Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Qupperneq 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Qupperneq 52
Tímarit Máls og menningar „Þessi maður hefur aflað sér meiri vitneskju um fisk og fiskveiðar en nokkur annar, og til hvers? Til þess að útvega yður bezta fisk í heimi. Fisk sem veiddur er á miðum sem hafa verið fræg allt frá söguöld vegna þess hve fiskurinn þar er góður.“ Hugsið ykkur hvað fj ögurra til fimm mínútna sjónvarpsauglýsing gæti selt. Hægt væri að sýna síldarbátana, stúlkur að salta síld í tunnur, bregða síðan upp yfirlitsmynd af firðinum öllum umluktum snæviþöklum tind- um, og demba loks yfir áhorfendurna ísmeygilegum sölusetningum. Sann- leikurinn er sá að nú birtist ekki ein einasta auglýsing um íslenzkan fisk í sjónvarpi né í kvennablöðum Banda- ríkjanna, og þar er mikill markaður, góðir hálsar. Leiðin milli sellófan- umbúðanna og hins fúsa kaupanda er því miður með miðaldasniði. Víkjum enn að þjóðareinkennum íslendinga. Eitt hið aðdáunarverð- asta sérkenni íslendinga er hæfileiki þeirra til að mynda sér skoðanir, verja þær og vefengja að skoðanir annarra standist. Afleiðingin verður breitt stj órnmálasvið í svona litlu landi. Og stjórnmálaumræður á ís- landi eru mun frjálslegri en í Banda- ríkjunum. Gallharður, róttækur kommúnisti getur opinskátt deilt við erkiíhaldsmann án Jress að þurfa að óttast eilífa fordæmingu. Skoðana- myndun af þessu tagi nær einnig til lista og bókmennta. Menn ræða um það, hvað þeim fellur og hvað þeim fellur ekki í málverkum Kjarvals, og verða sannir vinir. Og viðmæland- inn er ekki síður venjulegur hóndi eða fiskimaður en lærður mennta- maður eða hálflærður þaulsetugestur á kaffihúsi. Fæstir íslendingar gætu gert sér í hugarlund hversu tómum augum bóndi frá Iowa myndi stara á þá, ef hann væri spurður hvaða álit hann hefði á Malisse eða Pi- casso. Þegar öllu er á botninn hvolft er ísland ef til vill mótsagnakennd- asta land í heimi ef mótsagnirnar má marka af samræðulist og skoðana- myndun. Frelsið til að deila og skipt- ast á skoðunum er einhver dýrmæt- asta eign íslendinga. Það er sérkenni sem greinir þá frá mörgum öðrum Jjjóðum. Maður trúir því vart að svona fj ölbreytilegar skoðanir skuli rúmast innan svona örlítillar þjóðar. Þetta er ævaforn arfleifð frá þvi menn vefengdu í upphafi skoðanir hver annars í frjálsum umræðum á Þingvöllum. Þessar umræður eru tengiliður sem ekki má rofna ef ís- lendingar eiga að halda áfram að skera sig eitthvað úr öðrum þjóðum. En deilur geta leitt til öfga, og öfg- ar geta leitt til þess að aðeins sé deilt um eitthvert mál og ekkert aðhafzt. Sú hefur því miður stundum orðið raunin í íslenzkum stjórnmálum. Pólitískir flokkadrættir og sundur- lyndi í skoðunum hafa stundum leitt til athafnaleysis í smámunum, hvað 162
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.