Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 7

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Page 7
Arni Bergmann Staðleysur, góðar og illar Frá Thomasi More til Georgs Orwells „Eg játa að margt er það í Utópíu sem ég get fremur óskað mér en vonað að ætti sér stað í okkar borgum,“ segir Thomas More í lok hinnar frægu bókar „Utopia“ sem út kom árið 1516.En af henni taka aðrar útópíur í fjölmörgum bókum nafn sitt, sem er grískrar ættar og þýðir staðleysa, staður sem ekki er. Utópía Thomasar More ber mörg þau einkenni sem fyrr og síðar hafa loðað við bókmenntategundina. Ofangreint tilsvar minnir á eitt það helsta: staðleysan er tilraun til að koma skipulagi á ímyndunaraflið, búa til heillega mynd úr draumum og vangaveltum um öðruvísi lífshætti og þjóðfélag. Hún er ferðasaga til samfélags sem ekki er til: á dögum Thomasar More er ferðast til fjarlægra eyja þar sem sælan býr, Utópía hins enska húmanista er land í Nýja heiminum sem „finnst“ í tengslum við leiðangra Americo Vespucchis. Síðar meir, þegar öll lönd voru fundin, finna menn helst útópíur með ferðalagi fram í tímann. „Útópía“ Thomasar lýsir fyrirmyndarþjóðfélagi þar sem allir vinna en þurfa ekki að strita. Allir hafa nóg að brenna og bíta í sameiginlegum matarskálum. Land og annað sem máli skiptir er í sameign, græðgi og öfund, fátækt og auðsöfnun eru úr sögunni. Munaður er óþekktur, allir ganga í látlausum ullarflíkum, demantar eru barnaglingur og gull er haft í hlandkoppa. Nytsemi ræður ríkjum og verkaskipting splundrar ekki samfé- laginu: allir kunna til búskapar og iðnar einhverrar og hafa þar að auki góðan tíma og áhuga til að stunda fagrar listir og fræði. Þetta sælulíf byggir á þeirri grundvallartrú allra útópista, að eðli mannsins sé gott, trú á rétt og skynsamlegt uppeldi, sem að viðbættu afnámi séreignar- réttar leysir flestan vanda. Séu rétt skilyrði fyrir hendi kemur það í ljós, að mannfólkið getur og vill lifa í farsæld sem er „sönn, rétt og náttúruleg“. „Allir eru ríkir þótt enginn eigi neitt,“ stendur þar. Ennfremur: „Þar sem er gnótt allra hluta er engin ástæða til að ætla að maðurinn biðji um meira en hann þarf.“2) Og þörfin er hófsöm, sem fyrr segir, því að manninum hefur lærst að lifa náttúrlega, samkvæmt réttu eðli sínu. Um leið og Thomas More kemur formi á gamla og nýja drauma um far- 237
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.