Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Blaðsíða 115

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Blaðsíða 115
líkum lætur kemur líka betur í ljós hvert höfundur stefnir. Þannig bætir „Róbin- son“ t. d. heilmiklu við þá mynd sem „Sendisveinninn" dregur upp af veruleika og sjónarmiðum þeirrar kynslóðar sem nú er á þrítugsaldrinum og heldur eldri. Kynslóðar sem man bæði ris og hnig byltingar- og frelsisöldunnar sem fór um Vesturlönd og víðar fyrir og eftir 1970 og sem hefur líka alist upp á tímum sívaxandi neysluáróðurs og hlutgerving- ar. Að hinu leytinu eru bækurnar um margt ólíkar, bæði að efni og þó kann- ski enn fremur að efnistökum. Yrkisefn- in í „Róbinson" eru sundurleitari. Bókin skiptist í 3 kafla. Sá fyrsti er fjölbreyti- legastur og sver sig mest í ætt við „Sendi- sveininn“. Hinir tveir leggja svo einkum til þá viðbót sem um var rætt. Annar þeirra er einungis eitt langt ljóð, líklega með hressilegri ögrunum síðustu ára í íslenskum bókmenntum. Hinn er síð- búinn „fyrsti hluti í sögu“ kynslóðar skáldsins. Sá er hörkugott flassbakk fyrir hvern þann sem þar kannast eitt- hvað við sig (gefur Punktinum ekkert eftir í því efni) og algjört bingó hjá þeim sem þekkja til inn við Sundin, muna ræður ónefnds skólastjóra, príl í ryðg- uðum Islendingi í fjörunni og vita hvað er að fara útí Teit. Tónninn er í senn tregablandinn og brattur og skáldinu tekst ágætlega að sýna í gegn- um litla veröld sem var allt þar til í gær eða fyrradag. Það er ný reynsla að eiga hlut í endurminningabók: og forvitnin prísuð í öllum kennslubókum fyrir byrjendur leitaði ekki á mig fyrr en mér var sagt að vera ekki með nefið niðr’ í öllu þögnin er gull sagði skólastjórinn Umsagnir um bœkur vangadansinn vopn djöfulsins sá sem talar mun steyptur úr fánýtu járngrýti orða . . . (42) I „Sendisveininum“ eru aftur á móti engin eiginleg kaflaskil. Bókin telur 17 sjálfstæð ljóð en efnislega skyld. Flokk- un þeirra er e. t. v. varhugaverð. Þó held ég að með nokkrum rétti megi segja að rúmlega þriðjungur bókarinnar fjalli um margumrædda kynslóð þrít- ugs- og hálffertugsaldursins. Hún er hér vaxin úr grasi, hætt að „smíða mör- gæsir", orðin róttæka ’68 kynslóðin sem ætlaði að gera byltingu og betri heim en er búin að „tapa öllum sínum sigrum". Vonleysi og aðgerðaleysi eru tekin við: byltingin er á bömmer og frelsið er bara flipp (12) Annar þriðjungur bókarinnar snýst um fremur óskýran hóp miðaldra fólks, hinn þögla meirihluta athafnaleysis, fólk sem orðið hefur neysluáróðri að bráð og sætt sig við hlutskipti sitt með hrikalegum afleiðingum: svo stressandi að slappa af með teppalagt hamingjubros sparimerkjafjölskyldunnar í fanginu (19) Ljóðin í „Róbinson" styrkja þessa hug- mynd að skiptingu „Sendisveinsins“. Önnur ljóð bókarinnar falla ekki jafnljúflega í flokka en tengjast hinum á ýmsan hátt. Vandinn aö gera upp Áðurnefnd uppgjör og gagnrýni Einars TMM VIII 609
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.