Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2006, Side 50

Frjáls verslun - 01.04.2006, Side 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 Í S L E N S K I R S T J Ó R N E N D U R Í A U G U M N O R Ð U R L A N D A B Ú A Íslendingar eru almennt vanir lengri vinnudegi en tíðkast á Norðurlöndum og íslenskir stjórnendur óvanir sterkum ítökum verkalýðsfélaga. Því ber við að afstaðan gagnvart starfsfólkinu stangist á við það sem þeir þekkja að heiman. Sænskur stjórnandi hafði á orði að íslenskir stjórnendur væru „mjög kröfuharðir á starfsfólkið og gleyma því gjarnan að við hér getum ekki pressað starfsfólkið á sama hátt og virðist hægt á Íslandi“. Hversu íslensk eru íslensk fyrirtæki? Íslenskum stjórnendum finnst almennt ekki að fyrirtækin sem hafa haslað sér völl erlendis séu sérlega íslensk lengur. „Ég held við séum að renna okkar skeið í þessari útrás sem íslensk fyrir- tæki,“ sagði íslenskur stjórnandi. „Útrásin er ekki lengur leidd af lokuðum hópi Íslendinga.“ Miðað við viðhorf útlendinga er þetta þó óskhyggja fremur en lýsing á raunveruleikanum. Erlendum stjórnendum finnst þvert á móti að fyrirtækin séu mjög íslensk og mjög lokuð. „Allir í innsta hringnum eru íslenskir og það er skiljanlegt. En það má auðveldlega gagnrýna svona þrönga hópa. Hingað til hefur þetta auðvitað gengið vel, en fyrr eða síðar verður að opna hópinn, taka útlendinga inn í yfir- stjórnina, því að nauðsynlegt er að hrista upp í svona einsleitum hópi.“ Sænskur stjórnandi hafði á orði að það yrði að hleypa inn alþjóðlegum vindum, „hvort sem það er gert með því að færa höf- uðstöðvarnar, taka inn útlendinga í stjórnunarteymið eða hvort tveggja.“ Flestir útlendinganna nefna að íslensku eigendurnir virðist, þrátt fyrir að vera lærdómsfúsir, hrærast í lokuðum hópi landa sinna. Að hluta til sé skýringin sú að fyrirtækin séu enn á útþenslu- og hraðvaxtarskeiði sem mótist af íslenskum frumkvöðlaanda. Önnur sjónarmið og fjölbreyttari þurfa þó að komast að - og þá er það skýr skoðun flestra erlendu viðmælendanna að slíkt þurfi að koma annars staðar að en frá Íslandi. „Meðan fyrirtækin eru svona alíslensk þá verða þau alltaf stimpluð sem íslensk og hætta á að þau verði ekki nógu alþjóðlega sinnuð,“ benti norskur stjórn- andi á. Ör vöxtur er iðulega nefndur sem áhættuþáttur í íslenskum fyrirtækjum - af því menn sjá þar vaxtartölur sem eru nokkuð ein- stakar í norrænu (og reyndar víðara!) samhengi. Hættan í hröðum vexti er einnig þekkingarlegs eðlis: „Hættan er að fyrirtækið vaxi hraðar en hæfileikarnir. Þó stjórnendurnir séu góðir á Íslandi þá eru þeir kannski ekki með réttu hæfnina til að starfa í alþjóðlegu fyrirtæki,“ sagði norskur stjórnandi. Margir íslensku stjórnendanna eru sér meðvitaðir um að hæfi- leikar íslenskra fyrirtækja liggi fremur í að vaxa og þenjast út og Frá aðalfundi Útflutningsráðs.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.