Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 22
Tímarit Máls og menningar ísfugl, „því hann verpir á vorin um það leyti sem sjöstjörnur renna upp og farmenn leggja aftur í sjóferðir“. Meðal sagna sem gengu af Sjöstjörnum var ein á þá leið, „að Oríon af Böótalandi, veiðigarpur mikill og tröll að vexti, hafi sótt eftir þeim í fimm mánuði samfleytt, og hafi þeim fyrir grátbeiðni þeirra fyrst verið brugðið í dúfna líki, en síðan gerðar að stjörnum“. Skýring þessarar goðsagnar kvað vera sú, „að á himninum gengur stjörnumarkið Oríon mjög svo nærri Sjöstjörnunum um fimm mánaða tíma“. Það sagnatilbrigði þekktist einnig, að gyðjunum væri brugðið í stjörnur vegna þess hve þær hörmuðu hlutskipti föður síns. Og í sumum sögum lifði, að ekki aðeins þær systur, heldur og móðir þeirra yrði á vegi Oríons, sem veitti þeim eftirför um skóglendin, unz Seifur breytti þeim öllum saman í stjörnur, líka Síríosi, veiðihundi Oríons. Það var haft fyrir satt að stjörnurnar sjö væru dúfur — eins og fyrr getur — sem færðu Seifi ódáinsfæðuna, ambrósíu, „en þegar þær fljúgi fram hjá Sogdröngum, þá týnist ætíð einhver þeirra, en Sevs sendir jafnan aðra í skarðið, svo að ekki vanti í töluna“. Þykir vafalaust að þessi saga lúti að því, „að ein af Sjöstjörnunum er ósýnileg". Hér er annaðhvort átt við Elektru, sem harmar fall Tróju, eða Merópe sem ein hinna „minni háttar gyðja“ giftist dauðlegum manni, en hinar allar ódauðlegum guðum, og þess vegna dyljist hún sökum blygðunar. Gyðjurnar (stjörnurnar) sjö áttu að vera dætur Atlasar og Plejóne. Þær hétu, að frátöldum Elektru og Merópe: Alcýóne (Halcýóne), Sterópe, Kelenó, Maja og Taygete. III Það er í hlutarins eðli að Grímur Thomsen, lærður í grískum fornfræðum, hefur kunnað goðsagnirnar sem lauslega var minnt á hér að framan. En hann nýtti sér þær ekki þegar hann orti, gamall maður, kvæði um Sjöstjörnuna. Þó var honum tamt að segja í bundnu máli sögur frá liðinni tíð, og stundum án þess hann gæddi þær nýrri, táknlegri vídd, aðeins endurtók sögurnar, rímaðar. Ei að síður eru mörg áhrifamikil dæmi hins, að gamlar sögur öðluðust nýjar skírskotanir í meðförum hans. En goðsagnirnar grísku hag- nýtti hann ekki, þegar hann orti kvæði sitt um Sjöstjörnuna. Þær voru rifjaðar hér upp í því skyni að menn sæju, hver sú stjarnfræði 516
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.