Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 3

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR • 26. ÁRG. ■ 1965 2 • HEFTl SEPT. Færeyjar «g ísland Við íslendingar höfum löngum verið helzt til tómlátir um það sem er að gerast hjá ná- grönnum okkar og frændum, Færeyingum. En nú eru samgöngur milli Færeyja og íslands að aukast eftir að heinar flugferðir hafa verið upp teknar milli landanna, og má búast við að fleiri Islendingar leggi þangað leið sína en áður, enda hafa þegar orðið nokkur brögð að því á þessu sumri. Síðan Færeyingar fengu heimastjórn 1948 hafa þeir lyft Grettistökum á mörgum svið- um. Þó að þeir eigi við marga örðugleika að etja er þar mikill gróandi í athafnalífi og ósvikinn framfarahugur með þjóðinni. Ferðamanni ber þar margt fyrir augu sem á skylt við vandamál okkar íslendinga, og á ýmsum sviðurn mættum við að skaðlausu af þeim læra. Færeyingar virðast ntiklu síður en við hafa látið glepjast af yfirborðstildri erlendr- ar borgamenningar, þjóðleg einkenni eru sterk og studd vakandi þjóðemistilfinningu og markvissri haráttu fyrir viðgangi færeyskrar menningar. Gestinum verður starsýnt á gömul hús sem er snyrtilega haldið við, þrifnað og myndarlegan heildarsvip færeyskra þorpa og bæja, sem er laus við alla sýndarmennsku og ber vott um virðingu fyrir þjóðlegri hefð og gömlum lífsháttum, þrátt fyrir byltingu í atvinnulífi. I menningarmálum Færeyinga gerast nú merkileg líðindi. Þar er verið að koma fótum undir vísindastofnun, sem með tíð og tíma getur orðið vísir að háskóla: Fróðskaparsetur Fproya. Ætlunin er að laka þar upp nú þegar kennslu í færeyskri tungu og bókmenntum, og hefur Christian Matras prófessor verið ráðinn til að veita því starfi forstöðu, en hann hefur um árabil verið prófessor í færeysku við Kaupmannahafnarháskóla. Svo má kalla að þessi stofnun sé vaxin upp á grunni vísindafélags Færeyinga, sem starfað hefur nokk- uð á annan áratug. Fproya fróðskaparfelag hefur nú gefið út árbók sína, Fróðskaparrit, í 13 ár og með því sýnt að félagið er fært um að lialda úti vísindalegu tímariti sem cr þjóðinni til sóma. Færcyingar ætla sér ekki að flasa að neinu með þessa nýju stofnun, fara sér að engu óðslega með embætti og byggingar handa henni, heldur byrja á því að byggja nýtt lands- bókasafn og efla það að fræðilegum bókakosti. Þeir hafa sem sé gert sér ljóst að gott bókasafn er undirstaða allra vísindaiðkana, en sá skilningur virðist enn eiga ógreiða leið inn í heilabú íslenzkra ráðamanna. Það fór vel á því að einmitt þegar þessi tíðindi eru að gerast buðu Færeyingar í fyrsta sinn til fundar fræðimanna frá Norðurlöndum og Bretlandseyjum, en það var hinn svo- nefndi víkingafundur, hinn fimmti í röðinni, sem var haldinn í Þórshöfn í sumar. Forustu- menn Færeyinga í menningarmálum höfðu skipulagt fundinn með miklum ágætum og af þvílíkri gestrisni og myndarskap að þeim sem hann sóttu mun seint úr minni líða. Má telja vafalaust að hinir erlendu fræðimenn sem þar voru muni leggja hinu nýju Fróð- skaparsetri lið framvegis eftir megni, ef nokkuð má marka þær undirtektir sem prófessor Peter G. Foote frá London fékk, þegar hann hét á menn í lokaræðu fundarins að senda 8 TMM 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.