Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Side 45

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Side 45
Sidfrœði gagnrýninna félagsvísinda hæfileika til þess að láta hið hlutstæða og hið óhlutstæða virka saman, er lýðræðislegur og getur þótt vænt um aðra.1 Það sem aftur á móti einkennir geðsjúklinga er upplausn persónuleikans, þótt lífsstarfsemin geti verið í tiltölulega stöðugu jafnvægi. Þessi aðferð gerir mannúðarsálfræðingum kleift að umorða spurninguna „Hver œttu verðmæti manneskjunnar að vera?“ og spyrja í staðinn: „Hver eru verðmæti heilbrigðrar manneskju?“ Þetta þrennt, hin sögulega, heimspekilega og sálfræðilega niðurstaða, gerir okkur kleift að fjalla á skynsamlegan hátt um sammannlegan grundvöll gagnrýninna félagsvísinda. Af þessum almennu hugleiðingum getum við dregið þá niðurstöðu að félagsvísindamaðurinn eigi a. m. k. þriggja kosta völ: a) að vera málpípa hins opinbera hugmyndakerfis í tilteknu þjóðfélagi; b) að reyna að stunda rannsóknir sem stjórnast eingöngu af þekkingarfræðilegum viðmiðunum og ýta öllum siðferðilegum lögmálum, eða efnahagslegum, pólitískum og menningarlegum hugsjónum, til hliðar; c) að leggja stund á gagnrýna fræðimennsku með hliðsjón af sammannlegum verðmætum. Það er ekki erfitt að útskýra af hverju margir félagsvísindamenn kjósa hlutverk málpípunnar. I besta falli geta þeir átt samleið með hinni ofúnberu hugmyndafræði, átt sér sömu hugsjónir og markmið og ráðandi öfl. I versta falli gerast þeir taglhnýtingar vegna þess að þeir gera sér grein fyrir því hvað þeir fá að launum: feita stöðu fyrir fylgispekt, útskúfun fyrir óhlýðni. En hvert svo sem tilefnið er þá komast þeir fræðimenn, sem ákveða að laga vinnu sína að hugmyndafræðilegum kröfum, ekki hjá því að skrumskæla reglur vísindalegrar aðferðar sem vilja vera sannleikanum samkvæmar og hafa almennt, hlutlægt gildi. Öll hugmyndafræði er hins vegar fölsk réttlæt- ing sem ber yfirbragð skynseminnar; þar eð hún þjónar afmörkuðum sér- hagsmunum þá gefur hún óhjákvæmilega villandi mynd af félagslegum tengslum undir yfirskyni vísindalegs sannleika. Þeir fræðimenn sem krefjast siðferðilegs og hugmyndafræðilegs hlutleysis geta forðast verstu misbeitinguna. Þessi afstaða birtist í mörgum og ólíkum myndum. Við blasir að það er mikill munur á afstöðu þess fræðimanns sem leitar hælis í öryggi hreinna vísinda en hafnar á laun hinu opinbera verð- mætamati í þjóðfélagi kúgunar og annars sem lítur á sig sem eiganda tiltekinnar vöru, þekkingar og tækni, og er til reiðu hverjum þeim sem vill greiða það verð sem upp er sett. Eða berið saman vonsvikinn uppgjafa upp- reisnarsegg, sem hefur sannfærst um að öll siðferðileg afstaða sé merkingar- laus, og handbendi ríkisstjórnar eða fyrirtækis sem er stoltur af félagslegu hlutverki sínu og leitast við að skapa „jákvæða" þekkingu í þeim verkefnum sem ríkið felur honum. Loks mætti nefna þá manngerð sem Berthold Brecht lýsir í Hugsuðinum. Eins og önnur persóna Brechts, Fræðimaðurinn, vill 275
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.