Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 122

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 122
Erlend tímarit Sérkenni sósíalismans í Kína Grein sú sem hér fer á ejtir er niSurlag er- indis sem Charles Bettelheim prójessor flutti í París eftir aS hann kom heim úr KínaferS haustiS 1964. Bettelheim prófess- or kennir hagfrœSi viS Parísarháskóla og er einn helzti sérfrœSingur heims um hag- stjórnarmál. Hann hefur ritaS margar bœkur um þaS efni, þar á meSal bók sem fjallar sérstaklega um hagstjórnarkerfi So- vétríkjanna. Ilann hefur tekiS þátt í því aS semja áœtlanir fyrir Indland, Kúbu og Gíneu og hefur veriS ráSgjafi margra ann- arra rikisstjórna og hagstjórnarjrœSinga. KínaferS hans 1964 var önnur för hans þangaS á sex árum. Greinin er þýdd úr júníhefti bandaríska tímaritsins Monthly Review. Þess er auðvitað enginn kostur að fjalla í stuttu rnáli um öll sérkenni sósíalismans í Kína. Ég mun því takmarka umtal mitt við tvö atriði sem mér virðast sérstaklega lærdómsrík, það er að segja þá miklu á- herzlu sem lögð er á frumkvæði alþýðu rnanna og hitt hve fræðikenningin skipar háan sess. Við framkvæmdir í efnahagsmálum er reglunni um náið samband við alþýðu manna beitt þannig í verki, að sjálfir vinnustaðimir eru sérstaklega hvattir til þess að sýna frumkvæði. Tilhögunin á hag- stjóminni, stjórn fyrirtækja á vegum ríkis- ins og fyrirkomulagið á alþýðukommúnun- um er einmitt við það miðað að fmmkvæði alþýðu manna geti orðið sem víðtækast. í þessu sambandi er það einkar mikilvægt að hver framleiðslueining semur sína áætl- un án þess að hafa fengið nokkur fyrirmæli um magn frá æðri stjómvöldum. Sú aðferð gefur vinnustöðvunum ýtrasta tækifæri til að sýna frumkvæði sitt. Að sjálfsögðu þarf í sífellu að stuðla að því að beina slíku frumkvæði inn á réttar brautir, og að því er unnið með víðtækri uppfræðslu og út- skýringum á efnahagsstefnunni í heild og með samþykktum þeim sem miðstjórnar- stofnanir Kommúnistaflokks Kína senda frá sér. Nú síðustu árin hefur verið ýtt sérstak- lega undir þetta frumkvæði með kjörorð- inu „þróizt af eigin rammleik". Raunar hefur þetta kjörorð tvöfalda merkingu. í fyrsta lagi beinist það að stjórnarstofnun- unum, þar á meðal áætlunarstofnuninni. Þar merkir kjörorðið að almenna efnahags- stefnan verður að miðast við getu þjóðar- innar. Það atriði varð sérstaklega mikil- vægt eftir að aðstoð Sovétríkjanna hætti 1960, því að síðan hefur Kína neyðzt til að þróa efnahagskerfi sitt án nokkurrar utan- aðkomandi aðstoðar á sviði tæknimála, f jár- mála og viðskiptamála. (Þetta hefur Kín- verjum ekki aðeins tekizt, heldur hafa þcir og í vaxandi mæli endurgreitt lán sem þeir höfðu áður fengið. Kína er þannig fyrsta ríkið sem þrátt fyrir mjög vanþróaða efna- hagsundirstöðu hefur haldið áfram að þró- ast af eigin rammleik og í þokkabót getað greitt fyrri skuldbindingar.) Ég vil bæta því við að frá sjónarmiði leiðtoganna felur kjörorðið „þróizt af eigin rammleik" einnig í sér nokkur almenn sjón- 232
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.