Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Blaðsíða 58
168
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hendur, það er að segja, einokunin fer harðnandi. Árið 1920 voru
2042 blöð gefin út á ensku í Bandaríkjunum, en 1944 voru þau ekki
orðin nema 1754. í Bandaríkjunum eru 1103 borgir, þar sem málum
er svo lýðræðislega háttað, að í hverri þeirra kemur ekki út nema
eitt blað, og í 159 stórborgum landsins, þar sem fleiri en eitt blað
koma út, eru þau öll eign sama einstaklingsins eða hlutafélagsins.
Einn af stórblaðaútgefendum Bandaríkjanna skýrir svo frá, að eng-
um aðilja mundi detta í hug að ráðast í blaðaútgáfu í stórborg þar
í landi, nema hann .ætti í banka upphæð, sem næmi 70—100 milljón-
um íslenzkra króna („New Times“, des. 1945). I þessu mikla lýð-
ræðislandi er því auðborgarastéttin nær ein um hituna með sín and-
legu ofbeldistæki. Þarf nokkurn að undra að þessu athuguðu, þó
að fræðsla sú, sem almenningi í þvílíku landi hlotnast um þjóðfé-
lagsmálefni svo sem lýðræði, sósíalisma eða auðvald, sé ekki fram-
úrskarandi vísindalegs eðlis, eða mundi vera ástæðulaust að taka
með nokkurri varúð fréttaflóði því, til dæmis um Ráðstjórnarríkin,
sem einokunarauðvaldsfréttastofurnar þrjár, Reuters og hinna, veita
út um heimslöndin á degi hverjum?
Óvíða mun borgarastétt beita þessu andlega ofbeldi af meira
skefjaleysi en hér á landi. íslenzk borgarastétt ræður yfir miklum
áróðurskosti, og ekki skortir hana ófyrirleitna áróðursmenn. í höf-
uðborg íslands er kraftahlutfallinu þannig háttað, að fulltrúar hins
sósíalíska lýðræðis eiga eitt dagblað meðalstórt til að boða kenn-
ingu sína og stefnu, en borgaraflokkarnir þrír, eða auðborgarar
þeir, sem að þeim standa, eiga hins vegar þrjú blöð, sem hvert um
sig mun gera öllu betur að meðaltali en jafnast við sósíalistablaðið
að eintakafjölda og lesmálsmagni, og þar að auki á aðalflokkur auð-
borgarastéttarinnar stórblað, sem að eintakafjölda og lesmálsmagni
er að minnsta kosti fimmfalt á við sósíalistablaðið. Það er því
mjög vægt til orða tekið, ef sagt er, að borgarafylkingin hafi að
minnsta kosti sjöfaldan áróðurskost á við fylkingu bins sósíalíska
lýðræðis, þó að ekki sé tekið til greina annað en útgáfa dagblaða.
Þetta er mikill liðsmunur, svo herfilega sem honum er misbeitt,
því að jafnvel sannleikurinn getur um sinn átt erfitt uppdráttar
gagnvart sjöfaldri lyginni. Úr þessari gífurlegu lygakvörn fær nú
mikilli hluti almennings flestar eða allar hugmyndir sínar um þau