Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 66

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 66
Tímarit Máls og menningar kappkosta að rjúfa seið listaverksins, með því að láta galdur þess liggja í augum uppi. Hið furðulega hefur þá gerst: gagnrýnin hefur sjálf orðið að sérstakri listsköpun, galdri, eftir því sem hún reyndi ákafar að kanna galdur listaverksins. Gagnrýnin hefur stöðugt fjarlægst hinn endalausa leik listar og gagnrýni í blindgötu. I þeirri blindgötu hefur oft ríkt frjósöm ánægja, deilur. Listin og gagnrýnin finna frið í stríðinu. En að undanförnu reynir allt að vera eigin spegilmynd: skáldsagan reynir að vera öfug mynd sín, gagnrýnin gagnrýni en um leið gagnrýni á gagn- rýnina. Hollt er talið að sjómenn lesi sjómannabækur, bændur sveitasögur, konur kvennasögur. Allt er eins og hundur að elta skott sitt en ekki skottið á tíkinni. Eðlilegast er talið að hver grafi sína eigin gröf. Sjálfur hef ég reynt að fjalla um dauðadóminn sem listamaðurinn kveður yfir sjálfum sér, í skáldverki sem er um leið ritdómur: Sögunni af mannin- um sem fékk flugu í höfuðið. Aður en lesandinn opnar bókina sér hann framan á henni á bak rithöfundarins, líti hann á baksíðuna sér hann framan í hann. Þannig er öllu snúið við. Með þessu er gefið í skyn að rithöfundurinn skíni í gegnum verk sitt. I verkinu grefur rithöfundurinn sér gröf af ánægju og þreki. Listamaðurinn óttast gagnrýnandann, á svipaðan hátt og slóttugur sjúkl- ingur geðlækni. Ottinn stafar af ótta listamannsins við nekt sína, þótt hann hampi henni gjarna í verkum sínum, Kannski örlar einnig á ótta við þekkinguna, því það er hin blinda frumhvöt sem frjóvgar listaverkið. Listamaðurinn óttast að annar en hann sjálfur komist að innsta kjarna efniviðarins. Líkt og sálsjúki maðurinn segir listamaðurinn aldrei allan sannleikann um hug sinn í verkum sínum. Hann verður aldrei sem opin bók. Sá sem semur bækur óttast hinn sem leysir þær upp í huganum. Aðeins lítilþægur rithöfundur fagnar lesendafjölda. Hinn óttast. Skráargataskáldin skunda glöð í verksmiðjuna. Óttinn við afhjúpun hins innsta kjarna stafar af því að listamaðurinn er skapari goðsagna og galdurs. Rithöfundurinn, skáldið, myndlistarmaðurinn, allir vilja vera næstum einir með leyndarmál sitt. Gagnrýnandinn, áhorfandinn má ekki komast að innsta kjarna vélræðisins. Listamaðurinn boðar vélræði en ekki hjálpræði. Af þessum sökum er hann ætíð heiðinn gagnvart þjóðfélaginu. Hlutverk gagnrýnandans er að skilja hismið frá kjarnanum. Það er að einhverju leyti á hans ábyrgð, hvort á hinn andlega markað þjóðarmenning- arinnar fer kjarni eða hismi. Líkast er þó best að kjarni og hismi fari saman. Hugurinn lifir líka á hisminu. Þess vegna er vandi gagnrýnandans og listamannsins í rauninni sá sami. Raunverulegur listamaður er frjósamur gagnrýnandi og skapandi gagnrýnandi er í rauninni listamaður. Hér hef ég ekki fjallað um dægurmál gagnrýnenda og listamanna, málara, 560
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.