Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 71
setningu eða algilda grundvallarreglu um tónsmíðar. Hann hafði jafnan krafizt þess, að tónskáld þekktu hinar margvíslegu tækni- og tjáningarleið- ir í fortíð og nútíð, svo að þau gætu rýnt þær og prófað, notað sér þær í sköpunarstarfi sínu, breytt þeim að vild eða hafnað. Og prófsteininn á þær taldi hann það, hve vel þær væru fallnar til að tjá hæfilega nýjan kjarna sósíalskrar listar. Tvær ástæður munu hafa valdið mestu um þær tilraunir hans með kerfi Schönbergs að „greina tækni frá tjáningu“: í fyrsta lagi sá kostur að geta slungið úr efni, sem fyrir er, þéttan vef fryma og stefja, er grípa hvert í annað og vaxa fram eitt af öðru, unz úr verður heilt verk. í öðru lagi færi á því að losa um bönd hins hefðbundna tónfallakerfis (funktio- nalitet) að meira eða minna leyti án þess að fjarlægjast þó ótvíræða tónala þungamiðju. í þessu skyni hef- ur hann fært sér kerfið í nyt í all- mörgum verkum og sniðið í hendi sér. Gerum oss nú grein fyrir því í nokkrum atriðum, hvernig Eisler samdi við tólftónakerfið á fjórða ára- tugnum: Athugum fyrst verkið ..Gegn stríði“, kór án hljóðfæra frá árinu 1936. f viðleitni sinni að nota kerfi Schönbergs til að tjá það, sem hon- um er í hug, reynir hann, ef svo má segja, að hola það innan. Tólftóna- stefið hefur skýra tónala þungamiðju Eisler og Schönbcrg og samræmislega gerð. Það byrjar á lítilli þríund e-g, er kalla má kímið að framhaldi stefsins; þá koma tvær stígandi litlar þríundir á fis og gis, stóra og litla tvíundin, sem í þeim felst, b-c-cis, hverfiform þríundar- innar í stórri fallandi sexund d-f og vísitónsendir í skrefi frá dis upp á grunntóninn e. Með endurtekningu á tónaröðinni d-f-dis-e eru endingar- áhrifin skerpt. Stefið kemur tvisvar fyrir aftur, í bæði skiptin án þess að lokahendingin sé tvítekin. Bragur þessa stefs, sem tilbrigðin spinnast af, er mjög ólíkur röðum Sehönbergs. Stefið hefur tengsl við kunn tónfyrirbæri, og virðist jafnvel hlíta tónfallalögmálum. Það, sem eft- ir er frá Schönberg, eða réttara sagt, það sem Eisler lærðist við rýni sí- gildra verka fyrir tilstuðlan kennara síns, er vöxtur stefsins af frumkjarn- anum og verksins alls af stefinu. Stef- ið er „úthugsað" (,,auskonstruiert“). Tilbrigði taka við hvert af öðru í list- fengum röddunarleik með stefið og hvörf þess, en stigflutningi („trans- position“) er hafnað, augsýnilega vegna hinnar tónölu gerðar stefsins. Og eins og hragur stefsins á lítið skylt við Schönberg, leiðir tónraða- meðferð þess á ýmsan hátt til ólíkrar niðurstöðu (skýrar þríundirnar í öðru tilbrigðinu til að mynda), og það því fremur sem Eisler fylgir ekki alltaf nákvæmlega reglunum um röð- unina og tónendurtekningar áður en 181
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.