Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 95

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 95
er sögnin henda notuö í sömu merk- ingu sem „snerta“. Er slíkt næsta sjaldgæft í máli voru, en laka henda er vissulega með fádæmum.“ En þetta orðtak er að íinna í Njálu. Gunnhild- ur konungamóðir segir: „Ef Hrútur fer mínum ráðum frain, þá skal ég sjá um fémál hans og um það annað, er hann tekur að lienda.“ Þá segir í Glæsibæjarræðu: „Þeir einir munu hér komnir, að hverjum mun hugað að fylgja vel og drengilega sínum höfðingja.“ í Njálu segir Asgrímur Elliða-G«ímsson: „Því að þeir einir menn eru hér nú við, er hverr veit annars trúnað,“ og „Mörður kvaðst allan hug skyldu á leggja að gera þetta vel og drengilega.“ „Er það mitt ráð, að menn marki nú stálhúf- ur sínar og búi sig og veri sem var- astir,“ segir í Glæsibæjarræðu. „Er það mitt ráð, að þér farið margir saman og skilizt lítt og verið um yður sem varastir,“ segir Flosi við Sigfús- sonu. Og Barði segir: „Og merkilegt er það, að í Njáls sögu koma orðin: „Er það mitt ráð“ svo oft fyrir, að næstum má tala um málkæk, en í Þor- gils sögu finnum við þau aðeins í ræðu Þorvarðar Þórarinssonar.“ „En ef nokkur er sá hér, er það veit á sig, að eigi vill berjast,“ segir Þorvarður að Glæsibæ. Flosi segir við bandamenn sína fyrir Njáls brennu: „Vil ég það vita, hvort nokk- ur er sá hér, að oss vilji eigi veita.“ „Vil ég nú þess biðja, að hver maður Staðhœfing gegn staðhœfingu syngi Pater noster þrem sinnum,“ segir Þorvarður að Glæsibæ. „Vil ég nú þess biðja yður sonu mína,“ segir Njáll Þorgeirsson á alþingi. Þó telur Barði Grófarræðuna svo- nefndu, sem Þorvarður flutti „í gróf“ nálægt Skjaldarvík, áður en hann réðst að Þorgilsi skarða að Hrafna- gili, merkilegasta í þessum efnum. Ræðan er aðeins 127 orð og hljóðar þannig: „Hér kemur að því, sem mælt er, að hvert ker verði svo fullt, að yf- ir gangi, og það er að segja, að ég þoli ekki lengur, að Þorgils sitji yfir sæmdum mínum,svo að ég leiti einsk- is í. Vil ég yður kunnugt gera, að ég ætla að ríða að Þorgilsi í nótt og drepa hann, ef svo vill verða. Vil ég, að menn geymi, ef fœri gefur á, að bera þegar vopn á hann og vinna að því ógrunsamlega, svo að hann kunni eigi frá tíðindum að segja, því að þá er allt sem unnið, ef hann er af ráð- inn; meguð þér svo til œtla, að Þor- gils er engi klekkingarmaður. Nú e/ nokkur er sá hér, er mér vill eigi fylgja, segi hann til þessa nú.“ Undirstrikanir eru Barða, og hið undirstrikaða eru hliðstæður við orð- tök í Njálu: „Nú er svo orðið sem mœlt er, að skamma stund verður hönd höggvi fegin,“ segir í Njáls sögu. „Vil ég yður það kunnugt gera,“ segir Njáll. „Það vil ég yður kunnugt gera,“ segir Flosi. „Svo hef- ur saman borið fund okkarn, að þú munt eigi kunna frá tíðindum að 205
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.