Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 15
Að vísin dastar / i hjá Sameinuðu þjóðunum
cn sízl verð'ur Island sakað um að það hamli gegn því að íslenzkir sérfræð-
ingar taki vinnu erlendis, hvort heldur um ræðir S. Þ. eða einstök lönd. í
þessu efni er framlag íslands, miðað við stærð þjóðarinnar, tvímælalausl
miklu meira en nokkurrar þjóðar annarrar. Óeigingirni þjóðarinnar ræður
þó ekki þessari „stefnu“, heldur þau kjör og starfsskilyrði sem boðin eru er-
iendis þeim, sem kunnir eru að mikilli starfshæfni. Hljóðlaust, og jafnt og
þétt, hverfa þessir menn af islenzka sviðinu. Sumir koma aftur, en fastast er
haldið í þá sem vel reynast, og slíkir menn eiga sjaldnast afturkvæmt. ísland
cr ekki hið sama eftir hvarf þessara úrvalsmanna, þótt tiltölulega fáir séu, en
hvorugum aðiianum er ástæða til að vorkenna, þeim eða þjóðinni.
lívnð víUu segja mér að lokum? Hlakkarðu ckki til að taka á nýjum vcrk-
efnum hér heima?
Eg vil helzt segja það að lokum að þú hafir rakið úr mér garnirnar meira
en góðu hófi gegnir, og er mál að linni.
125