Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 116

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Síða 116
Timarit Máls og menningar ið 212 niður í 1.500 asa árið 129). Og í af- stöðu sinni til foringjans sýndu hermenn Scipíóns Aemilíusar við Numantíu öll auð- kenni málaliða. Það er því ofmælt hjá höf- undi að Maríus hafi „gert byltingu á her- skipan Rómverja" með því að taka öreiga í her sinn. Hann gerði ekki annað en lög- helga langa þróun. Öll voru þessi vandamál sprottin af nýj- um þörfum, pólitískri og efnahagslegri að- lögun sem breyting Rómar úr borgríki i heimsveldi kallaði á. Stjórnmálaátökin á fyrstu öld, einræðistilhneigingar Súllu, Pompeiusar og Caesars verða að h'tt skilj- anlegu brölti nema það sé haft í huga. Þessar nýju þarfir eru ekki undirstrikaðar nógsamlega af höfundi: hann lætur lesand- ann fremur renna grun í þær en að hann sýni fram á þær berum orðum. Hann van- rækir hina félagslegu sögu — þróun stétt- anna í sjálfri Róm sem höfðu á fyrstu öld f. Kr. sprengt að mestu af sér lögfræðileg mörk milli patricía og plebeia og drógust meir en áður í dilka eftir efnalegum skipti- línum; — sögu bandamanna Rómar og ný- lendinga hennar sem Rómverjar veittu að vísu margbreytilega réttarstöðu, en gátu ckki haldið niðri til lcngdar eftir að Ítalía var orðin þungamiðja heils heimsveldis. Misræmið milli lögfræðilegra forma for- tíðarinnar og hins knýjandi afls þróunar- innar kristallaðist í tilraun Caesars til stofnunar einveldis. Durant lýsir baráttu hans ítarlega, en ekki er frítt við að hann dragi taum Caesars gegn Pompeiusi. í því þrátefli sem þeir háðu um völdin fyrir 50 er vandséð hvor átti meiri sök á að rjúfa liinn vopnaða frið. Átökin virðast hafa ver- ið óumflýjanleg, eins og málum var þá komið. Eigi að síður var krafa Caesars um undanþágu frá lögum lýðveldisins (sú að hann fengi að halda hluta af hersveitum sínum sem umboðsstjóri þar til hann yrði kjörinn til ræðismanns haustið 49) hið beina tilefni borgarastyrjaldarinnar. Hann vildi í blóra við lögin ná kjöri in absentia — að sjálfum sér fjarverandi. Caesar sýndi að vísu sáttfýsi á yfirborðinu með uppá- stungu sinni ura að „þeir Pompeius skyldu báðir leggja niður umboðsvöld sín.“ I reynd hefði Pompeius ekki getað fallizt á tillöguna nema eiga á hættu að tapa víg- stöðu sinni, vegna þess að að því búnu hefði hann ekki haft við aðra að styðjast en fornliða sína sem voru dreifðir um Italíu. Aftur á móti hefði Caesar með stutt- um fyrirvara getað kvatt hina æfðu her- menn sína og skjólstæðinga á N-Itab'u undir merki sitt. Þar kom að báðum leizt illskást að láta vopnin skera úr. Pompeius hafði ekki 10 hersveitir her- búnar á Ítalíu í upphafi friðarins, eins og höfundur segir, heldur aðeins þrjár; hinar sjö voru staðsettar á Spáni og þær neyddu Caesar til að skilja eftir í Gallíu einar sex hersveitir. í upphafi var því herstyrkurinn 3:2, Pompeiusi í vil. „Teningskast" Caes- ars var þess vegna ekki jafn mikið fífl- dirfskubragð og höfundur vill vera láta. Auk þess gat Caesar reitt sig á að áttunda og tólfta hersveitin næðu honum áður en hersveitir Pompeiusar, staðsettar í Campan- íu, kæmu hinum síðamefnda til aðstoðar. Ekki er það heldur rétt að Pompeius hafi verið „langtum liðfleiri en Caesar“ þegar hann hörfaði undan frá Rómaborg til Brún- disium. Eftir ósigur Domitiusar, banda- manns Pompeiusar, við Corfinium þar sem hann missti 24 skorir, réð Pompeius að- eins fyrir 50 skorum (5 herdeildum) eða mun færri en Caesar. Þá er það ranghermt að Caesar hafi haldið inn í Rómaborg 16. marz 49. Hann sat um höfnina í Brúndisium frá 9. til 16. marz, þar sem Pompeius var króaður inni með tvær herdeildir og beið byrjar. Caesar komst ekki til Rómar fyrr en 31. marz. Durant lofar miskunnsemi Caesars, en 226
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.