Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 91
stóratburði sögunnar, að ekki hafi hann vitað, að fimmtardómur var settur í lögmannstíð Skafta og Skafti varð ekki lögsögumaður fyrr en eftir kristnitöku. Þess vegna neyðist Einar til að samþykkja það, að Njáluhöf- undur hafi látið þekkingu sína lönd og leið, þegar listrænar ástæður gerðu kröfu til þess. Hví þá ekki, að hann fari með lögfræðileg og stað- fræðileg efni á sama hátt? A einum stað segir Einar: ,,En svo fjörmikið er ímyndunarafl söguritarans, að lög- in breytast í lifandi lif. Enginn myndi leika eftir að gera lagastafi og for- mála 142. kap. að áhrifamiklu sögu- efni.“ — Vissulega væri það við- fangsefni út af fyrir sig að rannsaka, á hvern hátt hinar lögfræðilegu skekkjur gætu þjónað listrænni frá- sögn hverju sinni. í meginatriðum byggir Einar á því sjór.armiði, að höfundur hafi fyrst og fremst stuðzt við heimildir, sem hann leit á sem sannsögulegar, og svo fyllir hann þær upp með ímynd- unarafli sínu. Hann talar um, „þegar efni eldri sagna vekja ímyndunarafl höfundar Njálu, svo að hann fyllir eyður sögu sinnar eða prýðir með svipuðum minnum.“ Og Einar kemst ekki hjá að álykta á þá leið, að per- sónuleg kynni höfundar við samtíð- armenn kunni að hafa haft áhrif á persónulýsingar sögunnar. Hann seg- ir á einum stað: „Langt er síðan menn veittu því athygli, að það er Staðhœfing gegn staðhœfingu eins og söguritara sé illa við sumar söguhetjur, en hlýtt til annarra. Hvað veldur? Vera mætti, að sumt ætti rætur að rekja til sagna, en suint gæti vissulega stafað af því, að söguhetjur gyldu samtíðarmanna höfundar.“ Og síðar segir hann: „Þegar kemur til kvenna sögunnar, er ekki efi á, að lýsingarnar styðjast við reynslu höf- undarins, en nöfn og atvik, sem þar liggja að baki, eru algerlega myrkva hulin.“ -— Ekki hefði staðið á Barða með að samþykkja þetta, að undan- tekinni setningunni um myrkvann, sem Einari finnst hylja nöfn og atvik í samtíð höfundar í sambandi við konur sögunnar. Einar getur ýmissa rita, sem liöf- undur hafi greinilega orðið fyrir á- hrifum frá um efni og orðalag. Hann minnist á orðalagið bleikir akrar. Á einum stað öðrum segist hann hafa rekizt á þessi tvö orð saman, og það er í Alexanders sögu: „Þar mátti hann alla vega frá sér sjá fagra völlu, bleika akra, stóra skóga, blómgaða víngarða, sterkar borgir.“ „Fögur er hlíðin,“ sagði Gunnar á Hlíðarenda, bleikir akrar og slegin tún.“ „Mér er gjarnt að hugsa mér,“ segir Einar, „að höfundur Njálu hafi þekkt þessa frásögn og hafi hún kveikt í honum.“ Ekki spillir þessi athugun því, að Þorvarður Þórarinsson geti verið höfundur, því að þýðandi Alexanders sögu var Brandur Jónsson ábóti, föð- urbróðir Þorvarðar. Af Fornaldarsög- 201
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.