Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 93
STUTTHOF 203 þeirra á skipulagðan hátt. Að minnsta kosti urðu gleraugu með gullumgerð herraþjóðinni ævinlega að herfangi. Nokkrir stálpaðir drengir á aldrinum 16 eða 17 ára hlupu upp og niður, brúna og leituðust við eftir megni að hjálpa og styðja þessa hartleiknu vandamenn sína. Smátt og smátt heppnaðist Gesta- pómönnunum auðvitað með ópum sínum, óhljóðum og barsmíðum að gera gamalmennin alveg ringluð. Þau skildu hvorki upp né nið- ur og hnipruðu sig saman eins og dýr í óveðri. Þá komu allt í einu nokkrir velaldir Gestapómenn æðandi eftir þilfarinu og hrintu, börðu og spörkuðu gamalmennunum niður brúna, svo að þau ultu hvert um annað niður á bryggjuna. Herramennirnir skemmtu sér ágætlega. Á þilfarinu stóð nú aðeins eftir gömul kona ellihrum, hrukkótt og skjálfandi. Otti og skelfing höfðu alveg gagntekið hana. Hún hélt krampakenndu taki í kaðla landgöngubrúarinnar og skerandi, brjálæðisleg óp komu úr hálsi hennar. I einu vetfangi stóð Gestapóforinginn sjálfur á brúnni fyrir neðan gömlu konuna. Alveg óður af bræði þreif hann upp skammbyssu og miðaði á höfuð hennar. Nú skýtur hann hana, hugsaði ég. Ónei. í stað þess snýr hann skammbyssunni við, grípur með hægri hendinni um hlaupið og lemur með skammbyssuskeftinu á hinar mögru hendur gömlu konunnar, sem heldur með krampataki utan um kaðlana. Það kveður við tryllingslegt, skerandi vein. Gamla konan sleppir takinu, hún veltur yfir sig, og er Gestapómaðurinn hefur gefið henni vel útilátið spark með stígvéluðum fætinum, steypist hún niður brúna. Hefur maðurinn þá aldrei átt móður sjálfur, hugsa ég og loka augunum. Eg get ekki horft á þetta lengur. Þegar ég lít upp aftur, sé ég tvo hálfvaxna drengi vera að rogast með aðra gamla konu í viðbót. Þeir eru ekki nógu sterkir til að bera hana, þess vegna rekst bakhluti gömlu konunnar stöðugt í rimla brúarinnar. Þannig end- aði landganga hinna dönsku Gyðinga, hinna sakfelldu friðarspilla, októbermorguninn í Swinemiinde. Flutningurinn á okkur til Stutthofs er áþekkur öðrum þrælaflutn- ingum í þriðja ríkinu. Okkur var kássað saman í ótrúlega óhreinum flutningavögnum, fimmtíu í hvern, jafnt körlum sem konum. Vagn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.