Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 112

Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 112
112 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 ICELANDAIR HOTELS: F lugleiðahótel starfrækja alls 23 hótel undir tveimur vörumerkjum: Icelandair hótelin átta, sem öll eru þriggja og fjögurra stjarna og taka á móti gestum allan ársins hring, og Edduhótelin, sumarhót- elin 15, sem eru dreifð um allt land. Þau eru tveggja og þriggja stjarna. Allt eru þetta vinsælir gististaðir einstaklinga og hópa, jafnt innlendra sem erlendra, sem kunna að meta góða þjónustu, gistingu svo ekki sé minnst á gæði í mat, sem mikið er lagt upp úr á öllum hótelunum. Icelandair hótelin eru átta talsins: Nordica hótel og Hótel Loftleiðir í Reykjavík, Hótel Flúðir, Rangá og Klaustur á Suðurlandi, Hótel Hérað á Austurlandi og svo nýjasta hótelið í keðjunni, Hótel Hamar í Borgar- nesi. Hótelin eru álitin þau bestu í sínum flokki hér á landi, enda þurfa þau öll að uppfylla strangar gæðakröfur keðjunnar. Lagður er mikill metnaður í að veita fyrsta flokks þjónustu og öll eru hótelin rómuð fyrir góðan mat. Við þetta bætist að alls staðar er boðið upp á góða fundar- aðstöðu en að auki hefur hvert hótel sína sérstöðu. Þannig er Nordica hótel stærsta ráðstefnuhótel á landinu með frábæra aðstöðu og án efa einn besta veitingastað í Skandínavíu, VOX. Brönsinn á VOX hefur slegið í gegn í vetur og verður áfram í boði í sumar. Hann er framreiddur á hverjum sunnudegi og hefur notið geysilegra vinsælda, m.a. hjá fjöl- skyldufólki, enda hafa leiklistarnemar haft ofan af fyrir börnunum svo að fullorðna fólkið geti notið matarins í ró og næði. Hótel Loftleiðir er 40 ára í ár, en í tilefni þessara tímamóta verður lagt í spennandi breytingar á hótelinu sem betur verða kynntar síðar. Bæði Nordica hótel og Loftleiðir eru fjögurra stjarna hótel. Hótel á 12. holu Nýjasta Icelandair hótelið utan Reykja- víkur er Hótel Hamar, golfhótelið í Borgarnesi. Það er frábærlega staðsett á miðjum golfvelli við holu númer 12! Aðstaða er meiriháttar fyrir golf- unnendur eða aðra sem vilja bregða sér út fyrir bæjarmörkin á góðum degi. Gestir geta gengið beint út á golfvöllinn úr herbergjum sínum og útsýni hótelsins er hreint frábært. Hótel Flúðir og Hótel Rangá á Suð- urlandi eru heldur ekki langt frá Reykjavík, og njóta fá hótel á landinu jafnmikillar hylli meðal innlendra ferðamanna, sem sækja bæði hótelin hvort sem er að vetri eða sumri. Hótel Klaustur er frábærlega staðsett fyrir þá sem vilja sækja heim helstu náttúruperlur landsins á Suðurlandi. Hótel Hérað er einn vinsælasti fundarstaður athafnamanna og kvenna á Austurlandi og ekki má gleyma nýuppgerðu Flughóteli í Keflavík þar sem fólk gistir gjarnan nóttina fyrir flug og þiggur skutl á flugvöllinn. Icelandair hótel setja hótelum sínum mjög stranga gæðastaðla sem samræmdir eru milli hótelanna átta. Árangurinn eru ánægðir viðskipta- vinir sem geta gengið að fyrsta flokks gistingu, fundaraðstöðu og veit- ingum vísum. Rómuð eru gæði matar, gistingar og þjónustu Sameiginleg bókun- armiðstöð er fyrir Icelandair hotels og Edduhótelin. Bóka má á www.icehotels.is. eða með því að hringja í síma +354 444 4000. Fjölmargar nýjungar verða í boði hjá hótel- unum í allt sumar og ný og spennandi tilboð kynnt vikulega á heima- síðu þeirra. K Y N N IN G SUMARIÐ ER TÍMINN Frá VOX á Nordica hóteli, einum besta veitingastað á Norðurlöndum. Nordica hótel. Hótel Rangá. Hótel Flúðir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.