Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 86
Tímarit Máls og menningar Að vísu er Saga um glæp ekki nein venjuleg sería — nema þá að því leyti til að unnt er að lesa hverja sögu fyrir sig sér til gagns og gamans, og þannig séð sama í hvaða röð þær eru lesnar. I heilu lagi, sögu fyrir sögu er flokknum ennfremur ætlað að rekja og sýna fram á þroskaferil sem sögu- hetjurnar ganga í gegnum. Og þeirri þróun er lýst í samhengi víðtækrar þjóðfélagslýsingar sem í öllum meginatriðum á að koma heim við raunveru- lega þjóðfélagsþróun í Svíþjóð á tíma sagnanna, þann áratug eða svo sem þær eru að ske og koma út. Og þar með við samfélagshætti sem við lesendur sagnanna líka þekkjum. Að þessu leyti má að vísu vera að aðferðir sagnanna hafi breyst á meðan Saga um glæp var í smíðum. En efni og stefnu hennar ætti að mega rekja eftir gangi sakarefna, lýsingu sakafólksins sögu fyrir sögu. Tvær af þremur fyrstu sögunum, Morðið á ferjunni og Maðurinn á svölunum nefnast þær í íslensku útgáfunni, fjalla um kynferðisglæpi, og í þeim báðum er morðinginn sjúkur maður og lýst sem ósjálfráðum gerða sinna; en þriðja morðið, ástríðuglæpur sem svo má kalla í Maðurinn sem hvarf, verður nánast af slysalegri tilviljun. í þeirri sögu er samúð lesandans að sögulokum öll með morðingjanum, vænsta dreng; en sá sem myrtur var getur nánast sjálfum sér um kennt hvernig fór, enda síður en svo nein eftirsjá í honum. Það réttlætir ekki dauða hans, öðru nær; en manndrápið í sögunni er umfram allt ógæfa mannsins sem framdi það og leggur líf hans í rúst. Barnamorðinginn í Maðurinn á svölunum er alveg augljóslega sjúkur maður og á hvergi heima nema á hæli; þar er hann um síðir einangraður og þar með gerður óskaðlegur eins og líka að sínu leyti morðingjarnir í fyrstu sögunum. Það gefur enginn manninum né sjúkdómi hans gaum fyrr en hann brýst út eins og pest í samfélagi sögunnar. Upptök sjúkdómsins eru aftur á móti látin óskýrð, ef til vill að endingu óskiljanleg í samhengi sögunnar. Fyrri sögurnar tvær eru að því leyti til venjubundnar sakamálasögur að þær fjalla báðar um einstakan glæp, morð og mannshvarf, sem við fyrstu sýn virðast óskiljanlegir atburðir. Báðar hinar torráðnu gátur eru að sjálf- sögðu leystar um síðir vegna yfirburða lögreglumannanna í sögunum, þeirrar sérstöku starfshæfni sem umfram allt gerir Martin Beck og félaga hans að hetjum í sögu. Og ráðning gátunnar geymir á meðal annars skýringu á glæpnum, ástæðum morðingjans sem í báðum tilfellum eru einkum sálfræðilegar og einstaklingsbundnar. Að þessu leyti til er breyting orðin í þriðju sögunni, Maðurinn á svölunum, og vel má vera sú saga í flokknum sem best tekst að framfylgja tilætlaðri raunsæisstefnu hans. Þar er eiginlega engin gáta ráðin né drýgðar neinar dáðir. Þó svo Martin Beck og þeir félagar komist af ráðsnilld sinni að því hver morðinginn er lánast þeim 580
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.