Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 129
þörf hans fyrir fegurð og samhljóm fær ekkert svar frá því móðirin deyr og þangað til hann fer í sumarfrí í Vatna- skóg með KFUM, sem verður eins og Paradís í eyðimörkinni. Sögumaður er hægt og hægt að búa okkur undir skilin sem framundan eru í lífi söguhetjunnar. Saga Jakobs Jóhannessonar er saga einkennilega magnaðra tilfinninga og hita sinn fær hún úr eigin reynslu höf- undar síns sem enn er svo fersk að honum virðist óa að takast á við hana. Fremst í Möskvunum er tilvitnun í franska heimspekinginn Jean-Paul Sartre þar sem hann boðar raunverulega byltingu í Umsagnir um bœkur kjölfar þess að fólk verði opinskárra um eigin tilfinningar og reynslu. Það er vel valin tilvitnun, en Sigurður hefði líka getað hafið þessa bók á ljóði eftir Þor- stein frá Hamri sem segir eitthvað svip- að í Lángnætti á Kaldadal: Komið út undir bert loft — Gerið uppskátt um gleði yðar hatur girndir sorgir og annan skepnuskap og ég mun ábyrgjast yður á eftir sem mennska menn. Silja Aðalsteinsdóttir Ádrepur Framh. af bls. 503 bókmenntaforma. Þau eiga sér alþýðlegan uppruna og spegla oft veruleika hinna kúguðu gegn kúgurunum. I þeim er oft mikil kímni og fyndni, baráttuneisti og falin glóð, sem raunhæft er að blása lífi í og þannig heimfæra upp á þann veruleika, sem blasir við okkur í dag: Sum ævintýri eru býsna uppreisnargjörn í boðskap sínum, kotungum gengur vel að koma ár sinni fyrir borð, karlsbörn sýna dirfsku og snilld við að leika á þursa og konungafólk . . . En þarna kemur fátt upp í hendurnar á fólki án þess að það reyni á sig, það er það sem gerir ævintýrin skemmtileg, i þeim er alltaf viðureign andstæðra afla. (Sama rit, bls. 68—69) Það eru ekki endilega börnin, sem hafa þörf fyrir raunsæja veruleikalýsingu í leikhúsinu, sem þau geta unnið úr seinna ef þau muna þá eftir henni. Leikstjórar, leikarar og leikritahöfundar hafa þörf fyrir að sundurgreina og skilgreina veruleikann til þess að geta komið skoðunum sínum á framfæri. Svo framarlega sem við vitum til hvers við viljum búa til leiksýningar jafnt fyrir börn sem fullorðna og hvað við viljum segja áhorfendum með list okkar, er ekkert því til fyrirstöðu að nota hvaða form sem er til þess. Brecht, einn af mörgum heimildar- mönnum Thomasar, notaði sjálfur dæmisögur, til þess að skrifa leikrit t. d. um rétt yrkjenda jarðarinnar til eignarhalds á henni í Kákasíska Krítarhringnum. Annað dæmi um gamla sögu, sem notuð var sem uppistaða leikverks, sem frægt varð, er sögnin um ungu stúlkuna og drekann, sem til er meðal margra þjóða í mismunandi útgáfum. Þá sögu tókst Jevgenij Schwarz að nota á snilldarlegan hátt í barnaleikriti sínu „Drekinn“. Það segir okkur samt heilmikið um þann þjóðfélagsveruleika og þær ógnir, sem ríktu þegar það var samið (1943) og gerir líklega enn, enda var það bannað á sínum tíma í Sovétríkjunum. 623
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.