Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 87
að Barði hafi haft nokkuð við þetta að athuga, og þó er enn meira vafa- mál, að honum hafi þótt þetta nokkru máli skipta. Skoðun Barða var sú, að aðalfyrirmyndir sögunnar sæki höf- undur til samtíðar sinnar. Og það rit, sem Barði telur að sterkast hafi verk- að á höfundinn, er Þorgils saga skarða. Tengsl Nj álu og Þorgils sögu eru svo mikil að kenningu Barða, að þau verða einn meginþáttur í rök- semdafærslu hans. Skoðun Barða er sú, að Þorgils saga hafi verið vaki Njáls sögu. Njáls saga er varnarrit gegn níði Þorgils sögu um Þorvarð Þórarinsson, svo mögnuðu níði, að Þorvarður hefur legið undir því í dómi sögunnar, þar til nú á allra síð- ustu tímum, að mönnum hefur lærzt að lesa Þorgils sögu og aðrar heim- ildir frá 13. öld með gagnrýni. Nú er það að renna upp fyrir fræðimönn- um, að Þorgils saga er rituð af blindri aðdáun á Þorgilsi skarða og stefnir beint að því að gera hann að dýrlingi í augum manna, en að sama skapi er hallað á banamann hans, Þorvarð Þórarinsson. Barða er næsta lagið að draga fram atriði, sem í Njáls sögu eru hugsunarvillur, en eiga fullkomlega heima, ef þau eru sett í samband við atburði í lífi Þorvarðar Þórarinsson- ar. — Þegar sættir fara út um þúfur út af vígi Höskulds Hvítanesgoða og Njáll lætur í ljós áhyggjur út af gangi mála, þá er Skarphéðinn lát- Staifhœfing gegn staðhœfingu inn mæla þau hreystiyrði, að „þeir mega aldrei sækja oss að landslög- um.“ í munni Skarphéðins er þetta hin mesta fjarstæða, eins og á stend- ur samkvæmt frásögn Njálu. Hösk- uldur er drepinn saklaus og engin leið lögum samkvæmt að skjóta sér undan viðurlögum. En þessi orð gátu átt heima í munni þeirra Hrafns Oddssonar og Eyj ólfs ofsa. Þeir urðu ekki sóttir að lögum út af drápi Odds Þórarinssonar. Hann féll óhelgur sem sekur maður og bannfærður. Og það var engum kunnara en bróður hans Þorvarði, sem bar eftir hann að mæla. Hið sama kemur fram í gerð- ardómnum um víg Höskulds. Þegar Guðmundur ríki spyr: „Viljið þér nokkuð héraðssektir gera eða utan- ferðir?“, þá svarar Snorri goði: ,,Engar.“ Þetta er með hinum mestu ólíkindum. Þegar Gunnar á Hlíðar- enda drepur menn í nauðvörn, þá er hann gerður útlagi um þrjá vetur. Hvernig mætti þá vera, að hvorki væru til umræðu teknar héraðssektir né utanferðir, þegar einn af virðing- armönnum landsins er alsaklaus ráð- inn af dögum? En í sambandi við vígsmál út af vígi Odds Þórarinsson- ar átti þetta fyrirbæri heima, eins og áður greinir. Hliðstæðurnar milli Njálu og Þor- gils sögu eru sannarlega athygli verð- ar og sannfærandi, þegar á þær hefur verio bent, ekki aðeins efnislega, heldur einnig að málfari. Maður 197
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.