Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 129
UMSAGNIR UM BÆKUR 239 ir um ástæður fyrir því, að liann hóf að rita bókina, og lýsir jafnframt efni hennar lauslega. Þá hefst aðalefni bókarinnar með því að höf. lýsir landslagi í Odáðahrauni. Virðist mega fá allgóða hugmynd um |)að af lestri kaflans, sem er með mörgnm myndum, með hliðsjón af uppdráttum, sem fylgja bókinni. Þessir uppdrættir ná yfir allt Ódáðahraun. Þeir eru gerðir eftir uppdráttum Geodætisk Institut, og prentaðir með einum svörtum lit og eru sæmilega skýrir og með mörgum nöfnum. Ósamræmi er í því, að á uppdráttunum stendur „Herðubreiðarlindir" og „Hvannalindir", en í bókinni notar höfundurinn oft- ast fleirtölumyndina „lindar“, þó liann ruglist raunar stundum í því. Annar kafli fyrsta bindis er „Saga Ódáðahrauns". Er þar sagt frá, hvernig þekking manna á Ódáðahrauni hefur vaxið stig af stigi frá því er Gnúpa-Bárður rak fé sitt suður Vonarskarð, unz Jón Stefánsson fór með C. J. Ovden, hollenzkan mann, í Öskju, en hann klappaði Jóni öllum utan og hrópaði í hrifningu: „Ó, Jón! Ó, Jón! Ó, ísland mít!“ Annað bindi ritsins hefst með ágripi af jarðsögu Ódáðahrauns. Aðhyllist höf. þá kenningu, að móbergið hafi hlaðizt upp, grágrýti flotið yfir og landið' brostið sundur, missigið og mótazt í höfuðdráttum, áð'ur en ísöldin hófst. Færir hann ýmis rök að þeirri kenningu, en um hana munu vera skiptar skoðanir. Annar kafli bindisins er um eldvörp og gosmenjar. Þar er safnað saman mikl- um fróðleik um gíga, sprungur, hraun og eldfjöll. Þriðji kafli heitir „Eldgos í Ódáðahrauni". Sá kafli hefst á greinargerð um örnefnaflutning, og kemst höf. að þeirri athyglisverðu niðurstöðu, að Dyngjufjöll og Herðubreiðarfjöll hafi áður heitað Trölladyngjur, en síðar hafi það nafn flutzt á fjall það, sem nú heitir Trölladyngja, en áður hét Skjaldbreiður. Höf. telur að mörg gos hafi verið í Ódáðahrauni, sem menn voru áður í vafa um hvar voru, eða töldu hafa verið annarstaðar. (í Trölladyngju á Reykjanesi, Grímsvötnum og víðar). Virðist höf. ganga þar fulllangt í því, að gera hlut Ódáðahrauns sem mestan, og ér erfitt að fallast á sum rök hans. í þessum kafla lýsir höf. gosum í Öskju og breytingum, sem þar hafa orðið síðan 1875, og er það stórfóðleg saga. Hér verða í rauninni þáttaskil, og verður nú sagt frá skiptum manna við Ódáðahraun, og er þá næst kafli um brennisteinsnám í Þingeyjarsýslu. Þetta er ítarlegur kafli og er víða leitað heimilda til hans. Þá kemur kafli um íbúa hraunsins: Tröll og útilegumenn. Virðist þar koma í ljós, að Ódáðahraun er ekki eins sagnauðugt og ætla mætti. Tröll voru þar fá, og útilegumenn hafa haldið sig öllu meira í „dalnum í jöklinum" og á leiðum í kringum Langjökul. Nokkrir útilegumenn hafa þó verið í Ódáðahrauni, og er Fjalla-Eyvindur þeirra írægastur, en Jón Erlendsson léttlyndastur: Hann þjónustaði kerlingu með vatni og osti og hengdi liana síðan til þess að ná frá henni peningum. Fyrstu þrír kaflarnir í síðasta bindi heita „Fjalla-Bensi", „Hestagöngur“ og „Slysfarir og hrakningar". Þeir eru um vetrarferðir um Ódáðahraun, og sum- ar býsna glæfralegar. Margt er bráðskemmtilegt í þessum þáttum, og má auk þess sjá, að Mývetningar hafa kunnað að búast að heiman og ferðast að vetr- arlagi, án þess að eiga líf og heilsu undir veðurheppninni. Þá kemur kafli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.