Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Blaðsíða 67
Innan og utan við krosshliðið
Eg veit ekki hvort vitneskjan um heimssaungvarann, sem hafði
verið hérna dreingur einsog ég, olli því að ég fór óviti að taka eftir
saung og öllu sem átti skylt við saung, og var farinn að sýngja við
smájarðarfarir hjá séra Jóhanni; en ekki var það af því ég væri að taka
mér Garðar Hólm til fyrirmyndar, að minstakosti ekki viljandi, til
þess var mynd hans of fjarri mér þó hún héngi í stofum manna . . .
Eitt var víst, ég man varla eftir mér öðruvísi en hann væri fjarlægi
niðurinn bakvið fjallið bláa hinumegin við sjóinn í lífi mín sjálfs.
(90-91)
Álfgrímur er aðeins tólf ára þegar Garðar Hólm kemur til lands-
ins í fyrsta sinn. Þó Álfgrímur sé ungur er hinn hreini tónn, sem séra
Jóhann talar um, orðinn ómeðvitað markmið hans í lífinu. Álfgrím-
ur trúir því að Garðar Hólm syngi þennan hreina tón.
Fyrsta heimkoma Garðars breytir ekki miklu um persónudýrkun
Álfgríms yngri. Að vísu er söngvarinn öðruvísi í útliti en Álfgrímur
hafði ímyndað sér hann eftir ljósmyndinni. Leiðsla Garðars er orðin
myrk „með aðkenníngu af sársauka" (101) en hugmyndir Álfgríms
um alheimssöngvarann breytast ekki að því er séð verði. Hins vegar
fær lesandi grunsemdir um að ekki sé allt með felldu.
Lesanda er til dæmis fullljóst hver það er sem heimsækir eftirlits-
manninn um nótt til að biðja hann um peninga. Þegar eftirlitsmaður-
inn er kynntur til sögunnar segir að hann sé „. . . fjarskyldur ættíngi
þeirra frænkna, ömmu minnar og hennar Kristínar í Hríngjara-
bænum.“ (53) I nætursamtalinu, sem Álfgrímur heyrir óvart, falla
þessi orð:
Já rétt segir þú vinur: sannarlega erum við skyldir menn . . . við
erum þeim mun skyldari en aðrir menn sem þú ert nafnkunnari
öðrum íslendingum, en ég ónafnkunnari.
Elskulegi frændi, var hvíslað á móti. (105)
Eftirlitsmaðurinn lætur frænda sinn og gest fá gullpeninga úr
pungnum þar sem hann geymir féð sem hann fékk fyrir jörðina sína
uppi á Skaga. Nokkrum dögum síðar fer Álfgrímur fyrir ömmu
niður í bæ til að kaupa pipar fyrir þrjá aura. I þeirri ferð hittir hann
Garðar Hólm sem í það skipti er ákaflega útbær á gullpeninga.
Hann gefur Álfgrími litla meira að segja einn pening. Nokkrum
dögum síðar verður eftirlitsmaðurinn þess áskynja að Álfgrímur er
5
185