Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Blaðsíða 5
Að vísindastarf i hjá Sameinuðu þjóðunum
V iðlal við dr. Björn Jóhannesson verkfrœðing
Dr. Björn Jóhannesson er ekki alls íyrir löngu koniinn lieim írá New York
þar sem hann hefur starfað um skeið hjá tæknistofnun Sameinuðu þjóðanna.
Björn er Skagfirðingur að ætt, fæddur á Hofstöðum 25. okt. 1914 og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Keykjavík vorið 1935,
efnaverkfræðiprófi frá Tækniháskólanum í Khöfn 1940 og doktorsprófi í jarð-
ræktarfræðum við Cornellháskóla í Bandaríkjunum vorið 1945.
Að námsferli loknum hóf Björn starf í búnaðardeild Atvinnudeildar Háskól-
ans og vann þar óslitið 16 ár að jarðvegs- og ræktunarrannsóknum til 1961.
Dr. Björn vildi ekki una þeim starfsskilyrðum sem hann og stofnunin sem
hann vann fyrir áttu við að búa og tók því tilboði sem honum barst frá Sam-
einuðu þjóðunum um starf hjá þeim, og misstu þar fslendingar úr landi fyrir
vanrækslu sakir einn hæfasta vísindamann sinn í starfsgrein þar sem hann var
nærri eini sérfræðingurinn, og má fullyrða að það hafi orðið íslenzkum land-
búnaði til verulegs tjóns.
Björn hefur unnið hjá Sameinuðu þjóðunum rúm þrjú ár og bera forstjórar
tæknistofnunarinnar mikið lof á starfshæfileika hans og lögðu að honum að
vera fastur starfsmaður áfram eða að öðrum kosti ráðunautur tíma og tíma,
eftir þvi sem honum hentar. Björn er nú kominn heim og verður fróðlegt að sjá
hvort ríkisvaldið kann betur en áður að meta starfshæfni hans og hvaða verk-
efni standa honum til boða. Kr. E. A.
Ertu alkominn heim, eða aðeins sem ges/ur? Fór svo að Island dró Jng aftur
til sín, eða kallaði ríkisstjórnin á þig?
Eg er fluttur búferlum heim, og er því ekki gestur að sinni. Ég hef ekki
unnið á vegum íslenzka ríkisins frá því að ég sagði upp starfi hjá Atvinnu-
deild Háskólans árið 1961, enda kallaði ríkisstjórnin ekki á mig. Segja má að
löngunin til að fást við rannsóknir á íslenzkum náttúruauðlindum og hag-
nýtingu þeirra, svo og frændur og kunningjar á Fróni, hafi togað í mig, en
á eftir ýtti einnig það að ég hafði ákveðið að setjast ekki að ævilangt sem
skrifstofumaður á Manhattan-eyju. Ég er þó ekki alkominn heim að því leyti,
að ég býst við að verja nokkru af starfstíma mínum á næstunni sem ráðunaut-
ur þeirrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna er ég starfaði hjá í New York, en
slík störf myndi ég inna af hendi erlendis.
115