Frjáls verslun - 01.04.2006, Síða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
FOSSHÓTEL:
F osshótel halda upp á 10 ára afmæli í ár. Fyrirtækið er með tvö vörumerki á sinni könnu, Fosshótel, sem eru 12 hótel í
kringum landið, og Inns of Iceland sem eru
tvö gistiheimili í Reykjavík. Fyrsta Fosshótelið
var Fosshótel Lind í Reykjavík en nú eru þrjú
Fosshótel í höfuðborginni auk Inns of Iceland
gistiheimilanna tveggja. Utan Reykjavíkur eru
níu Fosshótel sem öll eru nálægt helstu nátt-
úruperlum landsins og nærri hringveginum.
Stefnt er að því að Fosshótelin teygi anga
sína inn í menningartengda ferðaþjónustu
með því að gera hvert hótel að svokölluðu
þemahóteli.
Framkvæmdastjóri Fosshótela er Renato
Grünenfelder frá Sviss. Hann segir að uppruni
sinn hafi vissulega áhrif á rekstur hótelanna.
„Markaðssetningin fer að miklum hluta fram
erlendis og miðast við þarfir og áhuga erlendra
ferðamanna. Hins vegar hefur verið mikill
kraftur í markaðsstarfi okkar innanlands að
undanförnu og þess má geta að nýr íslenskur
bæklingur hefur litið dagsins ljós. Á Fosshót-
elunum 12 eru veitingastaðir og öll hótelin
bjóða upp á herbergi með baði og morgun-
verði og á nokkrum hótelum eru einnig her-
bergi án baðs. Herbergin á Inns of Iceland
gistihúsunum í Reykjavík eru baðlaus og þar
er ekki veitingarekstur.“
Þemahótel með fjölbreytt markmið „Rekstur
Fosshótela hefur blómstrað síðustu fjögur ár
og við höfum getað lagt í fjárfestingar og
endurbætur á hótelhúsnæðinu. Þar við bætist
að við ætlum nú að fara að leggja áherslu á
menningartengda ferðaþjónustu í auknu mæli.
Okkar fyrsta þemahótel er Fosshótel Reykholt
í Borgarfirði. Þar er lögð áhersla á goðafræði,
íslenskar bókmenntir og klassíska tónlist. Á
hótelinu var jafnframt verið að opna þrjá
heilsubrunna undir greinum trésins Yggdrasils
og heilsusetur þar sem gyðjan Iðunn með eplin
vakir yfir gestum og heldur þeim síungum,
eins og segir í goðafræðinni. Á Fosshóteli Húsa-
vík er verið að fjölga herbergjum og byrjað er
að setja þar upp hvalaþema. Stefnt er að því að
á Fosshóteli Hallormsstað verði skógarþema,
hreindýraþema á Fosshóteli Valaskjálf og jökla-
þema á Fosshóteli Vatnajökli. Ætlunin er að öll
Fosshótel verði þematengd árið 2008.“
Markaðssetning Fosshótela miðar að
því að ferðamenn leiti fyrst að áhugaverðu
umhverfi og velji síðan hótelið og byggist því
öll kynningin á umhverfi Fosshótelanna og
náttúruperlunum í nágrenni þeirra. Einnig er
fólk upplýst um hvað, hvenær og hvar sjá megi
ýmislegt eftirsóknarvert. Allt þetta og miklu
meira má finna á heimasíðu Fosshótela, www.
fosshotel.is Þar má oftar en ekki finna frábær
tilboð og hægt er að bóka herbergi á öllum
Fosshótelunum beint af síðunni. Vingjarnleiki
og góð þjónustu er alls staðar í fyrirrúmi á
Fosshótelunum!
Öll Fosshótelin verða þemahótel
Niðurstöður þjón-
ustukannana árið 2005
sýna að 96,5% gesta
gáfu Fosshótelum ágæt-
iseinkunn fyrir vingjarn-
legt viðmót og 93,7%
sögðu dvölina á Fosshót-
elum hafa verið mjög
ánægjulega.
Snorralaug í Reykholti.
Renato
Grünenfelder
framkvæmda-
stjóri Fosshótela.
Fosshótel - fánaborg.Drangey við sólarlag