náist fram
töluverð samlegðaráhrif og mjög straumlínulagaður rekstur.“
Aðspurður segir Sverrir engar áætlanir um að setja Árdegi á
markað að svo stöddu en að hann telji að það vanti samt tilfinn-
anlega öflugt smásölufyrirtæki í Kauphöllina. „Ég sé fyrir mér
mikla möguleika í smásölu hér heima en mér þykir Skandínavía
líka spennandi markaðssvæði og við höfum fullan hug á að halda
áfram að byggja upp fyrirtækið næstu árin.“
������������������������
��������������������������������� �����������
���������
��������������������������������������������
�������������������������������������������
��������������� ���� ������� ���
�����������
�����������
������������������