Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 73
MESTU SKÁLDRIT MARTINS ANDERSENS NEXÖS
183
í þessum köflum Iagt fram allt sem í honum býr sem listamanni og
hlýtur að sannfæra jafnvel þá sem honum eru fjandsamlegastir um
snilld sína, sem er mannleg og vörm. Enda þótt Andersen Nexö hafi
lagt fram alla hæfileika sína við að lýsa bernsku Pella og hafi með
því skapað einhverjar þær skírustu lýsingar sem til eru í dönskum
bókmenntum, þá er þó ekki verðmæti hinna hluta bókarinnar minna.
Að sjálfsögðu er listræn áherzla lögð á bernsku og æsku, en síðari
hlutarnir verða fremur athuganir en lífslýsing. Löngu eftir að mað-
ur hefur lokið lestrinum, er í huga hans sársaukakennd vegna þess
að svona miklir mannlegir hæfileikar skuli enda í gætni, virðuleik,
fagurri auðsveipni og skynsamlegu vonleysi.
Handan við öll stjórnmál, ofar öllum tímabundnum nýstárleik er
ævisaga Pella, Pelli sigursæli og Marteinn rauði,einhver djúptækasta
skáldsaga danskra bókmennta, þótt hún sé ekki meðal hinna heil-
ustu. Hún verður að teljast aðalritið í ævistarfi Andersens Nexös og
mun verða eitt af meginritum danskra bókmennta. Það eru aðeins
endurminningar Andersens Nexös, sem standa henni framar að
varma og mannúð.