Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1984, Side 111
Madur ordanna samfélaginu. Hinar ævafornu goðsagnir höfðu stærra hlutverki að gegna í mótun félagslegrar vitundar fólksins. Snúum okkur að fyrstu bókyðar, Mehmet. Hvernigfenguð þér hugmynd- ina að henni? Þegar ég var almenningsskrifari, hitti ég yfirstéttarmann sem hafði gerst útilegumaður. Hann var kominn af ríkri landeigendafjölskyldu, þeim sem kallaðir eru agar. Þetta var merkur lögmaður sem trúði á lög soldánatímans en var orðinn mikill ræningi. Hann kunni grísku, frönsku og ensku og það var hann sem fyrstur talaði við mig um heimspeki, og meðal annars um Karl nokkurn Marx. Remzi Bey, en það hét hann, sagði mér líka söguna merku af stigamönnum í tyrkneskum sveitum. Fundur minn og Remzi Bey varð mér sem opinberun. Móðurbróðir minn hafði verið dáður og virtur stiga- maður; ég átti annan ættingja sem hafði verið drepinn í fjöllunum og sjálfur hafði ég — þótt ég hefði ekki verið raunverulegur stigamaður — verið hundeltur síðustu fimm árin, órétti beittur, hræddur og í uppreisn. Þannig urðu ritstörfin fyrir mér strax nátengd uppreisninni og ég ákvað að skrifa sögu uppreisnarmanns. Allt efnið sem ég viðaði að mér snerist um uppreisn, og sú viðleitni náði enn lengra í annarri bók minni, Haukurinn Mehmet. Eg álít að tilhneiging mannsins til uppreisnar sé ríkur þáttur í eðli hans. Það sem ég vildi koma til skila voru allir þessir augljósu eða óljósu kraftar sem neyða manninn til að rísa upp, velja uppreisnina, og það jafnvel þó hann geti einskis af henni vænst. Hvaða hagnað hafði ég til dæmis af þessum langa eltingaleik? Vera stöðugt í felum, láta taka mig fastan, berja mig, auð- mýkja . . . Jafnvel á stjórnmálasviðinu hafði ég enga von. En undir sumum kringumstæðum er maðurinn nauðbeygður til að rísa upp. Vegna eigin reynslu uppgötvaði ég aftur það sem skapaði kraftinn, sjálfan kjarnann í munnmælasögunum: uppreisn alþýðu sem tákn um virðingu mannsins fyrir sjálfum sér. Vegna þessa var svo vel tekið á móti Mehmet mjóa, því að sú bók endurnýjaði munnmælasöguhefðina um leið og hún notfærði sér hana. Þér hafið skapað söguhetju sem þúsundir tyrkneskra bcenda hafa gert að sinni, þeir sverja að þeir hafi þekkt eða heyrt talað um Mehmet mjóa. Hvar er raunveruleikinn og hvar er skáldskapurinn ? Ég hef aldrei viljað stæla lífið sjálft. Tilveran er ekki annað en endalaus sköpun, stöðug endurnýjun: á sérhverri sekúndu sem líður er einu tré, þús- undum skordýra og fiðrilda fleira, og nokkrum gráðum heitara á Tjúkú- róvasléttunni. I bókum mínum reyni ég að sýna fram á þessa sífelldu endur- nýjun. Tökum dæmi: ég ætla að lýsa ferskjutrjáalundi. Nú, ég reyni að sjá líf lundarins frá öllum hliðum: hvernig fyrsta blómið birtist, hvernig fiðrildin ná sér í næringu, hvernig sólin hellir sér yfir trén, hvernig vatnið seytlar um þau, hvernig bændurnir sem sjá um trén búa og svo framvegis. Ég er á móti 341
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.