Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 18

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 18
Timarit Máls og menningar „fyrir þrjátíu áruin“ af mönnuni er við hann ræddu. Ymsir hafa búið sér til að ferð sú sem hér er í umræðu hafi verið farin árið 795 ef satt er að Dicuil hafi tekið saman bók sína De mensura orbis lerrae árið 825; en það gæti líka hafa verið fyr, ef sjófarendur hefðu verið að rifja upp við höfundinn farir sínar fornar, þegar iiann hitti þá „fyrir þrjátíu árum“; þetta verður ekki Ijósl af bókinni. Allavega virÖist þó mega gera ráð fyrir því að ferðin sem hér er bókfest liafi verið farin á ofanverðri 8. öld. Þá hafa Færeyar ekki nafn hjá irum og virðist það ekki benda til þess að þar hafi nokkurntíma verið lífleg nýlenda írsk, enda ekki líklegt að „klerkar“ hefðu leitað þángað ef svo hefði verið. Málleifar og fornleifafræði í Færeyum benda auk þess til að eyarnar hafi bygst úr Suðureyum á 9. öld. lrskra ininja er ekki getið svo ég viti í fær- eyskuin fornleifum, en vel má vera að til séu. Hinsvegar telur Dicuil að menn af „okkar Skotlandi“, einsog írar virðast þá hafa nefnt land sitt, liafi hafst við í Færeyum um hundrað ára skeið, en normanskir reyfarar stökt þeim úr laudi, svo þar virðast ekki hafa verið menn fyrir þegar sjófarendur Dicuils komu þar; afturámóti voru eyarnar fullar með aragrúa sauðfjár, plenae innu- merabilibus ovibus, segir Dicuil. Þetta gæti verið fé af stofni sem eftir varð þegar menn þeir hurfu á brott sem sjófarendur Dicuils nefna, geingið síðan sjálfala í mannlausu landinu og haldið áfram að margfaldast. Um nafn Fær- eya, sem norrænir frumbyggjar hafa gefið þeim, eru menn ekki á eitt sáttir, en ein tilgáta er sú að það þýði fjáreyar á sama hátt og færikvíar geta þýtt fjárkvíar og færilús fjárlús. Aðminstakosti eru eyarnar „frægar“ af fé sínu áður en þar veröur saga af mönnum. Athyglisvert að sjófarendur Dicuils geta landsins ekki öðruvísi en afdreps einsetumanna, sem nú sé þó fyrir all-laungu aflagt. Þannig verður ekki ráðið af írskum heimildum fremur en öðrum að landnám írskt hafi átt sér stað í Færeyum í þeirri merkíngu orðsins sem vant er að hafa, það er að segja að skyldmennahópar, familíur, taki sér bólfestu til lángframa í mannlausu landi, eigi þar börn og buru og grafi rætur og muru. Nú er þess að gæta, þegar talið berst að lifnaðarháttum írskra einsetu- manna, að ekkert var jafn-fjarri þessum „hermönnum Krists“ og að hefja landnám eða gerast einhverskonar búhöldar. Alt jarðneskt var þeim gagn- staðlegt eftir eðli sínu og þeir voru að leita burt frá venjulegu mensku jarðlífi í von um að mega njóta þeirrar náðar fyrir Krists sakir að hokra einir í sveltu á klettóttum annesjum, í skerjum og úteyum. Sagnfræði um múnklífi írskt kann þar margar sögur og tilfærir Bj örn Þorsteinsson eina úr enskum annál- um í áðurnefndri grein sinni, en þar segir af þrem einsetumönnum írskum 128
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.