Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Qupperneq 39
LÝÐRÆÐI
149
jafnrétti allra þjóðfélagsþegna fyrir lögunum. Það er söguleg stað-
reynd um þessi mannréttindi, sem nefnast einu nafni borgaralýð-
rœði, að viðurkenning þeirra til handa sérhverjum þjóðfélagsþegni
og ekki aðeins ákveðnum forréttindastéttum er fyrst og fremst á-
vöxtur verklýðsbaráttunnar undanfarin hundrað ár.
Hins vegar hefur þetta borgaralýðræði, sem felur að vísu í sér
viðurkenningu sumra hinna mikilvægustu mannréttinda, en enga
tryggingu þeirra, aldrei verið neilt lokatakmark verklýðshreyfing-
arinnar. Takmark hennar hefur frá öndverðu verið hið sósíalíska
lýðrœði, sem táknar miklu æðra þróunarstig lýðræðisins og innifel-
ur ekki aðeins viðurkenningu, heldur og fulla tryggingu allra þeirra
mannréttinda, er horgaralýðræðið lýsir yfir, en auk þess stórum
miklu meira, fyrst og fremst það, sem nefnt er ejnahagslýðrœði og
tryggir þegnunum öllum fullan rétt til hlutdeildar í afurðum og
auðæfum þjóðfélagsins. Alþýðustéttinni er borgaralýðræðið verð-
mætast fyrir þá sök, að það veitir henni nokkur tök á því að berjast
fyrir þessu efnahagslýðræði svo og viðurkenningu og fullri trygg-
ingu allra annarra mannréttinda, gerir lienni með öðrum orðum
fært að heyja baráttuna fyrir framkvæmd sósíalismans.
Um borgaralýðræði
Þegar rætt er um þessi mál, verður fyrst og fremst að taka til
greina þá staðreynd, að lýðrœði og borgaralýðrœði er tvennt harðla
ólíkt, það er að segja, hugtakið borgaralýðræði, mótað eftir veru-
leika borgaraþjóðfélagsins sjálfs, grípur ekki yfir nema lítinn hluta
þeirrar mannréttindahugsjónar, sem fólgin er í lýðræðishugtakinu
öllu og óskertu. Eigi að síður er þessum hugtökum ruglað saman
miskunnarlaust, ýmist af misskilningi eða í blekkingarskyni, og af
því sprettur einmitt meginhlutinn af þeim feiknarþvættingi, sem
einkennir allt tal og öll skrif hinna borgaralegu áróðursmanna um
lýðræðið.
Skortur efnahagslýðræðis
í fyrsta lagi skortir borgaralýðræðið fullan helming hins fullgilda
lýðræðis, með því að það er aðeins pólitískt, en ekki efnahagslegt.